Valsblaðið - 01.05.2011, Page 97
82 Valsblaðið 2011
Morgan hefur æft handbolta með Val í 4
ár og hefur búið í Hlíðunum frá 6 ára
aldri og segir að af þeim sökum hafi leg-
ið beinast við að ganga til liðs við Hlíð-
arendastórveldið.
Hvernig kom það til að þú fékkst tæki-
færi að spila með landsliði Bandaríkj-
anna? „Þegar ég var 14 ára þá heyrði ég
að Bandaríkin voru að reyna að endur-
byggja handboltaferil þar í landi og þar
sem ég er hálf- bandarísk þá sendi ég
þeim póst um að ég hefði áhuga á að
spila. Seinna um árið þá var ég valin í
U16-landsliðsúrtakshópinn og eftir það
hef ég verið að spila með U16, U19 og
U21 landsliði Bandaríkjanna. Svo í des-
ember sl. þá komst ég í A landsliðið
ásamt nokkrum sem ég hafði verið að
spila með í U21. Við áttum að keppa á
móti Kanada, sem var líka að reyna að
endurbyggja handboltann þar í landi, til
að komast á Ameríkuleikana í Mexico.
Eftir tvo leiki þá voru það Bandaríkin
sem enduðu sem sigurvegarar og vorum
því á leið til Mexico.”
Hvað var efirminnilegast við þetta æv-
intýri? „Ég myndi segja seinni leikurinn
við Kanada sem við spiluðum í Quebec,
með alla á móti okkur og brjálaða kana-
díska áhorfendur í standinum, eftirminni-
legast því við unnum með 5 mörkum í
erfiðum leik. Það var kannski besta til-
finningin sem ég hef fengið eftir unninn
leik því Bandaríkin höfðu ekki komist á
Ameríkuleikana í langan tíma og við vor-
um flestar með tár í augunum. Síðan
hófst undirbúningurinn í ágúst og við
æfðum saman í 5 vikur í New York áður
en haldið var suður til Mexíco. Þegar
komið var til Mexico þá áttum við
nokkra daga til undirbúnings og aðlögun-
ar og síðan var keppt. Áður en þú vissir
af þá var ferðin á enda. Staðreyndin var
sú að við vorum ekki á leið á Ólympíu-
leikana en við vorum allar mjög ánægðar
fyrir að hafa farið og þakklátar fyrir frá-
bæra reynslu fyrir hönd Bandaríkjanna.”
Hvernig gekk ykkur á síðasta tímabili
og hvað er eftirminnilegast úr keppn-
isferðinni sl. sumar til Ítalíu? „Okkur
gekk vel á síðasta tímabili en síðustu
leikirnir snerust ekki í okkar hag og við
komumst því ekki í úrslitaleik á Íslands-
mótinu. Eftirminnilegast fannst mér ít-
alski ísinn, sem við gjörsamlega lifðum
á.”
Hvernig er hópurinn núna í vetur?
„Mér finnst við hafa mjög góðan og fjöl-
breyttan hóp og ég hef fulla trú að við
eigum eftir að gera marga góða hluti
saman í vetur. Í heildina þá hefur okkur
gengið vel en tímabilið er rétt svo að
byrja svo enginn veit nákvæmlega hvar
við eigum eftir að standa. Ég er núna að
spila með 3. fl. og æfi með meistara-
flokki. Þjálfararnir mínir eru þau Karl
Erlingsson og Hrafnhildur Skúladóttir.
Fyrirmyndir í boltanum. „Fyrirmynd-
irnar mínar er Ólafur Stefánsson og Guð-
jón Valur Sigurðsson. “
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Til að ná langt í íþróttum verður maður
aðallega að hafa rétt hugarfar og það
krefst mikillar skuldbindingar og auk
þess ætti maður að hafa sitthvað af sjálf-
saga og sjálfstrausti. Að mínu mati eru
það aukaæfingarnar sem gera mann góð-
an.“
Aðrar íþróttagreinar? „Ég æfði ballett í
5 ár en svo hef ég líka æft fótbolta,
körfubolta og frjálsar.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl-
skyldunni? „Foreldrar mínir æfðu aldrei
með Val en eru engu að síður miklir Vals-
arar, svo eru jú systkinin í yngri flokkun-
um.“
Stuðningur fjölskyldu. „Stuðningur for-
eldra minna er ómetanlegur. Ég fæ stuðn-
ing úr allri fjölskyldunni en mest kemur
hann frá mömmu minni, enda er hún allt-
af mætt þegar leikur hefst. Ég bý í fimm
mínútna göngu frá Valsheimilinu og oft á
tíðum eru það foreldrar mínir sem nenna
að dröslast með mig á bíl fyrir æfingu
þegar maður nennir ekki sjálfur og þakka
ég þeim fyrir þessa „waste of gas“- mó-
ment eins og mamma mín segir alltaf.
