Valsblaðið - 01.05.2011, Side 99

Valsblaðið - 01.05.2011, Side 99
Valsblaðið 2011 97 inni að það væri farið að kólna og rign- ingin sem hafði fylgt óveðrinu hefði breyst í slyddu og það væri kominn þykkur krapi á Holtavörðuheiði. Vega- gerðin myndi ekki reyna að ryðja heiðina fyrr en í fyrsta lagi kl. 6 á mánudags- morgun. Þar með var það ljóst að ekki yrði farið um Holtavörðuheiði. En af því bárust fréttir að einhverjir á einkabíl eða jeppa hefðu farið um Laxárdalsheiði yfir í Dali. Bílstjórarnir voru nú á fullu að afla frétta um veður og færð með það í huga hvort mögulegt væri að krækja fyrir veðrið með því að fara um Dali og Hey- dal. Áætlunarbíllinn frá Akureyri ákvað að reyna þá leið. Ekki vildum við fylgja honum þar sem við vildum alls ekki leggja í neina tvísýnu með fulla rútu af krökkum. Þegar rútubílstjórinn okkar náði loks sambandi við áætlunarbílinn þegar hann var kominn í Dalina sagði hann afdráttarlaust að veðrið væri þannig að rútur ættu alls ekki að vera á ferðinni í slíku veðri. Þar með lá það loksins fyrir. Við gistum á Reykjum. Reykir Um leið og við komum í Staðarskála gerðum við okkur grein fyrir að við gæt- um þurft að halda kyrru fyrir um nóttina. Það var því strax gengið í það að tryggja okkur gistingu í svefnpokaplássi á Reykj- að nálgast Vatnsdalinn þá fór að bæta hressilega í vind. Rögnvaldur bílstjóri ítrekaði við alla að hafa bílbeltin spennt þar sem það væri farið að blása verulega. Það var síðan þegar við komum upp á hálsinn úr Víðidalnum að allt í einu heyrðist hvellur. Mér varð litið upp og aftur fyrir mig. Aftari topphlerinn var horfinn og sá beint til himins. Ég losaði beltið og stóð upp. Sá ég að hlerinn, sem gegnir hlutverki neyðarútgangs þegar rútur velta, hafði losnað en hékk í bandi og glamraði laus á þaki rútunnar. Ég náði að grípa í neyðarhandföngin á hleranum og smella honum niður en náði þó ekki að festa hann almennilega nema öðrum megin. Ég þorði því ekki að setjast og taldi öruggast að ríghalda í hlerann svo hann fyki ekki út í veður og vind. Ekki treysti mér ekki til að laga læsinguna þar sem við vorum í svo gríðarlegum streng. En nokkru síðar ókum við út úr þessum mikla vindstreng og við Gummi, farar- stjóri Hauka, sameinuðumst um að festa hlerann tryggilega. Haggaðist hann ekki það sem eftir leið ferðarinnar. Okkur varð ljóst að við værum komin í hið mesta illviðri. Bílstjórinn ók því afar gætilega það sem eftir lifði uns við kom- um í Staðarskála, en jafnframt hafði hann samband við HK rútuna og ráðlagði þeim að halda kyrru fyrir á Blönduósi, sem þau og gerðu. Staðarskáli Við þurftum að hafa fyrir því að komast inn í Staðarskála, en þar höfðum við pantað hamborgara á línuna. Vindurinn var mjög sterkur og því þurfti að hnika rútunni til þess að hægt væri að opna dyrnar á henni og koma mannskapnum inn. Það hafðist og vakti það furðu mína hversu fljótt við fengum afgreiðslu þar sem almennir viðskiptavinir þurftu að bíða rúma klukkustund eftir að fá pöntun sína afgreidda. Staðarskáli var troðinn af fólki og létu sumir strákarnir sig hafa það að setjast á gólfið út undir vegg til að borða matinn sinn. En eftir matinn tók við tveggja tíma bið og stöðumat rútubíl- stjóra á svæðinu sem báru saman bækur sínar. Þegar við komum að Staðarskála var bíll Vegagerðarinnar með gulu blikk- ljósi búinn að loka veginum vegna veð- ursins á Holtavörðuheiðinni. Við vonuð- umst til þess að það myndi lægja og við gætum beðið af okkur óveðrið róleg í 2–3 tíma í Staðarskála. En þegar leið á kvöldið bárust þau tíðindi frá Vegagerð- Handbolti Tvo leiki kepptum við á laugardeginum. Báðir fóru fram í Síðuskóla. Við byrjðum á því að leggja Þróttara í leik þar sem við vorum mun betri. En í seinni laugardags- leiknum töpuðum við með fjórum mörk- um gegn Selfyssingum. Sunnudagurinn gekk hins vegar glimrandi vel og unnu Valsstrákar alla þrjá leiki sína þann dag- inn. Sunnudagskvöldið Eins og fram kom að ofan þá var ýmis- legt í gangi á Akureyri þessa helgi. Þar á meðal AK-EXTREME 2011 snjóbretta- og tónlistarhátíð á Akureyri og í Hlíða- fjalli. Hluti þeirrar dagskrár fór fram í