Valsblaðið - 01.05.2011, Side 83
Valsblaðið 2011 81
Starfið er margt
túnin og raka. Einhver yrði að vinna smá-
verkin, sem voru óteljandi.
Svo lauk æsku- og unglingsárunum og
ég kvaddi Hlíðarenda. Ég fór með glaðar
minningar og nokkurt nesti til lífsins, en
ég fór líka í skuld vegna alls þess sem ég
hafði notið. Ég vissi alltaf samt að sá
dagur kæmi að ég greiddi til baka, þó
ekki væri nema brot af minni skuld. Í
mörg ár lifði ég með þessari skuld, sem
reyndist svo ekki vera skuld, heldur lán
og tækifæri til að láta gott af sér leiða.
Forseti Íslands sagði á afmæli Vals að
það væri gæfa fyrir æsku landsins að eiga
Val. Það er vissulega rétt. Það er svo
gæfa Vals að hafa átt Úlfar og Frímann,
Andreas, Sigurð Ólafs og Sigga Mar. og
Robba Jóns. og séra Friðrik. Þeir sem ég
hef nefnt hér að framan eru gæfa Vals.
Ég hefði getað nefnt fleiri sem verð-
skulda lof og prís en nefni þessa sem ég
man úr minni æskutíð. Ég sá aldrei sr.
Friðrik, en mér þykir svona hópmynd
ómöguleg án hans.
Engan vantaði á fundinn, því enginn vildi
vera sá sem vantaði á hópmyndina, ef
hún skyldi verða tekin. Úlfar Þórðarson
var hættur að vera formaður Vals. Nú
lagði hann af kappi drenrör sem ræstu
grasvöllinn. Mig grunar að hann hafi
greitt fyrir rörin sjálfur, en um það veit
ég ekki. Ég sat í grænum Austin Gipsy
jeppa Úlfars, hjá Sveini syni hans, og við
ókum til hans rörum af hinum enda vall-
arins. Úlfar var því feginn að þurfa ekki
að eyða dýrmætum tíma í akstur. Þá var
ökuþórinn Svenni Úlfars 10 ára og að-
stoðarmaður hans hálfu ári eldri.
Ég las í gömlu blaði um daginn að
Andreas hefði stjórnað 800 vörubíls-
hlössum af rauðmöl í undirstöðu gamla
malarvallarins árið sem ég fæddist. Hann
var enn við sjálfboðastörf 34 árum síðar.
Sigurður Ólafsson vann fleiri titla fyrir
Val en aðrir félagsmenn. Hann var líka
formaður Vals en hætti því. Hann taldi
réttara að finna annan formann; þá gæti
hann nefnilega haldið áfram að byggja
hús og dytta að og naglhreinsa og slá
Þorsteinn Haraldsson að halda fyrir-
lestur um sr. Friðrik Friðriksson 25. maí
2011 á samkomu sem var helguð sr.
Friðriki á afmælisdegi hans, en Þor-
steinn er sérfróður um líf og starf hans.
GLÆSIVEISLUR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
ÁRSHÁTÍÐIR
BRÚÐKAUP
s. 553 7737 I www.mulakaffi.is
FERMINGARVEISLUR
STÓRAFMÆLI
ERFIDRYKKJUR
JÓLAHLAÐBORÐ
SMÁRÉTTAHLAÐBORÐ
ÞORRAVEISLUR
KOKTEILBOÐ
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
96 Valsblaðið 2011
Ferðasaga
með leik Þórs og Vals í 4. flokki karla.
En þar báru Þórsarar sigur úr býtum í
fremur jöfnum leik. Eftir að hafa komið
lofti í vindsængurnar og komið okkur
fyrir fóru strákarnir á smá flandur um
skólann til að skoða hverjir væru hvar og
hvað væri að finna á hverjum stað. Borð-
tennisborðin, fótboltaspilið og skákborð-
ið fundust strax og lokaði leynigangurinn
niður í kjallara sömuleiðis. Valsstrákarnir
voru ekki beint himinlifandi þegar ég
sagði þeim að við yrðum að vakna um kl.
8 á laugardagsmorgninum þó svo að við
ættum ekki að spila fyrr en um miðjan
dag. Uppgefin ástæða var sú að við yrð-
um að vera búnir að borða morgunmat
fyrir kl. 9 vegna þess að eftir þann tíma
var morgunmatur ekki í boði. En þess
utan vildi ég vera viss um að drengirnir
færu snemma að sofa á laugardeginum
því við yrðum að vakna kl. 7 á sunnu-
dagsmorguninn. Ég hafði varað strákana
við því að ég hryti eins og loftpressa og
eina ráðið til að verjast því væri að sofna
á undan mér. Engar fékk ég kvartanirnar
næsta morgun. En ég sagði strákunum að
sennilega væri eini tíminn sem við hefð-
um til að komast í sund fyrir hádegi á
laugardeginum. Fæstir tóku það í mál og
sögðust verða svo þreyttir eftir sundið,
þeir vildu því frekar verja morgninum í
klifurgrindinni utan við skólann eða í elt-
ingarleik (eins og menn sjá eru strákarnir
miklir spekingar í því hvað veldur þreytu
og hvað ekki). Úr varð að við fórum bara
fjórir í sund. Reyndar vorum við svo
snemma á ferðinni að laugin var lokuð.
