Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 19
Valsblaðið 2011 17
Starfið er margt
Á þessum árum æfðu menn úti af
kappi á sumrin en er hausta tók var æft í
íþróttahúsinu þar sem við spiluðum inn-
anhúsfótbolta. Margir okkar voru líka í
handbolta. Ég var í handboltanum fram-
an af, þótti liðtækur örvhentur hornamað-
ur. Annars vorum við alltaf í fótbolta.
Ég var svo heppinn að ég fékk snemma
Lárus Loftsson sem þjálfara. Lárus setti
mig í vörnina og ég lék sem miðvörður
alla yngri flokkana. Við urðum Íslands-
meistarar í 5. flokki 1967, spiluðum þrjá
úrslitaleiki við Víkinga. Síðasti leikurinn
fór fram á Melavellinum og þótti það
gríðarleg upphefð að fá að spila þar. Ég
man eftir því að fyrir þann leik hafði ég
verið sendur í sveit til ættingja á Blöndu-
ósi. Auðvitað kom ég suður í leikinn þrátt
fyrir átta klukkustunda ferðalag í rútu.
Þegar ég var 16 ára var ég valinn í
Faxaflóaúrvalið, sem var úrvalslið stráka
frá Faxaflóasvæðinu. Við tókum þátt í
móti í Skotlandi sem við unnum. Þegar
við vorum úti fór að berast okkur til
eyrna að íslenska þjóðin nánast stæði á
öndinni yfir árangri okkar. Þó við stæð-
Fyrstu fótboltaskórnir voru Iðunnar-
skór með harðri tá sem voru keyptir niðrí
Gefjun/Iðunn í Austurstræti. Þá var nú
reyndar feikinóg að vera í Valstreyju í
keppni. Það var svo bara til hátíðarbrigða
að vera í hvítum stuttbuxum. Hins vegar
átti ég bláa sokka sem ég erfði eftir Ella
bróður … bláir sokkar voru hluti af upp-
haflega Valsbúningnum.
Þetta voru reyndar ekki sokkar … bara
ullartstroff um sköflunginn og svo var
teygja undir ilina. Ég man að ég var ekk-
ert sérstaklega hrifinn af þessum bláu
sokkum því Valsarar voru eiginlega hættir
að spila í bláu sokkunum á þessum tíma.
Það var gríðarlegur fjöldi stráka á æf-
ingum, skipt í A,B,C –lið og svo ruslið,
sem kallað var. Það var miskunnarlaust
dregið í dilka og „engin elsku mamma“.
Þeir sem voru í A-liðinu voru goð og
hetjur á meðan strákarnir í ruslinu voru
bara labbakútar. Goggunarröðin var skýr.
Ég er ansi hræddur um að félags- og sál-
fræðingar eða foreldrar á hlíðarlínunni
nú á dögum yrðu ekki sáttir við þetta fyr-
irkomulag.
Alinn upp í Norðurmýrinni og á
Klambratúni
Hvernig stóð á því að þú gekkst í Val?
„Það var nú einfalt. Ástæðan var sú að
Elli bróðir minn, sjö árum eldri, æfði
með Val. Ég bjó á Guðrúnargötunni og
var farinn að skokka niður á Valsvöll árið
1961, sex ára gamall. Þá var yfir tvær
hindranir að fara, Miklubrautina og
gömlu Reykjanesbrautina, miklar um-
ferðargötur, en það þótti ekki tiltökumál.
Á þessum árum var Valssvæðið mjög
frábrugðið því sem það er nú. Þar var
gamla íþróttahúsið, reyndar nýtt í þá daga,
og svo malarvöllurinn, sem sneri norður-
suður, gamla fjósið og íbúðarhúsið. Fljót-
lega upp úr þessu kom svo grasvöllur,
fyrsti grasvöllurinn að Hlíðarenda.
Klambratúnið var svo hitt leiksvæðið.
Við vorum þar í fótbolta allan daginn, ef
við vorum ekki niður á Hlíðarenda. Á
Klambratúninu komu saman strákar úr
Hlíðunum, Norðurmýrinni, Flókagötunni
og Holtunum og öttu kappi. Að mestu
Valsarar en nokkrir Framarar líka.
Grímur Sæmundsen afhendir Emlyn Huges fyrirliða Liverpool Valsfánann. Grímur er læknir að mennt og á námsárum sínum í
læknadeildinni dvaldi hann ásamt félögum sínum í mánaðartíma við krufningar við háskólann í Liverpool. Þetta var árið 1977 en
einmitt það ár hafði Liverpool FC hampað Englandsmeistara- og Evrópumeistaratitli. Sem liðsmaður eins sigursælasta félags Ís-
lands þótti Grími tilhlýðilegt að heimsækja Englands- og Evrópumeistarana, færa þeim fána Vals og kveðjur félagsins. Eins og sjá
má á myndinni var Grími vel tekið því allar helstu hetjur þessa gullaldarliðs Liverpool gáfu sér tíma til að fagna komu Vals-
mannsins. Sjálfur fyriliðinn Emlyn Hughes tók við fánanum.
32 Valsblaðið 2011
Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar 2011
6. flokkur karla. Ásgeir Snær Vignisson, Jón Freyr Eyþórsson
og Axel Thor Aspelund.
6. flokkur karla yngra ár. Stiven Tobar. Á myndina vantar Arnór
Snæ Óskarsson.
6. flokkur kvenna. Heiðrún Berg Sverrisdóttir og Þórhildur
Bryndís Guðmundsdóttir.
6. flokkur kvenna yngra ár. Hugbjörg Helgadóttir, Daníela
Björg Stefánsdóttir og Þóra Björk Þórsdóttir.
5. flokkur karla. Aron Elí Sævarsson, Rökkvi Steinn Finnsson
og Gylfi Þ. Gunnlaugsson.
5. flokkur kvenna. Hulda Bjarklind, Margrét Vignisdóttir og
Elín Ísold Pálsdóttir.
5. flokkur karla yngra ár. Jóhann Páll Einarsson og Víkingur
Örvar Ólafsson.
5. flokkur kvenna yngra ár. Saga Árnadóttir og Victoria
McDonald.
2A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
2
11
12
27
6
V
al
ur