Valsblaðið - 01.05.2011, Page 141

Valsblaðið - 01.05.2011, Page 141
134 Valsblaðið 2011 Starfið er margt Fyrir keppnistímabilið 2010–2011 setti stjórn deildarinnar og báðir meistara- flokkarnir sér það takmark að komast í úrvalsdeild á ný. Takmarkið náðist og er Valur nú eitt félaga með alla meistara- flokka í efstu deild. Kvennaliðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild með sigri á Stjörn- unni og karlaliðið með sigri á Þór Akur- eyri í úrslitakeppni 1. deildar. Yngvi Gunnlaugsson þjálfaði báða meistara- flokka deildarinnar og er það einstakt af- rek að fara með tvö lið upp í efstu deild á sama árinu. Yngri flokka starfið hefur eflst á undanförnum árum og eigum við Valsmenn marga upprennandi körfu- knattleiksmenn í þeim hópi. Miklar breytingar urðu í hópi þjálfara hjá deild- inni og í leikmannahópum meistara- flokka deildarinnar. Ágúst Björgvinsson tók við þjálfun beggja meistaraflokka félagsins af Yngva Gunnlaugssyni. Ágúst æfði í öllum yngri flokkum hjá Val og hefur þjálfað bæði yngri flokka og meist- araflokk karla félagsins. Ágúst hefur náð góðum árangri sem þjálfari bæði kvenna- og karlaliðs Hauka og Hamars í Hvera- gerði. Ágúst er boðinn velkominn til starfa aftur fyrir Val en Yngva er þakkað- ur einstakur árangur og góð störf fyrir fé- lagið. Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals 2011–2012 Steindór Aðalsteinsson, forsvarsmaður Bjarki Gústafsson Einar Örn Jónsson Lárus Blöndal Grímur Atlason Sigþór Björgvinsson Úr stjórn gengu Gunnar Zoëga, Torfi Magnússon og Elínborg Guðnadóttir og þakkar körfuknattleikdeildin þeim vel unnin störf á liðnum árum. Lárus Blön- dal gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku en hann hefur verið formað- ur deildarinnar undanfarin ár. Grímur Atlason var kjörinn formaður á aðalfundi félagsins en sagði sig frá formennsku á miðju sumri vegna anna. Steindór Aðal- steinsson tók að sér að vera í forsvari fyr- ir deildina. Meistaraflokkur karla Yngvi Gunnlaugsson þjálfaði meistara- flokk karla keppnistímabilið 2010 til 2011. Honum til aðstoðar var Birgir Mikaelsson. Góður andi var í meistara- flokknum og náði liðið inn í úrslita- keppnina. Í fyrstu umferð mættu Vals- menn Skallagími frá Borgarnesi og unnu þá viðureign 2-0. Í sjálfum úrslitunum mættu Valsmenn Þór frá Akureyri. Vals- menn unnu fyrsta leikinn á Akureyri en í Báðir meistaraflokkarnir leika í efstu deild og yngri flokkarnir að eflast Skýrsla körfuknattleiksdeildar 2011 Valsblaðið 2011 139 Eftir Lárus Blöndal því komnir með ágæta stöðu í einvíginu. Heimferðin gekk ekki áfallalaust fyrir sig og var ófært um Bakkaselsbrekkuna og Öxnadalsheiði. Það var þó ákveðið að skoða aðstæður og voru stórir flutninga- bílar að gera sig klára í brekkuna og heiðna. Það var því ákveðið að reyna að komast yfir en bílinn festist í miðri Bakka- selsbrekku. Leikmenn vildu komast í bæ- inn sem fyrst og höfðu lítinn áhuga á að snúa við og stukku því út og ýttu rútunni upp brekkuna. Eftir það var ferðin greið til Reykjavíkur. Leikur 2 var að Hlíðarenda. Þórsarar mættu ákveðnir til leiks en það var greini- legt að Valsmenn voru undir miklu álagi enda mögulegt að komast í úrvalsdeild með sigri á heimavelli fyrir framan fulla stúku af stuðningsmönnum Vals. Vals- mönnum gekk illa að spila saman í leikn- um og reyndu menn mikið að gera út um leikinn með einstaklingsframtakinu. Liðs- heildin og samspilið var betra hjá Þórsur- um og tókst þeim að vinna leikinn með 3 stigum að lokum. Það þurfti því hreinan oddaleik á Akureyri til að skera úr um hvort liðið kæmist í úrvalsdeild. Valsliðið flaug norður í þriðja og síðasta leikinn og voru mættir tímanlega fyrir leik. Góður andi var í leikmannahópnum þrátt fyrir tap í síðasta leik. Var greinilegt að leikmenn voru búnir að undirbúa sig vel fyrir þennan oddaleik. Valsmenn voru einbeittir frá fyrstu mínútu leiksins og var greinilegt að þeir ætluðu sér að vinna þennan leik. Lið Þórs átti fá svör við góð- um leik Valsmanna og endaði leikurinn með 22 stiga sigri Vals og Valur þar með kominn aftur í úrvalsdeild. leikmenn Vals stóðu sig frábærlega í leiknum. Valur vann leikinn 130 – 84. Um áramótin var orðið nokkuð ljóst að Þór Þorlákshöfn myndi fara beint upp í úr- valsdeild en þeir tefldu fram öflugu liði með þremur erlendum leikmönnum inn- anborðs ásamt góðum íslenskum leik- mönnum. Baráttan stóð um það hvaða fjögur lið myndu komast í úrslitakeppni um hitt lausa sætið í úrvalsdeildinni. Vals- menn bættu við sig öðrum erlendum leik- manni á síðasta degi félagaskipta til að styrkja liðið fyrir lokaátök 1. deildarinnar. Valsmenn enduðu í 4. sæti deildarinnar og komust því í úrslitakeppnina ásamt Þór Akureyri, Skallagrími og Breiðabliki. Í fyrstu umferð mættust Valur og Skalla- grímur og vann Valur nokkuð sannfærandi 2-0. Í hinni viðureigninni vann Þór Akur- eyri Breiðablik 2-0. Það voru því Þór Ak- ureyri og Valur sem kepptu í úrslitum um laust sæti í úrvalsdeild. Þór Akureyri end- aði í 2. sæti deildarinnar en Valur í því 4. og hafði Þór því heimavallarréttinn. Valsmenn keyrðu norður í fyrsta leik og urðu að fara lengri leiðina út fyrir Trölla- skaga, í gegnum Héðinsfjarðargöngin og inn Eyjafjörð vegna þess að Öxnadals- heiðin var ófær. Strákarnir mættu því í hús rétt fyrir leik og voru varla búnir að hita upp þegar dómararnir flautuðu til leiks. Bæði lið mættu einbeitt til leiks og var greinilegt að ekkert yrði gefið eftir í leikn- um. Valsmenn unnu þó leikinn og voru Keppnistímabilið 2010 til 2011 var við- burðaríkt hjá körfuknattleiksdeildinni. Árangurinn var góður og náðu báðir meistaraflokkarnir settum markmiðum og unnu sér sæti í úrvalsdeild á ný. Yngvi Gunnlaugsson þjálfaði báða meistara- flokkana og sennilega hefur enginn ann- ar þjálfari náð því að fara upp í efstu deild með tvö lið sama veturinn. Nokkuð auðvelt hjá kvennaliðinu Kvennaliðinu gekk vel og töpuðu þær aðeins þremur leikjum allan veturinn og þar af báðum deildarleikjunum gegn Stjörnunni. Stjarnan tefldi fram erlendum leikmanni frá upphafi móts og var greini- legt að það gerði gæfumuninn í leikjun- um gegn Val. Þegar kom að úrslitakeppn- inni var ljóst að Stjarnan og Valur myndu berjast um laust sæti í úrvalsdeildinni. Það var því ákveðið að styrkja liðið og bæta við erlendum leikmanni fyrir loka- átökin. Leikfléttan gekk upp og unnu Valskonur fyrstu tvo leikina gegn Stjörn- unni sannfærandi og þar með sæti í úr- valsdeildinni. Viðburðaríkur vetur hjá strákunum Veturinn byrjaði brösulega hjá strákunum þrátt fyrir að Valur tefldi fram efnilegu liði í 1. deildinni. Leikir sem áttu að vinnast töpuðust með nokkra stiga mun og því ljóst að það þyrfti að berjast ef lið- ið ætlaði sér í úrslit. Eftirminnilegasti leikur vetrarins var án efa fyrsti leikur eftir áramót þegar liðið fór til Akureyrar að spila við Þór. Ákveðið var að keyra norður og þrátt fyrir vont veður var leikn- um ekki frestað. Það voru því 8 leikmenn sem lögðu af stað frá Valsheimilinu ásamt bílstjóra. Veðrið var vont á leiðinni og í raun ófært, en þar sem leiknum hafði ekki verið frestað keyrðu þeir alla leið og tók ferðin um 10 klukkutíma. Yngvi þjálfari og nokkrir leikmenn ætluðu með flugi seinna um daginn en vélinni var snúið við þannig að þeir komust ekki til Akureyrar. Það var því fámennt og þjálf- aralaust lið sem mætti til Akureyrar þeg- ar rétt 15 mínútur voru til leiks. Strákarn- ir hafa sjaldan spilað betur og virtist ekk- ert geta stöðvað þá. Calvin Wooten gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig en allir Aftur í úrvalsdeild Meistarflokkur karla í körfubolta sem kom Val aftur í Úrvalsdeild vorið 2011. Efri röð frá vinstri: Birgir Mikaelsson (aðstoðarþjálfari), Hörður Nikulásson, Alexander Dungal, Björgvin Valentínusson, Birgir Björn Pétursson, Hörður Hreiðarsson, Philip Perre, Lárus Blöndal (formaður KKD Vals). Neðri röð frá vinstri: Benedikt Blöndal, Ragnar Már Skúlason, Calvin Wooten, Yngvi Gunnlaugsson (þjálfari), Sigmar Egilsson, Snorri Gunnarsson, Pétur Þór Jakobsson 9B B lack Y ellow M agenta C yan 1112276 V alur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.