Valsblaðið - 01.05.2011, Page 22
20 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
grenninu. Úr þessu varð samkomulag
milli borgarinnar og Vals um breytta nýt-
ingu á erfðafestulandi Vals að Hlíðar-
enda. Valur fékk sex hektara til uppbygg-
ingar íþróttastarfsemi, borgin fékk sína
skika og Valur fékk heimild til að skipu-
leggja íbúða- og atvinnulóðir á afgangi
erfðafestulandsins. Við þetta myndaðist
verðmætur byggingaréttur á þessum lóð-
um. Byggingarétturinn yrði síðan seldur
og andvirðið notað til greiðslu skulda
Vals og uppbyggingar að Hlíðarenda.
Frábær hugmynd, sem upphaflega fædd-
ist vegna áforma okkar um að flytja Val í
Grafarvog!
Ýmsir aðilar sýndu áhuga á að kaupa
byggingaréttinn af okkur en við tókum
þá ákvörðun að selja hann til Valsmanna
hf. Í kjölfarið komst svo skriður á þá
uppbyggingu að Hlíðarenda sem menn
sjá nú árangurinn af. Stofnun Valsmanna
hf hafði þá þegar sannað gildi sitt og nýt-
ing félagsins sem fasteignaþróunarfélags
á Hlíðarendareit var mjög skynsamleg.
uppbyggingar í Grafarvogi. Allar stofn-
anir Vals, m.a. fulltrúaráðið voru búnar
að samþykkja áætlun um flutning Vals í
Grafarvog.
Þegar þarna var komið sögu kom póli-
tíkin í spilið. Einhverjir foreldrar í Graf-
arvogi tóku það sem mætti kalla félags-
pólitíska afstöðu og voru andvígir þess-
um áformum. Það endaði svo með því að
stjórnmálamenn í Reykjavík þorðu ekki
að ganga þessa leið til enda. Leið, sem
þeir sjálfir höfðu ekki síst haft frum-
kvæði að. Þeir vildu þétta félagaflóruna í
borginni, fækka félögum og efla þau um
leið. Valur hafði auðvitað vissa yfirburði
í þessu ferli gagnvart Fjölni, t.d. í félags-
legu- og sögulegu tilliti.
Þegar borgin koksaði á þessum fyrir-
ætlunum útfærðum við hugmyndina um
breytta landnýtingu að Hlíðarenda til
uppbyggingar á svæðinu sjálfu. Þetta fór
saman við hagsmuni borgarinnar því að
hún þurfti á spildum að halda úr okkar
landi til ýmissa vegaframkvæmda í ná-
undir forystu Reynis Vignis að skoða
möguleika þess að Valur flytti höfuð-
stöðvar starfsemi sinnar í Grafarvog.
Þetta var mjög áhugaverð hugmynd.
Valur hafði í upphafi haft aðstöðu vestur
á Melum og síðan flutt að Hlíðarenda
þegar félagið var rétt um fertugt. Þegar
þessi Grafarvogshugmynd kemur fram
var félagið um nírætt. Mér fannst það
ekkert tilfinningamál þó að félagið flytti
sig um set tvisvar á öld, með byggðinni.
Hugmyndin var sú að áfram átti að vera
aðstaða að Hlíðarenda til íþróttaiðkana
fyrir hefðbundið upptökusvæði Vals í
Hlíðunum og Þingholtunum. Í Grafar-
vogi ætlaði Valur einungis að sinna þeim
íþróttagreinum sem fyrir voru í félaginu,
þ.e. knattspyrnu, handknattleik og körfu-
knattleilk. Aðrar íþróttagreinar yrðu síð-
an iðkaðar í nafni Fjölnis.
Hugmyndin var síðan að nýta stærstan
hluta Hlíðarendareits fyrir atvinnu- og
íbúðalóðir. Við það myndu skapast verð-
mæti og afrakstur þeirra yrði notaður til
Faxaflóaúrvalið 1971: Aftari röð frá vinstri: Hreiðar Ársælsson, Janus Guðlaugsson, Lúðvík Gunnarsson, Ásgeir Ólafsson, Stefán
Halldórsson, Gísli Torfason, Gísli Antonsson, Ottó Guðmundsson, Gunnar Örn Kristjánsson, Gunnar Pétursson. Fremri röð frá
vinstri: Þorvarður Höskuldsson, Björn Guðmundsson, Ólafur Magnússon, Guðmundur Ingvason, Sverrir Hafsteinsson, Grímur
Sæmundsen og Hörður Jóhannesson.
