Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 52

Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 52
50 Valsblaðið 2011 Gunnar hefur æft handbolta síðan hann man eftir sér en byrjaði að æfa með Val 11 ára gamall. Hann segist hafa valið Val af því þar voru langbestu þjálfararnir og besta aðstaðan og hann segist hafa verið viss um að þar gæti hann orðið betri handboltamaður. Ertu í fleiri íþróttagreinum hjá Val? „Nei, er ekki í fleiri íþróttgreinum hjá Val en hef verið að æfa frjálsar íþróttir og fótbolta hjá Breiðablik á sumrin til að halda mér í góðu formi og efla fjöl- hæfni.“ Hvers vegna heldur þú að unglingar hætti að æfa íþróttir? „Strákarnir sem hafa æft með mér í gegnum tíðina og hætt, hætta af því þeir missa einfaldlega áhugann og nenna þessu ekki lengur og fara því að einbeita sér að skólanum.“ Hvernig eru hóparnir þínir núna í vet- ur? „Í vetur er ég að æfa með þremur flokkum og okkur hefur gengið býsna vel í þeim öllum. 3. flokkurinn minn hefur unnið alla sína leiki nema einn og er hóp- urinn samansafn af mjög góðum og skemmtilegum strákum. Heimir, Óskar Bjarni og Maksim eru þjálfararnir mínir og eru að mínu mati með þeim bestu þjálfurum á landinu og gæti ég ekki beð- ið um betri þjálfun.“ Segðu frá skemmtilegum atvikum úr boltanum. „Það skemmtilegasta sem ég upplifað úr boltanum var klárlega fyrsti landsleikurinn minn, þegar ég stóð með liðsfélögunum mínum að hlusta á ís- lenska þjóðsönginn.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand- boltanum? „Arnór Gunnarsson, Sturla Ásgeirsson, Stefan Kretzschmar og Mart- in Stranovsky.“ Hvað þarf til að ná langt í íþróttum? „Það þarf mjög gott hugarfar, góðan sjálfsaga og skuldbindingu, vera reiðu- búinn að fórna, gefa sig 100% fram á öll- um æfingum og leikjum og skara fram úr.“ Hvers vegna handbolti? „Ég held að aðal ástæðan af hverju ég valdi handbolt- ann var af því ég elskaði hann og allt það sem hann snerist um.“ Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl- skyldunni? „Því miður erum við bara tveir sem sagt ég og Arnór frændi en allir hinir í fjölskyldunni eru Þórsarar. Arnór spilaði hér í Val fyrir tveimur árum og varð með Val bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari auk þessa var hann valinn oft og mörgum sinnum besti hægri horna- maður deildarinnar.“ Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú fengið frá foreldrum þínum í sam- bandi við handboltann? „Í mínum aug- um á ég bestu fjölskyldu í heimi og hefði ekki getað beðið um betri stuðning frá foreldrum mínum og allri fjölskyldunni minni, t.d. má nefna allan þann kostnað sem mamma hefur lagt í mig í sambandi við handboltann, öll æfingagjöldin, keppnisferðirnar og bensínkostnaðurinn sem hún hefur eytt í mig og verð ég henni ævinlega þakklátur fyrir. Stuðning- ur foreldra er gríðarlega mikilvægur fyrir þá sem vilja ná langt en án fjölskyldunn- ar minnar hefði ég aldrei náð að vera sá handboltamaður og ég er í dag.“ Hvernig finnst þér að eigi að efla starf- ið í yngri flokkunum hjá Val í hand- bolta? „Mér finnst yngri flokka starfið hjá handboltanum í Val til fyrirmyndar og það eina sem mætti kannski breyta er hugarfarið hjá strákunum þegar þeir mæta á æfingar, þeir eiga að njóta þess að vera þjálfaðir af þjálfurum eins og t.d. Óskari Bjarna sem er aðstoðarþjálfari landsliðsins og er þessi þjálfun svo gríð- arlega sjaldgæf og verða þeir að njóta hennar og læra af henni. Þjálfararnir mættu kannski fara í skólana og kynna handboltadeildina hjá Val og einnig mætti hvetja leikmenn meistaraflokks hjá Val til að mæta á æfingar hjá yngri flokk- unum og kenna litlu krökkunum.“ Hverjir eru þínir framtíðardraumar? Hvar sérðu fyrir þér að þú verðir eftir 10 ár? „Vonandi verði ég búinn með menntaskólann og byrjaður á háskóla- námi og ef allt gengur vel verð ég von- andi atvinnumaður spilandi í þýsku Bundes ligunni.“ Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra Friðrik, 11. maí árið 1911.