Valsblaðið - 01.05.2011, Qupperneq 132
130 Valsblaðið2011
Jón Hilmar byrjaði að æfa fótbolta á
yngra ári í 6. flokki, þá 7 eða 8 ára gam-
all. Hann segir að margir strákar hefðu
átt skilið að vinna Friðriksbikarinn en
það sé mikill heiður að hafa unnið hann.
Tilfinningin hafi auðvitað verið mjög
góð og hann segir að það sé gaman að sjá
að þjálfarinn hafi talið hann hafa átt
þennan heiður skilið.
Hvernig gekk ykkur í sumar? „Okkur
gekk ekkert alltof vel og náðum við ekki
settu marki að komast upp úr riðlinum
okkar á Íslandsmótinu, við fórum hins
vegar til Svíþjóðar á Gothia Cup og stóð-
um okkur þar vel og tel ég okkur
óheppna að hafa ekki komist lengra í
þeirri keppni. Mér líst mjög vel á hópinn
núna og samanstendur hann af alls konar
persónuleikum sem ná vel saman, auk
þess líst mér gríðarlega vel á nýju há-
gæða þjálfarana og leggja þeir virkilegan
metnað í þjálfunina sem síðan nær til
okkar á vellinum.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Ég mun aldrei gleyma Rey
Cup 2010 en við lentum í 2. sæti í því
móti. Við höfðum komist í úrslitin með
gríðarlega mikilli dramatík og vorum við
grátlega nálægt því að vinna mótið en
tapaðist það í vítaspyrnukeppni í úrslita-
leiknum. Meðal annars komumst við upp
úr riðlinum með nauðsynlegum 1-0 sigri
á efsta liði riðilsins KR en við náðum yf-
irhöndinni í byrjun leiks með marki beint
úr hornspyrnu og héldum við allan leik-
inn þeirri forystu, undanúrslitaleikurinn á
móti Haukum verður að auki seint
gleymdur en við vorum 2-0 yfir í hálfleik
en náðu Haukamenn að jafna metinn og
var farið í vítaspyrnukeppni sem við unn-
um örugglega. Ég hef aldrei verið hluti af
jafn samheldnum og góðum hópi og þá
og situr þetta mót mér fast í minni.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Ég lít mjög mikið upp til
Wayne Rooney en er hann að mínum
mati einn sá albesti í bransanum, auk
þess er Sigurbjörn Hreiðarsson mann-
eskja sem allir ættu að líta upp til en
hann hefur átt feril sem er hægt að vera
mjög stoltur af og er hann lifandi goð-
sögn hjá Val.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Aðalatriðið til að skara fram úr í íþrótt-
um er hugarfar, vilji og agi. Ef maður
hefur þá eiginleika þá tel ég að maður
geti náð langt í hverju sem maður tekur
sér fyrir hendi. Ég persónulega gæti bætt
mig heilan helling í öllum hliðum bolt-
ans, en núna er það aðallega hraði og
tækni á bolta.
Hvers vegna fótbolti? „Ég var settur í
fótbolta á unga aldri og varð ástfanginn á
fyrstu æfingunni.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf-
ið í yngri flokkunum hjá Val í fót-
bolta? „Yngri flokka starfið hjá Val hef-
ur ekki verið nægilega gott upp á síðkast-
ið hjá strákunum og ekki nóg gert fyrir
okkur strákana finnst mér en það er allt
að koma til. Ég held að ég geti talið upp
sirka 10 þjálfara sem hafa þjálfað mig á
8 ára skeiði og er það alls ekki gott að
hafa ekki getað fengið neina festu þegar
ég var yngri.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum í sam-
bandi við handboltann? „Ég hef fengið
mikinn stuðning í gegnum tíðina frá for-
eldrum mínum og mætti pabbi á alla leiki
á mínum yngri árum, síðan var mér alltaf
skutlað af þeim þegar æfingar voru á ÍR,
KR eða Fram svæðunum þegar það var
verið að gera gervigrassvæðið.“
Er eitthvað sem þarf að laga hjá Val að
þínu mati? „Það voru stundum vandræði
með dómaramál í fyrra og þurfti 3. flokk-
urinn einstöku sinnum að hlaupa í skarð-
ið fyrir þá sem áttu að dæma leikina hjá
4. eða 5. flokki sem var ekki gott, sér-
staklega þar sem leikir hjá 4. flokki voru
oftar en ekki degi fyrir leik hjá okkur svo
að um mikilvæga æfingu var að ræða
sem liðsmenn þurftu að sleppa til þess að
taka að sér dómgæslu. Það myndi þurfa
að taka skipulagið í þeim málum í gegn.