Mamma mín er auk þess einkaþjálfari og
hefur hún hjálpað mér mikið með auka-
þjálfun í þreki og styrktaræfingum í
tækjasalnum. Ég met stuðning foreldra
minna mikils og eru það þeir sem styðja
mann áfram þegar maður er undir í leik.”
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Markmið mitt er að fá að spila með
meistaraflokki Vals og síðar kannski að
fara í atvinnumennskuna. Ég á mér samt
leyndan draum um að komast á Ólymp-
íuleikana. Mig langar að verða læknir en
hef þó ekki pælt neytt mikið í því hvern-
ig það myndi tvinnast á móti handboltan-
um. Eftir 10 ár verð ég vonandi komin í
atvinnumennskuna og búin eða að klára
læknisnámið.”
Hvað finnst þér mikilvægast að gera til
að efla handboltann hjá Val? „Mér
finnst æfingar fyrir markmenn hjá yngri
flokkunum, sérstaklega hjá stelpum,
vanta gríðarlega. Það ætti að byrja að
byggja upp alveg frá ungum aldri. Svo
væri góð hugmynd að frá 14 ára aldri
ætti að byrja að fræða krakkana um nær-
ingarfræði og gott matarræði því það er
akkúrat á þessum árum sem leikmenn
fara úr því að vera ekki bara hæfileika-
ríkir heldur sterkir og hraðir. Til að bæta
tengsl milli deilda þá væri það frábært ef
fólk myndi ekki bara styðja sína eigin
íþrótt heldur fara á leiki hjá öðrum og
styðja þá til sigurs, því bættur stuðningur
getur skapað bættan leik.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik árið 1911.”
Ungir Valsarar
Ég á mér draum að spila
handbolta á Ólympíuleikunum
Morgan Þorkelsdóttir er 16 ára og
leikur handbolta með 3. flokki
Valsblaðið 2011 95
Félagsstarf
Árið 1945 var stofnað fulltrúaráð Vals.
Fyrsti formaður þess var Sveinn Zoega
og stýrði hann ráðinu fyrstu tíu árin. Því
var ætlað að vera nokkurs konar akkeri
félagsins og var m.a. sett í lög félagsins
að Knattspyrnufélagið Valur mætti ekki
takast á hendur neinar meiri háttar fjár-
hagslegar skuldbindingar án þess að til
kæmi samþykki fulltrúaráðsins.
Fulltrúaráðsfundir
Ráðið hefur starfað af mismiklum krafti í
gegnum tíðina og leið fyrir það m.a. þeg-
ar framkvæmdir stóðu sem hæst á Hlíð-
arenda að ekki var auðvelt um húsnæði
fyrir fundi þess. Auk þess að halda
nokkra fundi á ári þar sem gjarnan er
fjallað um helstu málefni og stöðu félags-
ins hefur einkum verið hugað að því að
fastsetja inn í dagskrá félagsins árlega at-
burði. Í dag má segja að nokkur hugðar-
efni félaga ráðsins séu orðin prýðilega
staðsett í starfi Vals.
Golfmót Vals
Golfmót Vals sem upphaflega var sett á
laggirnar af Garðari Kjartanssyni sem
lagði sig fram um margra ára skeið. Sum-
arið 2010 var síðan spýtt í lófa og sam-
hentur hópur skipaður Pétri Guðmunds-
syni, Ómari Sigurðssyni, Jóni Halldórs-
syni, Örnu Grímsdóttur, Gunnari Þór
Jóhannssyni, Inga Rafni Jónssyni og Kol-
brúnu Franklín tók að sér framkvæmd-
ina. Framkvæmdin í fyrra og í sumar
tókst með miklum ágætum og ljóst að
mótið er komið til að vera um ókomin ár.
