Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 139
136 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Unglingaflokkur.
Þjálfari: Lýður Vignisson
Sökum þess hve fáa leikmenn við höfð-
um í þessum flokki í vetur fórum við í
tilraunaverkefni og sameinuðum krafta
Vals og ÍR. Til að byrja með unnust
fræknir sigrar á sterkum liðum. Þegar
leið á veturinn og leikjum fjölgaði reynd-
ist hins vegar erfitt að finna æfingatíma
enda vorum við að sameina leikmenn
sem voru að spila með drengjaflokkum,
unglingaflokkum og meistaraflokkum
Vals og ÍR. Uppskeran varð því ekki eins
góð og fyrstu leikir gáfu til kynna um en
þó var liðið hársbreidd frá því að ná í úr-
slitakeppnina.
Leikmaður ársins: Pétur Þór Jakobsson
Drengjaflokkur.
Þjálfari: Lýður Vignisson
Alls æfðu 11 leikmenn með flokknum í
vetur. Það hefur gengið upp og ofan að
halda leikmönnum inni í flokknum en
það er tilfinning þjálfara eftir mjög góðar
æfingar á vormánuðum að nú sé komin
öflug og heilsteypt liðsheild. Leikmenn
voru allir fyrir utan einn leikmann á
yngra ári í þessum flokki og því var
gengið oft á tíðum erfitt. Strákarnir eru
staðráðnir í að breyta því á næsta ári þeg-
ar þeir verða flestir á eldra ári flokksins.
Þeir hafa nú þegar byrjað æfingar hjá
styrktarþjálfara.
Mestu framfarir: Arnar Óli Einarsson
Besta ástundun: Knútur Ingólfsson
Leikmaður ársins: Benedikt Blöndal
Stúlknaflokkur.
Þjálfari: Birgir Mikaelsson
Æfingahópurinn samanstendur af yngri
stelpum úr 10. flokki og nokkrum eldri.
Mikill stígandi var í liðinu síðastiliðinn
vetur og voru þær búnar að festa sig í
sessi í A riðli þegar leið á veturinn. Þær
hjá Val á árinu sem er að líða. Allir ár-
gangar tóku þátt í Íslandsmóti og bikar-
keppni KKÍ. Yngri flokkar léku vel á
þriðja hundrað kappleiki og af þeim voru
fjölmargir leikir í umsjón Vals að Hlíðar-
enda. Íslandsmótinu og bikarkeppninni
fylgdu mörg skemmtileg og eftirminnileg
ferðalög víða um landið. Yngstu iðkend-
urnir tóku þátt í mörgum boðsmótum og
gekk það vel fyrir sig.
Uppskeruhátíð í körfubolta 2011
Uppskeruhátíðin í körfuboltanum fór að
þessu sinni fram í stóra íþróttasalnum í
afmælisvikunni í maí og var hún haldin
sameiginleg með handboltanum. Um-
gjörð uppskeruhátíðarinnar var öll sú
glæsilegasta, enda nýtt glæsileg aðstaða
sem komið hafði verið upp vegna hátíð-
arhalda í tengslum við 100 ára afmæli
félagsins. Í lokin voru veitingar á hlað-
borði en foreldrar sáu um að koma með
veitingar en Valur bauð upp á kaffi og
safa. Uppskeruhátíðin var afar fjölmenn
og gekk vel fyrir sig og vel þótti til fund-
ið að hafa báðar uppskeruhátíðarnar á
sama tíma.
Yngri flokkar
Lýður Vignisson hefur verið yfirþjálfari
yngri flokka frá 2009 og var ráðning
hans mikil lyftistöng fyrir yngri flokka
starfið. Miklar breytingar urðu á þjálfara-
hópi yngri flokka fyrir yfirstandandi
tímabil. Þjálfarar eru Melissa Lechlitner,
Guðbjörg Sverrisdóttir, Ágúst Björgvins-
son, Alexander Dungal, Austin Magnús
Bracey, Elvar Steinn Traustason og Igor
Tratnik.
Hátt í 120 krakkar æfðu körfuknattleik
Valsblaðið 2011 137
Starfið er margt
Mestu framfarir: Völundur Hafstað
Haraldsson
Besta ástundun: Bergur Ari Sveinsson
Leikmaður ársins: Arngrímur Guð-
mundsson
Minnibolti kvenna.
Þjálfari: Dagný Brynjarsdóttir
Í upphafi vetrrar voru aðeins 4 stelpur að
æfa og því var ákveðið að skrá ekki lið í
Íslandsmót. Þegar leið á veturinn bættust
alltaf fleiri og fleiri við og urðu á endan-
um 16. Liðið var því skráð sem gestalið á
Íslandsmótinu eftir áramót og fóru á tvær
túrneringar í B-riðli. Þetta var mikil
reynsla fyrir stelpurnar og stóðu þær sig
gríðarlega vel á sínu fyrsta alvöru móti.
Einnig var varið á þrjú önnur mót yfir
veturinn, Jólamót ÍR, Póstmót Breiða-
bliks og Nettómótið í Keflavík
Mestu framfarir: María Johnson
Besta ástundun: Kristel Eir Eiríksdóttir
Leikmaður ársins: Anna Guðbjörg
Hannesdóttir
Minnibolti 10–11 ára.