Gilinu á Akureyri. Þar var búið að koma fyrir mörgum gámum og byggja 60–70° bratta braut niður af gámunum og skammt neðan þeirra var búið að útbúa stökkpall og hylja allt með nokkur hundr- uð förmum af snjó sem höfðu verið sóttir út fyrir bæinn. Var þessi braut í gilinu við hlið Akureyrarkirkju. Lið Vals og Hauka sameinuðust um að kíkja á sýninguna. Mættum við tímanlega og fylgdumst með ofurhugum, ýmist á skíðum eða brettum, bruna niður brautina og stökkva í marg- földum skrúfum og heljarstökkum niður af pallinum. Sá sem hér skrifar er því fegnastur að eiga son sem æfir handbolta en lætur eiga sig að ögra þyngdarlögmál- inu líkt og ofurhugarnir gerðu ítrekað. En merkilegt nokk þá lentu þeir flestir á fót- unum og náðu að stöðva á fáeinum metr- um neðan við stökkpallinn en þurftu ekki langa braut til að lenda. Eftir að Valsmenn luku síðasta leik sín- um á sunnudeginum kom rútan og sótti okkur í KA-heimilið. Fórum við niður í Síðuskóla og biðum nokkra stund eftir því að Hauka- og HK-stelpurnar kæmu frá Húsavík áður en við gætum lagt heim á leið. Fréttir fóru að berast af hvassviðri á höfuðborgarsvæðinu sem myndi ganga yfir norðvesturhluta landsins. Máttum við því búast við einhverjum töfum af þessum sökum. Það var hins vegar ekkert sem benti til fárviðris á Akureyri. Þar var smá fjúk en þurrt og bærilega hlýtt. Þeg- ar við lögðum af stað var veðrið ágætt. Hvorki tafir á Holtavörðuheiði né í Vatnsskarði en sjóndeildarhringurinn var vissulega orðinn dumbungslegur þegar við nálguðumst Blönduós. Áfram héld- um við vestur á bóginn og þegar við vor- um komin framhjá Laxá í Ásum og farin 112 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Við erum stödd við styttu sr. Friðriks Friðrikssonar í tilefni þess að í dag eru 100 ár liðin frá því að Knattspyrnufélag- ið Valur var stofnað innan KFUM. Það var með leyfi sr. Friðriks sem sex piltar á aldrinum 16–19 ára, allir virkir félagar og leiðtogar í KFUM, stofnuðu með sér fótboltaflokk þann 11. maí 1911. Á fram- haldsstofnfundi síðar í sama mánuði bættust um það bil átta KFUM-piltar í hóp stofnenda og síðar um sumarið fjölg- aði enn í flokki þeirra. Þeir ruddu sér knattspyrnuvöll á Melunum með leyfi borgarstjórans í Reykjavík – ævintýrið var byrjað. Séra Friðrik segir frá því að hann hafi í fyrstu ekki séð neitt nema hringl og gauragang í knattspyrnunni, en taldi þó að unglingspiltar gætu haft gott af þess- um hlaupum og góðu lofti. Á þeirri for- sendu gaf hann þeim leyfi til stofnunar fótboltafélags innan KFUM þessa vor- daga í maí 1911. Um sumarið fór hann út á Mela til þess að fylgjast með fótbolta- leik piltanna og þá sá hann tækifærin í knattspyrnunni. Hann lýsti því síðar sem opinberun. Hann sá knattspyrnuna sem stórfenglegt uppeldis- og tamningar- meðal. Á tímum eins og þeim sem við lifum nú, tímum umræðu um gildi og áhuga á að skapa betra samfélag, er ákaflega merkilegt að lesa ræðu sem sr. Friðrik flutti síðla sumars 1911 við vígslu vallar- ins úti á Melum þegar drengirnir tóku fyrsta knattspyrnuvöll KFUM í notkun. Ræðan er full af speki og ef vel er að gáð má finna í henni flest þjóðgildin sem þjóðfundurinn okkar árið 2009 komst að raun um að væru þau gildi sem íslensk þjóð ætti að leggja áherslu á. Hann brýndi fyrir þeim að vinna ekki með röngu eða ódrengilegu bragði, að hælast ekki yfir þeim sem tapa, að láta aldrei pex eða þráttanir skemma leikinn, að vera fljótir að hlýða þeim sem stjórnaði leiknum, að leiðrétta með hógværð þá sem ekki kunnu knattspyrnu og kalla engan klaufa þótt illa gengi í fyrstu. Þetta er aðeins brot af því sem hann nefnir og hann dregur það saman í þessari meitl- Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik yðar, látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliða Ávarp Gyðu Karlsdóttur, framkvæmdastjóra KFUM og KFUK á Íslandi við styttu sr. Friðriks Friðrikssonar í Lækjargötu í tilefni af 100 ára afmæli Vals 11. maí 2011, við fjölmenna samkomu sem var hluti af hátíðahöldum afmælisdagsins 7A B la ck Y el lo w M ag en ta C ya n 7 11 12 27 6 V al ur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.