Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 115
Valsblaðið 2011 113
Starfið er margt
uðu setningu sem Valsmenn hafa haldið
á lofti allt frá stofnun félagsins: Leggið
alla stund á að leggja fegurð inn í leik
yðar, látið aldrei kappið bera feg-
urðina ofurliða. Knattspyrnan átti að
vera helguð Drottni, tæki til að göfga
manninn, verkfæri til að gera menn að
betri mönnum.
Þannig var sr. Friðrik, stöðugt að leið-
beina ungu fólki um hvernig væri best að
lifa. Þess vegna fannst mörgum þeir
standa í þakkarskuld við hann síðar á æv-
inni – og er það ekki ástæða þess að þeir
hinir sömu létu reisa af honum styttu hér
í hjarta borgarinnar, meira að segja á
meðan hann var enn á lífi.
Það er heiður að fá að starfa í félagi
sem sr. Friðriks stofnaði. Það er heiður
að fá að keppa fyrir hönd félags sem á
rætur sínar hjá honum. Kæru Valsmenn,
karlar og konur. Haldið áfram að vinna
æsku þessa lands gagn með því að standa
fyrir starfi þar sem börn og ungmenni
hafa tækifæri til að þroska sig og efla til
líkama, sálar og anda og verða göfugri
manneskjur. Það er það sem íslensk þjóð
kallar á í dag. Fyrir hönd KFUM og
KFUK óska ég ykkur innilega til ham-
ingju með daginn og bið ykkur blessunar
Guðs og velfarnaðar í starfinu um
ókomna framtíð.
Gyða Karlsdóttir framkvæmda-
stjóri KFUM og KFUK á Íslandi.
Falleg athöfn fór fram í Lækjargötu í hádeginu á 100 ára afmælisdaginn 11. maí í blíð-
skaparveðri. Systkinin Viktor Andri Jónsson og Kristjana Þórdís Jónsdóttir, sem æfa
bæði með Val, lögðu blómsveig að styttu æskulýðsleiðtogans séra Friðriks Friðriks-
sonar. Með þeim eru Hörður Gunnarsson formaður (t.v.) og Reynir Vignir formaður
afmælisnefndar Vals.
Samantekin heilræði sr. Friðriks Friðriks-
sonar í 100 ár.: Leggið alla stund á að
leggja fegurð inn í leik yðar, látið aldrei
kappið bera fegurðina ofurliða.128 Valsblaðið 2011
Þjálfun barna og unglinga
Saga kvenna knatt
spyrnunnar í Val
eftir Soffíu Ámundadóttur og Margréti Magnúsdóttur
Soffía Ámundadóttir þjálfari yngri flokka
kvenna hjá Val til margra ára og fyrrver-
andi leikmaður í knattspyrnu hjá Val hélt
fyrirlestur á þjálfararáðstefnunni um
sögu kvennaknattspyrnunnar hjá Val.
Hún telur markviss vinnubrögð hjá fé-
laginu við þjálfun með uppöldum Vals-
þjálfurum, samheldni og frábærum
félagsanda lykilinn að velgengni kvenna-
knattspyrnunnar hjá félaginu.
Árið 1977 var upphaf kvennaknatt-
spyrnu í Val. Nokkrar ungar stúlkur og
handboltaskvísur tóku sig til og kepptu
fyrir hönd Vals í knattspyrnu. Aðeins
einu ári síðar varð Valur Íslandsmeistari í
kvennaknattspyrnu og hefur sú sterka
sigurhefð haldist æ síðan. Árangurinn
hefur verið framúrskarandi og eigum við
í dag 23 titla í meistaraflokki – Íslands-
og bikarmeistara. En þá eru ótaldir allir
þeir titlar sem yngri flokkar kvenna hafa
unnið í gegnum árin. Á þessu fallega ári
2011 erum við Íslandsmeistarar í 2. 3. 5
og 6. flokki kvenna og bikarmeistarar í
meistaraflokki kvenna.
Þjálfarar í gegnum tíðina hafa verið
miklir Valsarar og stöðugleiki hefur verið
mikill. Hér er hægt að nefna langan og
flottan lista af framúrskarandi þjálfurum
en ég læt þessa duga: Elísabet Gunnars-
dóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, Ragn-
hildur Skúladóttir, Freyr Alexandersson,
Margrét Magnúsdóttir, Rakel Logadóttir,
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Íris Andrésdóttir,
Soffía Ámundadóttir o. fl. Í þessum þjálf-
arahópi hefur Valshjartað verið drifkraft-
urinn, mikil samheldni hefur ríkt, hjálp-
semi og gleði.
Leikmenn í kvennaflokkum Vals eru
aldir upp við sterkar fyrirmyndir. Það er
nauðsynlegt að hafa sterkar fyrirmyndir
en snemma setja ungar stúlkur sér mark-
mið að komast í landslið og kveikir þetta
metnað ungra leikmanna fyrr en ef fyrir-
myndirnar væru ekki til staðar.
Landsliðssæti Valskvenna á þessu ári
2011 eru: (hér er verið að miða við byrj-
unarliðssæti og meðaltal ársins):
A landslið – 5 leikmenn, •
U 19 – 5 leikmenn og •
U 17 – 6 leikmenn. •
Þá er ótalið allir þeir leikmenn sem hafa
verið í úrtakshópum á árinu og þeir eru
margir.
Valur hefur verið mikill brautryðjandi
hvað útrás leikmanna erlendis varðar.
Árið 1984- 86 fóru fyrstu leikmennirnir
frá Íslandi í atvinnumennsku og voru það
Valsararnir Bryndís Valsdóttir, Kristín
Briem og Guðrún Sæmundsdóttir en þær
léku allar með Napoli á Ítalíu. Árið 1987
fór fyrsti leikmaðurinn í háskólalið í USA
og var það Valsarinn Cora Barker. Margir
leikmenn hafa fetað þessa braut sem þess-
ir flottu brautryðjendur ruddu. Á síðustu
árum hafa u.þ.b. 16 leikmenn haldið í at-
vinnumennsku erlendis en Valur á 12 af
þessum leikmönnum. Tölfræðilega hlýtur
að vera gott að alast upp í Val, þar er
stefnan sett hátt og metnaður er mikill.
Kvennadeildin er vel skipulög og sam-
vinna er mikil. Við erum sem ein lítil
fjölskylda þar sem allir þekkjast vel og
styrkleiki hvers og eins fær að njóta sín.
Skipulag flokkanna er mikið og virkilega
vel haldið utan um alla flokka. Þjálfarar
vinna saman og setja sér háleit markmið
þar sem mikil vinna og gleði liggur að
baki. Við vitum hvert við stefnum og
metnaður er mikill.
Árangur Valskvenna er þó ekki síst að
þakka frábærum félagsanda. En þessi
mikla stemming, hefð og samheldni hef-
ur haldist frá upphafi. Margir Valshópar
hittast reglulega til þess að rifja upp
gamla tíma, þjappa sér saman eða eiga
góða stund saman. Þá er ósjaldan sungið
Valsmenn léttir í lund ásamt fleiri góðum
Valslögum. Ég er gríðarlega stolt að vera
hluti af þessari sögu Vals sem er án vafa
stórkostleg. Vera alin upp í þessari
áhugaverðu menningu og hafa náð að til-
einka mér þær hefðir sem liggja í arf-
leifðinni. Ég vona að ég geti áfram fært
hana næstu kynslóðum Valskvenna.
Valskveðja
Sossa (Soffía Ámundadóttir)
og Margrét Magnúsdóttir
Stoltir þjálfarar 3. flokks kvenna hjá Val, Margrét Magnúsdóttir t.v. og Soffía
Ámundadóttir t.h. með Íslandsmeistarabikarinn 2011. Þær eru báðar uppaldir Vals-
þjálfarar.
8A
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
8
11
12
27
6
V
al
ur