Þjálfari: Frosti Sigurðarson
Hjá MB 10–11 ára var veturinn vel
heppnaður. Drengirnir léku í Íslandsmóti
í c-riðli og gekk vel. Mótin voru fjögur
og leikið víða um lend, í Breiðholti,
Flúðum, Vestmannaeyjum og Akureyri.
Einnig léku drengirnir á minniboltamóti
ÍR í desember, en nú á nýju ári léku þeir
á póstmóti Breiðabliks og stærsta móti
ársins Nettó mótinu í Reykjanesbæ og
voru drengirnir félaginu til sóma. Jörðin
skalf síðan þegar stórveldin í Reykjavík
Valur og KR mættust í tveimur æfinga-
leikjum heima og heiman í vetur þar sem
okkar menn sáu sjálfir um að telja stigin
og var ekki minsti vafi á því hvort liðið
bar sigur úr bítum.
fjögurra-liða úrslit á Íslandsmótinu. Mar-
grét Ósk Einarsdóttir og Elsa Rún Karls-
dóttir voru valdar í æfingahóp unglinga-
landsliðs undir 15 ára. Selma Skúladóttir,
Sara Diljá Sigurðardóttir, Margrét Ósk
Einarsdóttir og Elsa Rún Karlsdóttir voru
valdar í æfingahóp unglingalandsliðs
undir 16 ára. Elsa Rún er í bæði 15 og 16
ára landsliðunum og Sara Diljá er í 16
ára landsliðinu.
Mestu framfarir: Guðrún Ólafsdóttir
Besta ástundun: Brynja Pálína Sigur-
geirsdóttir
Leikmaður flokksins: Sara Diljá Sig-
urðardóttir
7.–8. flokkur karla.
Þjálfari: Björgvin Rúnar Valentínusarson
8. flokkur karla, fæddir 1997
Strákarnir hófu veturinn fyrir norðan þar
sem rúta var tekin til Sauðárkróks, 2. um-
ferðin var á Selfossi, sú 3. á heimavelli í
Valsheimilinu og sú síðasta í Garðabæ.
Strákarnir fengu að upplifa bæði súra og
sæta leiki en eftirminnilegasti leikurinn
var án efa þegar þeir náðu að vinna upp
10 stiga forskot andstæðingsins á aðeins
tveimur mínútum, en í þeim leik var ver-
ið að spila um topp sæti riðilsins.
Mestu framfarir: Sigurjón Örn Magn-
ússon
Besta ástundun: Heimir Marel Geirsson
Leikmaður ársins: Bjarki Ólafsson
7. flokkur karla, fæddir 1988
Leiknar voru 4 umferðir í Íslandsmótinu
víðs vegar um landið. 1. umferðin var á
Vesturlandi í Stykkishólmi, 2. umferðin í
Reykjavík, 3. umferðin á Austurlandi á
Höfn í Hornafirði og sú 4. og síðasta var
einnig á Austurlandi, á Egilsstöðum. Ár-
angur strákanna var góður og í heildina
litið voru miklar bætingar hjá þeim.
fóru í úrslitakeppni Íslandsmóts og end-
uðu í 3. til 4. sæti.
Mestu framfarir: Elsa Rún Karlsdóttir
Besta ástundun: Sara Diljá Sigurðar-
dóttir
Leikmaður flokksins: Ragnheiður
Benónís dóttir
9., 10. og 11. flokkur karla.
Þjálfari: Lýður Vignisson
Alls æfðu 19 leikmenn með flokkunum
þremur. Það hefur fækkað töluvert í þess-
um flokkum síðasta árið, en eftir sitja
áhugasömustu, efnilegustu og duglegustu
leikmennirnir. Eftir að hafa lagt á sig
mikla vinnu síðustu tvö árin hafa flokk-
arnir stigvaxandi bætt árangur sinn, og
endaði Íslandsmótið loksins á þeim stað
sem þeir hafa ætlað sér síðustu tvö ár.
9. flokkur karla, fæddir 1996
Besta ástundun og leikmaður ársins:
Dagur Sölvi Sigurjónsson
10. flokkur karla, fæddir 1995
Mestu framfarir: Guðjón Matthíasson
Besta ástundun: Bjarni Geir Gunnars-
son
Leikmaður ársins: Ernesto Emil Ortiz
11. flokkur karla, fæddir 1994
Mestu framfarir: Tómas Hlynsson
Besta ástundun: Arnar Gíslason
Leikmaður ársins: Magni Walterson
9.–10. flokkur kvenna.
Þjálfari: Birgir Mikaelsson
Það var þéttur og áhugasamur hópur
sem æfði vel síðastliðinn vetur. Allar
bættu þær sig sem skilaði sér í góðum ár-
angri liðsins inni á vellinum. Stelpurnar
urðu Reykjavíkurmeistarar. Á Íslands-
mótinu léku þær í A og B riðli til skiptis
og voru hársbreidd frá því að komast í
Yngriflokkar Vals í körfuknattleik 2011.
9A
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
9
1112276 V
alur