“ Ungir Valsarar Það mætti kannski breyta hugarfari hjá strákunum þegar þeir mæta á æfingar Gunnar Malmquist Þórsson er 16 ára og leikur handbolta með 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki Valsblaðið 2011 63 Starfið er margt Friðriksbikar Friðriksbikarinn í ár hlutu þau Ingunn Haraldsdóttir og Jón Hilmar Karlsson leikmenn 3. fl. kvenna og karla. Lollabikar Lollabikarinn í ár hlýtur Berglind Rós Ágústsdóttir, en hún varð Íslandsmeistari með 2. og 3. flokki og leikmaður í U17 ára landsliði Íslands. Markmaður yngri flokka Í vetur og sumar hafa markmenn æft vikulega á auka markmannsæfingum undir handleiðslu Ólafs Péturssonar markmannsþjálfara. Mæting hefur verið mjög góð og flestir markmannanna tekið miklum framförum. Æfingahópnum var skipt í tvo hópa þar sem annars vegar 6. og 5. flokkur karla og kvenna æfðu sam- an og hins vegar 4. og 3. flokkur sem æfðu líka saman. Á markmannsæfingum er farið yfir grunnatriði markvörslu: grip, staðsetningar, fótavinnu, skutlur, spörk o. fl. með það að meginmarkmiði að mark- menn kunni að bregðast rétt við þegar þeir eru að spila hvort sem er á æfingum eða í leikjum. Sá markmaður sem fær verðlaun fyrir mestar framfarir hefur í mörg ár verið mjög duglegur að mæta á æfingar sama hvernig hefur viðrað, verið mjög áhugasamur og tekið leiðbeining- um mjög vel. Hann er því vel að þessum verðlaunum kominn. Þessi markmaður er Jón Freyr Eyþórsson. 3. flokkur karla 3. flokkur karla átti í erfiðleikum framan af sumri. Strákarnir tóku miklum fram- förum og eftir að fyrsti sigurinn var í höfn kom sjálfstraustið og enduðu strák- arnir í 5. sæti í C riðli með 10 stig. Strák- arnir fóru á Gothia-cup í Svíþjóð og var það virkilega góð ferð bæði knattspyrnu- lega og félagslega. Sigur í riðlinum tryggði strákunum sæti í A-úrslitum mótsins, virkilega frábær árangur á þessu móti. Strákarnir voru virkir í félagsstarfi Vals og stóðu þeir ásamt stúlkunum í 3. flokki vaktina í sjoppunni á heimaleikj- um meistaraflokks karla ásamt því að sinna dómgæslustörfum fyrir félagið. En strákarnir héldu líka góðum félagslegum tengslum við 3. flokk kvenna og enduðu þeir tímabilið á því að spila leik við þær á Vodafone vellinum þar sem Fálkarnir voru með frábæra umgjörð. Það eru ljóst að 3. flokkur hefur að geyma nokkra efnilega leikmenn sem munu án efa spila með meistaraflokki Vals á komandi árum. Þjálfaraskipti urðu í flokknum í júní þegar Donni þjálfari flokksins tók við meistaraflokki Tindastóls. Þjálfarar flokksins voru Þór Hinriks- son og Elvar Már Svansson. Besta ástundun: Marteinn Högni Elías- son Mestu framfarir: Sturla Magnússon Leikmaður flokksins: Haukur Ásberg Hilmarsson Þessi góðverk opnuðu augu og hjörtu leikmanna þær urðu víðsýnni og þakklát- ar fyrir það sem þær eiga. 24 laugardaga í vetur stóð flokkurinn fyrir Íþróttaskóla Vals þar sem margir ungir iðkendur hefja göngu sína sem Valsarar. Leikmenn voru stundvísir, vinnusamir og Val til sóma í þessari grasrótarvinnu fyrir félagið. Um 70 börn mættu á námskeiðin og komust færri að en vildu. Á heimaleikjum meist- araflokks karla í Vals stóð flokkurinn sjoppuvaktina og gerði það með mikilli prýði. Flokkurinn fór í þriggja mánaðar nammibindindi yfir keppnistímabilið júní – sept. en leikmenn héldu það út mislengi eða allt frá 6 klst. – 3 mánuði. En 3 leikmenn sýndu mikinn sjálfsaga og unnu keppnina. Hljóta þær vegleg verð- laun – en þetta voru Ingunn, María og Katla. Foreldrar flokksins voru almennt mjög duglegir að koma að starfi flokks- ins en án foreldrasamstarfs er ekki hægt að leysa öll þau verkefni sem heilt tíma- bil bíður upp á. Þjálfarar vilja þó sérstak- lega þakka tveimur foreldrum, Höllu og Báru, fyrir óeigingjarna vinnu fyrir flokkinn. Þjálfarar flokksins voru Soffía Ámunda- dóttir og Margrét Magnúsdóttir. Besta ástundun: Kara Magnúsdóttir Mestu framfarir: María Soffía Júlíus- dóttir Leikmaður flokksins: Berglind Rós Ágústsdóttir 4B B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 11 12 27 6 V al ur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.