Við röltum því niður á Bauta og fengum
okkur kaffi og heitt súkkulaði. En þegar
við komum kl. 10 að lauginni var komin
mikil röð af fólki sem beið eftir að hún
yrði opnuð. Bærinn var orðinn fullur af
fólki því það var ekki bara handboltamót
í bænum heldur fór söngkeppni fram-
haldsskólanna fram á sama tíma auk þess
sem ofurhugar á skíðum og snjóbrettum
héldu sitt mót um helgina.
stutt í Borgarnesi og Varmahlíð til að gefa
sprengþjáðum blöðrum færi á því að
skjótast á snyrtinguna. Íþróttafréttaritarinn
hefur það fyrir sið á leið sinni um Húna-
þing að koma tölu á þúfurnar í héraðinu.
Aðstæður til talninga voru fremur góðar.
Bjartviðri og snjór í dældum svo þúfna-
kollarnir stóðu upp úr snjónum. Talningu
er ekki lokið að fullu en nýjustu tölur sýna
að þúfurnar eru a.m.k. 137.864.352. En
hafa ber í huga að eftir er að telja, neðan
vegar í Hrútafirði og líklega á tveimur bú-
jörðum. En talningu verður fram haldið í
næstu ferðum.
Halló Akureyri!
Klukkan var ekki orðin þrjú þegar við
komum til Akureyrar. Haukastelpurnar
færðu sig yfir í HK rútuna og urðu sam-
ferða þeim til Húsavíkur. En við urðum
að finna okkur eitthvað til dundurs þar
sem kennsla var í fullum gangi í skólan-
um og við áttum ekki að fá afhentar stof-
ur fyrr en kl. 17. Móttökustjórinn sagði
okkur að við mættum koma kl. 16. Við
héldum því niður í bæ til að stytta okkur
stundir. Ekið var niður að sívalningi sem
liggur á hliðinni neðan Drottningarbraut-
ar. Þar var rútunni lagt og strákarnir hóf-
ust handa við að útbúa landfyllingar til
að auka landrými heimamanna. Mátti sjá
litlar steinvölur og stærðarinnar grettis-
tök gossa í sjóinn með tilheyrandi skvett-
um. Á sama tíma ákváðum við fullorðna
fólkið að slökkva kaffiþorstann í mið-
bænum.
Síðuskóli
Stofurnar fengum við afhentar kl. 16 í
Síðuskóla. Fengum við Valsmenn úthlut-
að stofu nr. 13 en Heiðar Þór Aðalsteins-
son sem stýrði Valsliðinu í leikjunum
sagði okkur að þetta væri gamla stærð-
fræðistofan sín. Um leið og við losuðum
okkur við farangurinn þá fylgdumst við
Upphaflega stóð til að Valsstrákar færu
með þjálfara og fararstjóra á smárútu, en
þegar til kom þá var engin smárúta laus
hjá þeirri bílaleigu sem við höfum notið
bestu kjara og aðrar voru einfaldlega of
dýrar til að við gætum leigt af þeim. Þá
höfðum við samband við HK um að deila
rútu með þeim en þegar til kom reyndist
það ekki unnt. En að endingu var leitað
til Hauka um að fara samferða þeim og
reyndist það auðsótt mál.
Ýmsir af Valsstrákunum höfðu í upp-
hafi látið í ljósi efasemdir um ferðina
norður. Einhver sagði: „Þetta verður
ábyggilega ekkert gaman fyrst stelpurnar
verða ekki með eins og síðast!“ og aðrir
áttu erfitt með að sætta sig við að ferðast
með öðru liði sem þeir hafa litið á sem
andstæðinga í boltanum. En Valsstrák-
arnir áttu eftir að taka gleði sína.
Haldið norður
Ferð okkar hófst við Hlíðarenda á föstu-
dagsmorgun. Rútan mætti skömmu fyrir
kl. 8:30. Haukar höfðu tekið frá nokkrar
sætaraðir fyrir okkur Valsmenn í miðri
rútunni. Aftast höfðu strákarnir úr Hauk-
um komið sér fyrir en fyrir framan okkur
sátu Haukastelpurnar úr 5. flokki sem
voru á leið til Húsavíkur að keppa við
stöllur sínar úr öðrum liðum. Áætlunin
gerði ráð fyrir því að við myndum maula
nestið okkar í Staðarskála og halda rakleitt
til Akureyrar og vera komin þangað um
miðjan dag, þar sem Haukastelpurnar áttu
eftir tveggja tíma ferð til Húsavíkur. Allt
gekk þetta eftir en auk þess var stoppað
Leiðangur 5. flokks karla á
handboltamót á Akureyri
Í haust sameinuðust Valur og Haukar í rútuferð til Akureyrar til að keppa
á lokatörn Íslandsmótsins í handbolta í 5. flokki yngra árs karla
6A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
6
11
12
27
6
V
al
ur