Valsblaðið - 01.05.2011, Page 74

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 74
72 Valsblaðið 2011 Nám: Er að ljúka við nám í MH. Kærasta: Katrín Gylfadóttir. Hvað ætlar þú að verða: Vonandi ríkur. Af hverju Valur: Ég held að afi minn hafi ekki tekið neitt annað í mál þegar ég var yngri. Hjá hvaða liðum hefur þú verið í handbolta: Ég hef alltaf verið í Val. Frægur Valsari í fjölskyldunni: Líklega er afi minn þekktastur, Jóhann Birgisson. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í handboltanum: Bara mjög vel, þau hafa alltaf mætt á alla leiki sem þau komast á. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni: Ég held það séu nú ekkert margir íþróttamenn í fjölskyldunni fyrir utan mig en ætli það séu ekki yngri systkini mín, mamma þykist líka hafa getað eitthvað í handbolta einhvern tím- ann fyrir aldamótin. Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að verða: Miðjumaður í fótbolta, alltof mik- ið af hlaupum. Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Halda áfram að bæta mig í handbolta og útskrif- ast úr MH. Af hverju handbolti: Mér fannst hand- boltinn bara skemmtilegri þegar ég þurfti á endanum að velja á milli hans og fót- boltans, svo er líka allt of kalt á veturna til þess að vera að æfa fótbolta. Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum: Ég var valinn á einhverjar úrtaksæfingar í fótbolta í 3. flokki en hápunkturinn í því sporti er líklega þegar við urðum Lotto- mótsmeistarar a-liða í 7. flokki í fótbolt- anum á mínu fyrsta fótboltamóti. Eftirminnilegast frá 100 ára afmælis- ári Vals: Bikarmeistaratitillinn hjá okkur á seinasta tímabili er það sem mér finnst eftirminnilegast, enda var það fyrsti al- vöru titill sem ég hef unnið. Ein setning eftir tímabilið: Bikarkeppn- in er skemmtileg. Hvernig gengur í vetur: Vonandi bara vel. Besti stuðningsmaðurinn: Konni fær þann heiður. Erfiðustu samherjarnir: Það gat tekið á að vera með Frikka markmanni sem var hjá okkur í fyrra í upphitunarboltanum, hann var ekkert sérstakur í fótbolta þó hann hafi haldið öðru fram. Erfiðustu mótherjarnir: Ég veit það ekki, nema kannski Fram í yngri flokkun- um, okkur gekk alltaf frekar illa með þá. Mesta prakkarastrik: Einhvern tímann í einhverri handboltaferð á Akureyri þá dingluðum við á bjöllur hjá fólki og hlupum í burtu svo biðu nokkrir strákar tilbúnir með snjóbolta og köstuðu í þá sem komu til dyra, ef ég man rétt þá var þjálfarinn okkar á þessum tíma með okk- ur í þessu. Fyndnasta atvik: Það var þegar við vor- um í handboltaferð fyrir einhverjum árum. Þegar við vorum að fara sofa eitt kvöldið þá hélt einn liðsfélagi okkar að allir væru sofnaðir og ætlar að gera vel við sig. Við komum allir upp um hann og það var virkilega fyndið. Stærsta stundin: Ætli það sé ekki bara bikarmeistaratitillinn á seinasta tímabili. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki kvenna hjá Val: Katrín Gylfa- dóttir í fótboltanum. Athyglisverðasti leikmaður í meistara- flokki karla hjá Val: Kolbeinn Kárason í fótboltanum, hef heyrt að hann sé ágæt- is boxari líka. Í handboltanum eru það líklega ,,bræðurnir“ Maggi Hollywood og Gunnar Harðarson, þeir eru skemmti- legt combo. Hvernig líst þér á yngri flokkana í handbolta hjá Val: Mér líst bara nokkuð vel á þá, hef eitthvað tekið þátt í þjálfa þá og ég held að framtíðin sé