Valsblaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 74
72 Valsblaðið 2011
Nám: Er að ljúka við nám í MH.
Kærasta: Katrín Gylfadóttir.
Hvað ætlar þú að verða: Vonandi ríkur.
Af hverju Valur: Ég held að afi minn
hafi ekki tekið neitt annað í mál þegar ég
var yngri.
Hjá hvaða liðum hefur þú verið í
handbolta: Ég hef alltaf verið í Val.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Líklega
er afi minn þekktastur, Jóhann Birgisson.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
handboltanum: Bara mjög vel, þau hafa
alltaf mætt á alla leiki sem þau komast á.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni: Ég held það séu nú ekkert
margir íþróttamenn í fjölskyldunni fyrir
utan mig en ætli það séu ekki yngri
systkini mín, mamma þykist líka hafa
getað eitthvað í handbolta einhvern tím-
ann fyrir aldamótin.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða: Miðjumaður í fótbolta, alltof mik-
ið af hlaupum.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Halda
áfram að bæta mig í handbolta og útskrif-
ast úr MH.
Af hverju handbolti: Mér fannst hand-
boltinn bara skemmtilegri þegar ég þurfti
á endanum að velja á milli hans og fót-
boltans, svo er líka allt of kalt á veturna
til þess að vera að æfa fótbolta.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Ég var valinn á einhverjar úrtaksæfingar
í fótbolta í 3. flokki en hápunkturinn í því
sporti er líklega þegar við urðum Lotto-
mótsmeistarar a-liða í 7. flokki í fótbolt-
anum á mínu fyrsta fótboltamóti.
Eftirminnilegast frá 100 ára afmælis-
ári Vals: Bikarmeistaratitillinn hjá okkur
á seinasta tímabili er það sem mér finnst
eftirminnilegast, enda var það fyrsti al-
vöru titill sem ég hef unnið.
Ein setning eftir tímabilið: Bikarkeppn-
in er skemmtileg.
Hvernig gengur í vetur: Vonandi bara
vel.
Besti stuðningsmaðurinn: Konni fær
þann heiður.
Erfiðustu samherjarnir: Það gat tekið á
að vera með Frikka markmanni sem var
hjá okkur í fyrra í upphitunarboltanum,
hann var ekkert sérstakur í fótbolta þó
hann hafi haldið öðru fram.
Erfiðustu mótherjarnir: Ég veit það
ekki, nema kannski Fram í yngri flokkun-
um, okkur gekk alltaf frekar illa með þá.
Mesta prakkarastrik: Einhvern tímann
í einhverri handboltaferð á Akureyri þá
dingluðum við á bjöllur hjá fólki og
hlupum í burtu svo biðu nokkrir strákar
tilbúnir með snjóbolta og köstuðu í þá
sem komu til dyra, ef ég man rétt þá var
þjálfarinn okkar á þessum tíma með okk-
ur í þessu.
Fyndnasta atvik: Það var þegar við vor-
um í handboltaferð fyrir einhverjum
árum. Þegar við vorum að fara sofa eitt
kvöldið þá hélt einn liðsfélagi okkar að
allir væru sofnaðir og ætlar að gera vel
við sig. Við komum allir upp um hann og
það var virkilega fyndið.
Stærsta stundin: Ætli það sé ekki bara
bikarmeistaratitillinn á seinasta tímabili.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Katrín Gylfa-
dóttir í fótboltanum.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Kolbeinn Kárason
í fótboltanum, hef heyrt að hann sé ágæt-
is boxari líka. Í handboltanum eru það
líklega ,,bræðurnir“ Maggi Hollywood
og Gunnar Harðarson, þeir eru skemmti-
legt combo.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í
handbolta hjá Val: Mér líst bara nokkuð
vel á þá, hef eitthvað tekið þátt í þjálfa
þá og ég held að framtíðin sé björt.
Eftirminnilegasti þjálfari þinn: Ætli
það sé ekki Hannes Jón Jónsson sem
þjálfaði mig í 6. flokki.