Valsblaðið 2011 29
Starfið er margt
duglegum og efnilegum strákum sem
æfðu vel og stóðu sig vel í vetur. Valur 1
á yngra ári varð Íslandsmeistari, tapaði
ekki leik en gerði 3 jafntefli. Þess ber að
geta að Íslandsmeistaratitillinn þeirra var
sá fyrsti sem Valur vann á 100 ára afmæl-
inu. Eldra árið endaði veturinn á keppn-
isferð til Vestmannaeyja og yngra árið
fór til Akureyrar í upphafi tímabilsins og
svona keppnisferðir gefa krökkunum
góðar minningar og styrkja liðsheildina í
alla staði. Það var erfitt að verðlauna fáa
einstaklinga í þessum flokki því styrk-
leiki Vals í vetur hefur verið hvað strák-
arnir eru jafnir, það geta allir tekið af
skarið og gert góða hluti. Þjálfararnir
vilja í lokin þakka frábærum foreldrum
fyrir aðstoðina í vetur vegna fjáröflunar,
myndatöku og styðja vel við drengina og
félagið í að stuðla að góðu og skemmti-
legu umhverfi.
Mestu framfarir eldra ár: Axel Thor
Aspelund
Mestu framfarir yngra ár: Stiven Tobar
voru gífurlegar. Næstum því hver ein og
einasta stelpa sem hóf að æfa í byrjun
vetrar hafði aldrei æft handbolta áður.
Það kom eitt gull í hús en það var deild-
armeistaratitill í 4. deild í síðasta móti
vetrarins. Það var virkilega við hæfi að
sýna framfarirnar með því að klára gullið
þar. Flestar þessar stelpur eru á eldra ári
eða 17 talsins.
Mestu framfarir yngra ár: Saga Árna-
dóttir
Besta ástundun yngra ár: Victoria
McDonald
Mestu framfarir eldra ár: Elín Ísold
Pálsdóttir
Besta ástundun eldra ár: Hulda Bjark-
lind.
Leikmaður flokksins: Margrét Vignis-
dóttir
6. flokkur karla
Þjálfarar: Óskar Bjarni Óskarsson og
Gunnar Ernir Birgisson
6. flokkur karla samanstendur af 37
Mestu framfarir: Vigdís Birna Þor-
steinsdóttir
Besta ástundun: Grace Þorkelsdóttir
Leikmaður flokksins: Morgan Þorkels-
dóttir
5. flokkur karla
Þjálfari: Gunnar Ernir Birgisson
Starfið í vetur er búið að vera mjög fínt
og rúmlega 20 strákar eru skráðir í flokk-
inn en langt er síðan flokkurinn var svona
fjölmennur. Það er mikið af mjög efni-
legum leikmönnum í flokknum sem hafa
verið að æfa frá unga aldri en einnig eru
nokkrir sem byrjuðu í haust og hafa tekið
miklum framförum í íþróttinni og ef þeir
halda áfram geta þeir náð langt.
Yngra árinu (strákar fæddir 1998) gekk
vel í vetur og á fyrsta mótinu nældu þeir
sér í gullpening þar sem þeir sigruðu sína
deild og komust upp í efstu deild. Næstu
mót spiluðu þeir meðal bestu liða í þess-
um árgangi en duttu svo aftur niður í 2.
deild síðar um veturinn en þó voru þeir
alltaf hársbreidd frá því að komast aftur
upp í efstu deildina og máttu sætta sig
við 5. sætið á Íslandsmótinu þennan vet-
urinn. Fínn árangur.
Eldra árinu (strákar fæddir 1997) gekk
einnig vel í vetur og byrjuðu veturinn á
að vera í efstu deild þar sem þeir lentu í
3. sæti á fyrsta mótinu. Þeir þurftu svo að
sætta sig við að falla niður í 2. deild á
næsta móti en gíruðu sig upp fyrir þriðja
mótið og sigruðu. Þeir eiga að spila með-
al bestu liðanna sem þeir svo sýndu með
því að lenda í 2. sæti á næstsíðasta móti
vetrarins. Þessi vetur var mjög fínn hjá
strákunum og lentu þeir í 5. sæti á Ís-
landsmótinu í þetta skiptið.
Mestu framfarir eldra ár: Gylfi Þ.
Gunnlaugsson
Mestu framfarir yngra ár: Víkingur
Örvar Ólafsson
Besta ástundun eldra ár: Aron Elí
Sævarsson
Besta ástundun yngra ár: Jóhann Páll
Einarsson
Leikmaður flokksins: Rökkvi Steinn
Finnsson
5. flokkur kvenna
Þjálfari: Siguróli Magni Sigurðsson
Starfið í 5. fl. kvenna gekk vonum
framar í vetur. Strax í ágúst byrjuðu 13
stelpur að æfa frá fyrstu æfingu en týnd-
ust svo inn jafnt og þétt út allan veturinn.
16 stelpur æfðu lengst af en í dag eru 20
á skrá. Árangurinn var ágætur, þó sér-
staklega undir lok vetrar en framfarirnar
2A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
2
11
12
27
6
V
al
ur