björt. Eftirminnilegasti þjálfari þinn: Ætli það sé ekki Hannes Jón Jónsson sem þjálfaði mig í 6. flokki. Hvað lýsir þínum húmor best: Kald- hæðinn og svolítið svartur húmor. Fleygustu orð: Mér finnst bollur ekkert góðar, borða bara svona 4 á bolludaginn. Þetta var þegar ég hélt því fram að ég borðaði ekki bollur á bolludeginum. Mottó: Hakuna matata. Leyndasti draumur: Ætli það sé ekki bara að geta sungið, því miður er það eitthvað sem ég er ekki beðinn um að gera mikið af. Við hvaða aðstæður líður þér best: Í Fifa með strákunum, tapa aldrei. Hvaða setningu notarðu oftast:,,Ég veit það ekki“. Skemmtilegustu gallarnir: Ætli skemmti- legasti gallinn sé ekki sá sem gaf mér við- urnefnið ,,læðan“. Framtíðarfólk Ég vil sjá unga uppalda leikmenn koma upp í meistaraflokkana hjá Val Atli Már Báruson er tvítugur og leikur handbolta með meistaraflokki Konni kónugur, stuðningsmaður nr. 1 og Atli Már. Valsblaðið 2011 73 Starfið er margt Fyrirmynd þín í handbolta: Þegar ég var yngri hélt ég mikið upp á Valsarana Ólaf Stefánsson, Geir Sveinsson, Guð- mund Hrafnkels og Dag Sigurðsson. Draumur um atvinnumennsku í hand- bolta: Hann er til staðar. Draumur um að leika á Ólympíuleik- unum í London 2012: Það byrjaði bara sem grín hjá okkur strákunum þar sem Bretland er að halda Ólympíuleikana. Síðan fyrir einhverju síðan sendi Ingvar markmaður mér póst á facebook þar sem verið var að leita að handboltamönnum sem gætu leikið fyrir breska landsliðið. Ég ákvað að senda inn umsókn og fékk svo svar nokkrum dögum síðar um að þeir hefðu áhuga á að bjóða mér á reynslu til þeirra, en ég þyrfti fyrst að fá breskt ríkisfang. Blóðfaðir minn er bresk- ur en ég hef aldrei verið í miklu sam- bandi við hann. Núna þarf ég bara að ná sambandi við hann og fá einhverjar upp- lýsingar um hann svo ég geti sent inn umsókn um að fá breskt ríkisfang og þá get ég farið út á reynslu til þeirra. Landsliðsdraumar þínir: Ég held að allir handboltamenn og bara íþróttamenn yfir höfuð dreymi um að spila fyrir lands- liðið. Besta hljómsveit: Coldplay og Mumford and Sons eru góðar. Besta bíómynd: Anchorman alltaf góð. Besta bók: Biblían. Besta lag: The circle of life. Uppáhaldsvefsíðan: skoða facebook og fotbolti.net alltof mikið. Uppáhaldsfélag í enska boltanum: Chelsea. Eftir hverju sérðu mest: Að hafa verið svona latur í náminu í MH og ekki út- skrifast seinasta vor. Nokkur orð um núverandi þjálfara: Hann er góður þjálfari. Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd- ir þú gera: Myndi halda áfram að byggja upp gott yngriflokkastarf því það er einn mikilvægast þátturinn í því ef Valur ætlar að halda áfram að vera í fremstu röð. Svo myndi ég líka láta stækka handboltaklef- ann og gera hann jafn stóran og fótbolta- klefann. Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar- enda: Hún er eins og hún gerist best. Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu árum: Eins og allir Valsmenn vil ég halda áfram að sjá titla koma í hús og sjá unga uppalda leikmenn koma upp í meistaraflokkana. Tjútt Salsa Break Street Mambó Hip Hop Freestyle Brúðarvals Barnadansar Ballroomdansar Suður-amerískir dansar Sérnámskeið fyrir hópa Börn – Unglingar – Fullorðnir Innritun og upplýsingar á dansskoli.is eða í síma 553 6645 5A B lack Y ellow M agenta C yan 5 1112276 V alur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.