Hvað lýsir þínum húmor best: Kald-
hæðinn og svolítið svartur húmor.
Fleygustu orð: Mér finnst bollur ekkert
góðar, borða bara svona 4 á bolludaginn.
Þetta var þegar ég hélt því fram að ég
borðaði ekki bollur á bolludeginum.
Mottó: Hakuna matata.
Leyndasti draumur: Ætli það sé ekki
bara að geta sungið, því miður er það
eitthvað sem ég er ekki beðinn um að
gera mikið af.
Við hvaða aðstæður líður þér best: Í
Fifa með strákunum, tapa aldrei.
Hvaða setningu notarðu oftast:,,Ég veit
það ekki“.
Skemmtilegustu gallarnir: Ætli skemmti-
legasti gallinn sé ekki sá sem gaf mér við-
urnefnið ,,læðan“.
Framtíðarfólk
Ég vil sjá unga uppalda
leikmenn koma upp í
meistaraflokkana hjá Val
Atli Már Báruson er tvítugur og leikur
handbolta með meistaraflokki
Konni kónugur, stuðningsmaður nr. 1 og Atli Már.
Valsblaðið 2011 73
Starfið er margt
Fyrirmynd þín í handbolta: Þegar ég
var yngri hélt ég mikið upp á Valsarana
Ólaf Stefánsson, Geir Sveinsson, Guð-
mund Hrafnkels og Dag Sigurðsson.
Draumur um atvinnumennsku í hand-
bolta: Hann er til staðar.
Draumur um að leika á Ólympíuleik-
unum í London 2012: Það byrjaði bara
sem grín hjá okkur strákunum þar sem
Bretland er að halda Ólympíuleikana.
Síðan fyrir einhverju síðan sendi Ingvar
markmaður mér póst á facebook þar sem
verið var að leita að handboltamönnum
sem gætu leikið fyrir breska landsliðið.
Ég ákvað að senda inn umsókn og fékk
svo svar nokkrum dögum síðar um að
þeir hefðu áhuga á að bjóða mér á
reynslu til þeirra, en ég þyrfti fyrst að fá
breskt ríkisfang. Blóðfaðir minn er bresk-
ur en ég hef aldrei verið í miklu sam-
bandi við hann. Núna þarf ég bara að ná
sambandi við hann og fá einhverjar upp-
lýsingar um hann svo ég geti sent inn
umsókn um að fá breskt ríkisfang og þá
get ég farið út á reynslu til þeirra.
Landsliðsdraumar þínir: Ég held að
allir handboltamenn og bara íþróttamenn
yfir höfuð dreymi um að spila fyrir lands-
liðið.
Besta hljómsveit: Coldplay og Mumford
and Sons eru góðar.
Besta bíómynd: Anchorman alltaf góð.
Besta bók: Biblían.
Besta lag: The circle of life.
Uppáhaldsvefsíðan: skoða facebook og
fotbolti.net alltof mikið.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Chelsea.
Eftir hverju sérðu mest: Að hafa verið
svona latur í náminu í MH og ekki út-
skrifast seinasta vor.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Hann er góður þjálfari.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Myndi halda áfram að byggja
upp gott yngriflokkastarf því það er einn
mikilvægast þátturinn í því ef Valur ætlar
að halda áfram að vera í fremstu röð. Svo
myndi ég líka láta stækka handboltaklef-
ann og gera hann jafn stóran og fótbolta-
klefann.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Hún er eins og hún gerist best.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Eins og allir Valsmenn vil ég
halda áfram að sjá titla koma í hús og sjá
unga uppalda leikmenn koma upp í
meistaraflokkana.
Tjútt
Salsa
Break
Street
Mambó
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Ballroomdansar
Suður-amerískir dansar
Sérnámskeið fyrir hópa
Börn – Unglingar – Fullorðnir
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
5A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
5
1112276 V
alur