En ég sé að miklar breytingar hafa verið
eða eru að eiga sér stað sem ég er mjög
sáttur með.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
Hvar sérðu fyrir þér að þú verðir eftir
10 ár? „Ég sé mig fyrir mér vinna að
einhverju tengdu fótbolta eða nýbúinn
með háskóla. Stefnan er að fara í háskóla
í Bandaríkjunum eða Norðurlöndunum,
vonandi á fótboltastyrk.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Árið
1911 af séra Friðriki Friðrikssyni.“
UngirValsarar
Oförþjálfaraskiptiíyngri
flokkumhjástrákunum
Jón Hilmar Karlsson er 16 ára og leikur fótbolta
með 2. flokki og er handhafi Friðriksbikarsins 2011
Valsblaðið 2011 143
Starfið er margt
Sumarbúðir í borg voru starfræktar frá 6.
júní til 1. júlí í tveimur sjálfstæðum nám-
skeiðum og var þetta tuttugasta og þriðja
starfsár íþrótta og leikjanámskeiðsins,
þátttakan var nokkuð góð.
Dagskrá námskeiðsins var þannig hátt-
að að fyrir hádegi var farið í fjölmarga
leiki og ýmsar íþróttagreinar voru kynnt-
ar fyrir börnunum. Einnig voru sumir
sem nýttu sér þann möguleika að vera í
knattspyrnuskóla Vals fyrir hádegi og
komu svo yfir í sumarbúðirnar eftir há-
degi. Dagskráin eftir hádegi var mjög
fjölbreytt og nýttum við okkur nágrenni
Vals mjög vel, við fórum meðal annars á
Klambratún og Hljómskálagarðinn í
leiki, ratleik í Öskjuhlíðinni ásamt því að
grilla þar brauð, siglingu í Nauthólsvík
og strandferð.
Krakkar í sumarbúðunum með
í myndinni Algjör Sveppi og
töfraskápurinn
Við vorum einnig svo heppin að tókum
þátt í atriði fyrir myndina Algjör Sveppi
og töfraskápurinn sem tekið var upp í
Hörpunni. Við fórum í heimsókn hjá
Landhelgisgæslunni og fengum að sjá
þyrluna Gná taka á loft. Einnig heimsótt-
um við Lögreglustöðina og fengum með-
al annars að sjá fangaklefa, mótorhjól og
grandskoða lögreglubíl. Við fórum einn-
ig í skoðunarferð á Þjóðminjasafnið og
sáum þegar var verið að taka upp atriði
fyrir morgunstundina okkar sem börnun-
um fannst mjög áhugavert. Við fengum
danskennslu frá Dansskóla Jóns Péturs
og Köru. Við fórum í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn og grilluðum þar pylsur og
héldum þar hæfileikakeppni þar sem
börnin fóru á kostum og það er alveg
ljóst að þar var mikið af hæfileikaríkum
börnum á ferð.
Góðviðri og góður matur í
sumarbúðunum
Á lokadegi námskeiðanna var haldin ól-
ympíukeppni þar sem börnin kepptu í
ýmsum greinum og fengu viðurkenning-
arskjal með árangri sínum. Við vorum sér-
staklega heppin með veður á meðan sum-
arbúðunum stóð og þökkum við veður-
guðunum sérstaklega fyrir það. Við
fengum heitan og góðan mat á hverjum
degi sem eldaður var í eldhúsi Vals af
Klöru Geirsdóttur. Það er mat allra þeirra
sem að sumarbúðunum komu að þær voru
vel heppnaðar. Að lokum langar mig að
þakka starfsfólki og öllum sem að sumar-
búðunum komu sérstaklega fyrir sumarið.
Elvar Már Svansson skólastjóri
Sumarbúða í borg.
Sumarbúðir í borg
Íþrótta- og leikjanámskeið í 23. sinn
9B
B
la
ck
Y
el
lo
w
M
ag
en
ta
C
ya
n
11
12
27
6
V
al
ur