Herrakvöld Vals
Herrakvöld Vals sem er haldið fyrsta
föstudag í nóvember tókst að flestra mati
betur en nokkru sinni fyrr. Aðsókn er
orðin stöðug u.þ.b. þrjú hundruð og sam-
koman fáguð og félaginu til sóma.
Bridgemót Vals
Bridgemót Vals er með sama hætti búið
að festa sig í sessi sem skemmtilegt mót
sem laðar m.a. að spilara úr öðrum fé-
lögum sem er skemmtilegt. Örn Ingólfs-
son hefur leitt þetta mót með sóma.
Skákmót Vals
Skákmót Vals er mót sem þarf að leggja
meiri alúð við og ná upp á hærra plan
ekki síst þar sem Hrókurinn, verðlauna-
gripur sem teflt var um til fjölda ára hér
áður fyrr kom í leitirnar þegar minja-
nefndin hóf sitt mikilvæga starf.
Minjanefnd
Minjanefnd var sett aftur á laggirnar á
haustmánuðum í fyrra. Til að setja nefnd-
armenn í rétta gírinn var blásið til heim-
sóknar upp á Akranes þar sem heima-
menn hafa unnið frábært starf í varð-
veislu sögu sinna íþrótta. Skagamenn
tóku á móti hópnum af sérdeilis myndar-
skap og vorum við Valsmenn nánast gátt-
aðir á höfðingskapnum. Minjanefndin
sem skilaði feykigóðu starfi í aðdraganda
100 ára afmælisins er skipuð Magnúsi
Ólafssyni formanni, Margréti Bragadótt-
ur, Ægi Ferdinandssyni, Ólafi Má Sig-
urðssyni, Nikulási Úlfari Mássyni, Krist-
jáni Ásgeirssyni, Óskari Jóhannessyni,
Hermanni Gunnarssyni (smið) og Helga
Benediktssyni. Til þess að þakka Skaga-
mönnum fyrir móttökurnar var þeim boð-
ið á Hlíðarenda s.h. september. Boðið var
upp á veitingar frá Lárusi Loftssyni og til
máls tóku m.a. Þorgrímur Þráinsson sem
ræddi væntanlega afmælisbók, Sig-
umundur Steinarsson sem sagði frá fyrri
bók sinni um sögu knattspyrnunar á Ís-
landi sem KSÍ gaf út, Gísli Gíslason og
Haraldur Sturlaugsson höfðu einkum orð
fyrir Skagamenn og tókst vel til. Síðan
sungu Bára Grímsdóttir tónskáld og
stjórnandi Valskórsins og Chris Foster
nokkur lög við góðar undirtektir.
Öflug starfsemi
fulltrúaráðs Vals
Eftir Halldór Einarsson formann fulltrúaráðsins
Nokkrir Skagamenn hafa leikið
með liði Vals svo sem Helgi Daní-
elsson, Matthías Hallgrímsson, Jón
Vilhelm Ákason, Baldur Aðal-
steinsson (uppalinn Skagamaður),
Hallbera Guðný Gísladóttir, Helga
Sjöfn Jóhannesdóttir, Reynir Leós-
son, Arnar Gunnlaugsson, Bjarki
Gunnlaugsson, Jóhannes Gíslason,
Ellert Jón Björnsson, Garðar
Gunnlaugsson, og Hálfdán Gísla-
son. Svo má nefna að þeir Gunn-
laugur Jónsson og Hörður Helga-
son voru um tíma þjálfarar Vals.
Frá komu Skagamanna á Hlíðarenda í september 2011. Í fremstu röð frá vinstri:
Haraldur Sturlaugsson, Gísli Gíslason, Ingi Björn Albertsson, Helgi Daníelsson,
Gunnar Sigurðsson. Efri raðir frá vinstri; Jón Gunnlaugsson, Óskar Jóhnannesson,
Nikulás Úlfar Másson, Einar Guðleifsson, Sigurður Haraldsson, Bjarni Bjarnason,
Elías Hergeirsson, Davíð Kristjánsson, Róbert Jónsson, Örn Steinsen(K.R.), Björn
Lárusson, Bára Grímsdóttir, Karl Harry Sigurðsson, Halldór Einarsson, Guðjón Guð-
mundsson, Sigurður Jónsson, Sturlaugur Sturlaugsson, Jóhann Albertsson, Stefán Þor-
mar Guðmundsson, Chris Foster, Ásgeir Óskarsson og Stefán Runólfsson (ÍBV).
6B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur