Valsblaðið - 01.05.2011, Side 37
Valsblaðið 2011 35
Starfið er margt
Frábærir yngri flokkar Vals
46 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Árið 2011 var að sönnu viðburðarríkt í
starfi Fálka. Árið hófst með hefðbundn-
um nýjársfundi þar sem tekist var á um
málefni líðandi stundar og málin rædd til
mergjar. Aðalfundur félagsins var svo að
venju spyrtur saman við þorrablót félags-
ins. Á fundinum var stjórn félagsins ein-
róma endurkosin fyrir utan það að Magn-
ús Guðmundsson vék úr stjórn vegna
anna og tók Georg Páll Skúlason sæti
hans. Vill stjórn félagsins þakka Magga
fyrir vel unnin störf. Eins voru gerðar
nokkrar breytingar á lögum félagsins til
hægðarauka fyrir stjórn og eins til að
auðvelda aðkomu nýrra félaga. Þegar
hefðbundnum aðalfundarstörfum lauk
tók við frábært þorrablót þar sem félagar
og gestir skemmtu sér hið besta saman
og gerðu vel við sig í mat og drykk.
Pylsusala á heimaleikjum
Í mars var síðan hefðbundinn félagsfundur
og var þar tekinn ákvörðun um að halda
áfram með pylsusölu á heimaleikjum
meistaraflokka Vals í knattspyrnu. Er
óhætt að segja að pylsusala þessi sé eitt af
viðameiri verkefnum sem Fálkar taka sér
fyrir hendur á hverju ári og til gamans má
geta þess að okkur reiknast til að tæplega
fjögurþúsund pylsur hafi runnið ofan í
stuðningsmenn Vals og gesti í sumar.
Vorfagnaður Fálka með mökum
Í apríl var svo blásið til vorfagnaðar
Fálka sem var einum mánuði á undan
áætlun vegna stórafmælishátíðar Vals í
maí. Á vorfagnaði er venja að bjóða
mökum félaga til veislu og var svo sann-
arlega engin undantekning gerð á því í
þetta skipti. Þrjátíu og sex manns voru
mætt og skemmtu sér við heimasmíðuð
skemmtiatriði og nutu stórkostlegra veit-
inga frá hirðkokki Fálka, Lárusi Loftsyni.
Var það mál manna að þetta hefði verið
frábærlega vel heppnað í alla staði og full
ástæða til að endurtaka leikinn í sem
mest óbreyttri mynd á næsta ári.
Skemmtilegustu leikir sumarsins
Fálkar fjölmenntu svo á 100 ára afmæl-
ishátíð Vals í maí. Í sumar var svo lögum
samkvæmt enginn fundur haldinn en við
sátum þó aldeilis ekki auðum höndum,
pylsusalan var í fullum gangi og eins
stóðum við fyrir skemmtilegustu leikjum
sumarsins. Þar fá allir leikmenn 4. og 3.
flokks kvenna og karla að spreyta sig í
alvöru umgjörð á Vodafonevellinum með
fánaborgum, vallarþul o.s.frv. Í sumar
var gerð sú breyting á að 3. flokkur
kvenna atti kappi við 3. flokk karla í stór-
kostlegu veðri og frábærri stemningu.
Hylltu strákarnir nýorðna Íslandsmeist-
ara kvennaliðsins með heiðursverði og
rósaafhendingu og var gerður góður róm-
ur að riddaramennsku drengjanna.
Heilsuræktarátak í haust
Þegar haustaði tóku Fálkar svo að sér að
sjá um pylsusölu á hverfahátíð/Valsdegin-
um og vorum við einnig með kynningar-
bás þar sem við kynntum starfsemi félags-
ins og dreifðum boðsmiðum á opinn fund
í september. Það skilaði sér svo með 3
nýjum félögum sem gengu umsvifalaust
til liðs við ört stækkandi hóp og bjóðum
við þá velkomna í félagið. Eins og oft vill
gerast höfðu einhverjir félagar bætt á sig
nokkrum grömmum yfir sumarið og var
því blásið til heilsuræktarátaks sem 8
Fálkar tóku þátt í. Að loknum 8 vikum
höfðu þessar hetjur fækkað grömmunum
það mikið að í heild vorum við orðnir því
sem samsvarar einum Fálka fátækari.
Flott ráðstefna um þjálfun barna og
unglinga
Í október tók svo ráðstefnunefnd félags-
ins til starfa af miklum móð og stóðu
Fálkar fyrir einni flottustu ráðstefnu um
þjálfun barna og unglinga sem haldin
hefur verið á Íslandi. Mikill sómi fyrir
félagið og ekki spurning um að þetta
verður endurtekið í einhverju formi á
næsta ári. Nánar er sagt frá þessari ráð-
stefnu annars staðar í blaðinu og birtir
nokkrir fyrirlestrar eftir Valsþjálfara.
Fjölbreytt starfsemi og félagsstarf
Í nóvember var samkvæmt venju ekki
hefðbundinn félagsfundur, í staðinn fjöl-
menntu félagar á herrakvöld Vals og
skemmtu sér vel eins og hefð er fyrir. Í
desember var svo haldinn veglegur jóla-
og afmælisfundur í tilefni af 2ja ára af-
mæli félagsins. Þar heiðruðum við sér-
staklega Stefán Karlsson fyrrverandi
framkvæmdastjóra Vals sem reyndist okk-
ur mikill og góður bakhjarl þegar stofnun
félagsins stóð yfir og ekki síður á fyrstu
mánuðunum þegar að hið nýfædda félag
var að reyna að fóta sig í veröldinni. Eins
höfðu Fálkar í desember veg og vanda af
rúmfatasölu þar sem við vorum í hlutverki
heildsala fyrir foreldrafélög og vorum
einnig með sölu á Hlíðarenda þar sem því
var við komið. Loks má geta þess að Fálk-
ar styrktu þá yngri flokka félagsins sem
tóku á árinu þátt í mótum erlendis. Hér
hefur aðeins verið stiklað á stærstu atrið-
um í starfsemi Fálka og í raun ekki hægt
að gera tæmandi lista yfir allt sem við ger-
um og afrekum á einu ári þar sem félagar
hafa sýnt sig vera með eindæmum frjóir
og vinnufúsir þegar Valur er annars vegar.
F.h Fálka, Benóný Valur
Jakobsson formaður
Viðburðaríkt
Fálkaár 2011
Fálkar eru stoltir Valspabbar sem tóku
sig saman og stofnuðu félagsskapinn
árið 2009 til að styðja við bakið á
barna- og unglingastarfi Vals
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1–3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
Leitaðu ráða hjá okkur. Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum deildum. Við veitum faglega
og vandaða ráðgjöf og finnum réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir. Við seljum eingöngu
þrautreyndar hágæðavörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
12
8
86
DEVOLD
FYRIR ÍÞRÓTTAFÓLK
9.490 KR.9.490 KR.
9.490 KR. 8.990 KR.
DEVOLD ACTIVE BOLUR
DEVOLD EXPEDITION
BOLUR
DEVOLD EXPEDITION
BUXUR DEVOLD ACTIVE BUXUR
KK og KVK, einnig
til án renniláss
KK og KVK, margir litir
KK og KVK, margir litir KK og KVK
Devold ullarnærfatnaðurinn hentar íþróttafólki sérstaklega vel við úti
æfingar í kulda og bleytu. Devold heldur á þér hita þótt hann blotni
og andar vel þegar líkaminn hitnar.
3B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur