Valsblaðið - 01.05.2011, Síða 141
134 Valsblaðið 2011
Starfið er margt
Fyrir keppnistímabilið 2010–2011 setti
stjórn deildarinnar og báðir meistara-
flokkarnir sér það takmark að komast í
úrvalsdeild á ný. Takmarkið náðist og er
Valur nú eitt félaga með alla meistara-
flokka í efstu deild. Kvennaliðið tryggði
sér sæti í úrvalsdeild með sigri á Stjörn-
unni og karlaliðið með sigri á Þór Akur-
eyri í úrslitakeppni 1. deildar. Yngvi
Gunnlaugsson þjálfaði báða meistara-
flokka deildarinnar og er það einstakt af-
rek að fara með tvö lið upp í efstu deild á
sama árinu. Yngri flokka starfið hefur
eflst á undanförnum árum og eigum við
Valsmenn marga upprennandi körfu-
knattleiksmenn í þeim hópi. Miklar
breytingar urðu í hópi þjálfara hjá deild-
inni og í leikmannahópum meistara-
flokka deildarinnar. Ágúst Björgvinsson
tók við þjálfun beggja meistaraflokka
félagsins af Yngva Gunnlaugssyni. Ágúst
æfði í öllum yngri flokkum hjá Val og
hefur þjálfað bæði yngri flokka og meist-
araflokk karla félagsins. Ágúst hefur náð
góðum árangri sem þjálfari bæði kvenna-
og karlaliðs Hauka og Hamars í Hvera-
gerði. Ágúst er boðinn velkominn til
starfa aftur fyrir Val en Yngva er þakkað-
ur einstakur árangur og góð störf fyrir fé-
lagið.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals
2011–2012
Steindór Aðalsteinsson, forsvarsmaður
Bjarki Gústafsson
Einar Örn Jónsson
Lárus Blöndal
Grímur Atlason
Sigþór Björgvinsson
Úr stjórn gengu Gunnar Zoëga, Torfi
Magnússon og Elínborg Guðnadóttir og
þakkar körfuknattleikdeildin þeim vel
unnin störf á liðnum árum. Lárus Blön-
dal gaf ekki kost á sér til áframhaldandi
formennsku en hann hefur verið formað-
ur deildarinnar undanfarin ár. Grímur
Atlason var kjörinn formaður á aðalfundi
félagsins en sagði sig frá formennsku á
miðju sumri vegna anna. Steindór Aðal-
steinsson tók að sér að vera í forsvari fyr-
ir deildina.
Meistaraflokkur karla
Yngvi Gunnlaugsson þjálfaði meistara-
flokk karla keppnistímabilið 2010 til
2011. Honum til aðstoðar var Birgir
Mikaelsson. Góður andi var í meistara-
flokknum og náði liðið inn í úrslita-
keppnina. Í fyrstu umferð mættu Vals-
menn Skallagími frá Borgarnesi og unnu
þá viðureign 2-0. Í sjálfum úrslitunum
mættu Valsmenn Þór frá Akureyri. Vals-
menn unnu fyrsta leikinn á Akureyri en í
Báðir meistaraflokkarnir leika í efstu
deild og yngri flokkarnir að eflast
Skýrsla körfuknattleiksdeildar 2011
Valsblaðið 2011 139
Eftir Lárus Blöndal
því komnir með ágæta stöðu í einvíginu.
Heimferðin gekk ekki áfallalaust fyrir sig
og var ófært um Bakkaselsbrekkuna og
Öxnadalsheiði. Það var þó ákveðið að
skoða aðstæður og voru stórir flutninga-
bílar að gera sig klára í brekkuna og
heiðna. Það var því ákveðið að reyna að
komast yfir en bílinn festist í miðri Bakka-
selsbrekku. Leikmenn vildu komast í bæ-
inn sem fyrst og höfðu lítinn áhuga á að
snúa við og stukku því út og ýttu rútunni
upp brekkuna. Eftir það var ferðin greið
til Reykjavíkur.
Leikur 2 var að Hlíðarenda. Þórsarar
mættu ákveðnir til leiks en það var greini-
legt að Valsmenn voru undir miklu álagi
enda mögulegt að komast í úrvalsdeild
með sigri á heimavelli fyrir framan fulla
stúku af stuðningsmönnum Vals. Vals-
mönnum gekk illa að spila saman í leikn-
um og reyndu menn mikið að gera út um
leikinn með einstaklingsframtakinu. Liðs-
heildin og samspilið var betra hjá Þórsur-
um og tókst þeim að vinna leikinn með 3
stigum að lokum. Það þurfti því hreinan
oddaleik á Akureyri til að skera úr um
hvort liðið kæmist í úrvalsdeild.
Valsliðið flaug norður í þriðja og síðasta
leikinn og voru mættir tímanlega fyrir
leik. Góður andi var í leikmannahópnum
þrátt fyrir tap í síðasta leik. Var greinilegt
að leikmenn voru búnir að undirbúa sig
vel fyrir þennan oddaleik. Valsmenn voru
einbeittir frá fyrstu mínútu leiksins og var
greinilegt að þeir ætluðu sér að vinna
þennan leik. Lið Þórs átti fá svör við góð-
um leik Valsmanna og endaði leikurinn
með 22 stiga sigri Vals og Valur þar með
kominn aftur í úrvalsdeild.
leikmenn Vals stóðu sig frábærlega í
leiknum. Valur vann leikinn 130 – 84.
Um áramótin var orðið nokkuð ljóst að
Þór Þorlákshöfn myndi fara beint upp í úr-
valsdeild en þeir tefldu fram öflugu liði
með þremur erlendum leikmönnum inn-
anborðs ásamt góðum íslenskum leik-
mönnum. Baráttan stóð um það hvaða
fjögur lið myndu komast í úrslitakeppni
um hitt lausa sætið í úrvalsdeildinni. Vals-
menn bættu við sig öðrum erlendum leik-
manni á síðasta degi félagaskipta til að
styrkja liðið fyrir lokaátök 1. deildarinnar.
Valsmenn enduðu í 4. sæti deildarinnar og
komust því í úrslitakeppnina ásamt Þór
Akureyri, Skallagrími og Breiðabliki.
Í fyrstu umferð mættust Valur og Skalla-
grímur og vann Valur nokkuð sannfærandi
2-0. Í hinni viðureigninni vann Þór Akur-
eyri Breiðablik 2-0. Það voru því Þór Ak-
ureyri og Valur sem kepptu í úrslitum um
laust sæti í úrvalsdeild. Þór Akureyri end-
aði í 2. sæti deildarinnar en Valur í því 4.
og hafði Þór því heimavallarréttinn.
Valsmenn keyrðu norður í fyrsta leik og
urðu að fara lengri leiðina út fyrir Trölla-
skaga, í gegnum Héðinsfjarðargöngin og
inn Eyjafjörð vegna þess að Öxnadals-
heiðin var ófær. Strákarnir mættu því í hús
rétt fyrir leik og voru varla búnir að hita
upp þegar dómararnir flautuðu til leiks.
Bæði lið mættu einbeitt til leiks og var
greinilegt að ekkert yrði gefið eftir í leikn-
um. Valsmenn unnu þó leikinn og voru
Keppnistímabilið 2010 til 2011 var við-
burðaríkt hjá körfuknattleiksdeildinni.
Árangurinn var góður og náðu báðir
meistaraflokkarnir settum markmiðum
og unnu sér sæti í úrvalsdeild á ný. Yngvi
Gunnlaugsson þjálfaði báða meistara-
flokkana og sennilega hefur enginn ann-
ar þjálfari náð því að fara upp í efstu
deild með tvö lið sama veturinn.
Nokkuð auðvelt hjá kvennaliðinu
Kvennaliðinu gekk vel og töpuðu þær
aðeins þremur leikjum allan veturinn og
þar af báðum deildarleikjunum gegn
Stjörnunni. Stjarnan tefldi fram erlendum
leikmanni frá upphafi móts og var greini-
legt að það gerði gæfumuninn í leikjun-
um gegn Val. Þegar kom að úrslitakeppn-
inni var ljóst að Stjarnan og Valur myndu
berjast um laust sæti í úrvalsdeildinni.
Það var því ákveðið að styrkja liðið og
bæta við erlendum leikmanni fyrir loka-
átökin. Leikfléttan gekk upp og unnu
Valskonur fyrstu tvo leikina gegn Stjörn-
unni sannfærandi og þar með sæti í úr-
valsdeildinni.
Viðburðaríkur vetur hjá strákunum
Veturinn byrjaði brösulega hjá strákunum
þrátt fyrir að Valur tefldi fram efnilegu
liði í 1. deildinni. Leikir sem áttu að
vinnast töpuðust með nokkra stiga mun
og því ljóst að það þyrfti að berjast ef lið-
ið ætlaði sér í úrslit. Eftirminnilegasti
leikur vetrarins var án efa fyrsti leikur
eftir áramót þegar liðið fór til Akureyrar
að spila við Þór. Ákveðið var að keyra
norður og þrátt fyrir vont veður var leikn-
um ekki frestað. Það voru því 8 leikmenn
sem lögðu af stað frá Valsheimilinu
ásamt bílstjóra. Veðrið var vont á leiðinni
og í raun ófært, en þar sem leiknum hafði
ekki verið frestað keyrðu þeir alla leið og
tók ferðin um 10 klukkutíma. Yngvi
þjálfari og nokkrir leikmenn ætluðu með
flugi seinna um daginn en vélinni var
snúið við þannig að þeir komust ekki til
Akureyrar. Það var því fámennt og þjálf-
aralaust lið sem mætti til Akureyrar þeg-
ar rétt 15 mínútur voru til leiks. Strákarn-
ir hafa sjaldan spilað betur og virtist ekk-
ert geta stöðvað þá. Calvin Wooten gerði
sér lítið fyrir og skoraði 52 stig en allir
Aftur í úrvalsdeild
Meistarflokkur karla í körfubolta sem kom Val aftur í Úrvalsdeild vorið 2011. Efri röð
frá vinstri: Birgir Mikaelsson (aðstoðarþjálfari), Hörður Nikulásson, Alexander
Dungal, Björgvin Valentínusson, Birgir Björn Pétursson, Hörður Hreiðarsson, Philip
Perre, Lárus Blöndal (formaður KKD Vals). Neðri röð frá vinstri: Benedikt Blöndal,
Ragnar Már Skúlason, Calvin Wooten, Yngvi Gunnlaugsson (þjálfari), Sigmar
Egilsson, Snorri Gunnarsson, Pétur Þór Jakobsson
9B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur