Valsblaðið - 01.05.2011, Side 156
Valsblaðið 2011 151
lega og skemmtilega vinninga í tilefni
kvöldsins og sáu þær einnig um af-
greiðslu á barnum með miklum sóma.
Hápunktur kvöldsins var þegar Vals-
menn tóku lagið saman, Valsmenn léttir í
lund svo að undir tók í Valsheimilinu og
vitaskuld tók Henson síðan þeirri áskor-
un að syngja 18 rauðar rósir við mikinn
fögnuð gesta. Aðspurður var Henson
mjög ánægður með herrakvöldið sem
hann telur afar mikilvægan hlekk í fjöl-
breyttu félagsstarfi Valsmanna og sé góð-
ur vettvangur til að gleðjast saman eina
kvöldstund, rifja upp gamlar minningar
og brúa jafnframt kyslóðabilið. Með-
fylgjandi myndir segja meira en 1000 orð
og síðan er bara að bíða eftir næsta herra-
kvöldi að ári. Ljósmyndir: Guðni Ol-
geirsson.
Félagsstarf
Herrakvöld Vals er fastur liður í félags-
starfinu fyrsta föstudagskvöld í nóvem-
ber og er fyrir löngu búið að festa sig í
sessi. Halldór Einarsson (Henson) hefur
frá upphafi komið að undirbúningi og
framkvæmd herrakvöldanna og sagt er
að hann sé upphafsmaður að herrakvöld-
um íþróttafélaga hér á landi. Ákveðinn
kjarni Valsmanna mætir alltaf á herra-
kvöldin en alltaf sjást einhverjir nýir
Valsmenn á öllum aldri sem skemmta sér
konunglega. Gerður var mjög góður róm-
ur af glæsilegu steikarhlaðborði sem var
að vanda frá Múlakaffi. Þorsteinn Guð-
mundsson var veislustjóri kvöldsins og
rifjaði hann m.a. upp feril sinn í yngri
flokkum Vals, en hann sagðist ekki eiga
glæstan íþróttaferil að baki. Einnig voru
ýmis hefðbundin skemmtiatriði og Stef-
án Hilmarsson tók lagið við mikla lukku
að vanda. Á herrakvöldinu afhenti Hörð-
ur Gunnarsson formaður Vals Hermanni
Gunnarssyni Valsorðuna en Hemmi var
fjarverandi á 100 ára afmælinu þegar við-
urkenningar voru veittar fyrir störf í þágu
félagsins. Hemmi flutti ávarp við þetta
tækifæri og brýndi alla Valsmenn að
standa saman um fjölbreytt starf félags-
ins og hvatti menn til dáða. Að öðrum
ólöstuðum þá sló Guðni
Ágústsson fyrrverandi ráð-
herra í gegn á herrakvldinu
en hann fór algjörlega á kost-
um sem ræðumaður kvölds-
ins og kútveltust menn um af
hlátri. Mikill ræðusnillingur
og orðheppinn með eindem-
um.
Stelpurnar í meistaraflokki
kvenna í handknattleik voru
með happdrætti í fjáröflunar-
skyni og voru með ýmsa veg-
Eftirminnilegt
herrakvöld Vals
á afmælisárinu og
frábær stemning
154 Valsblaðið2011
Starfiðermargt
Í mörg ár lét Jóhannes að sér kveða, jafnt
innan vallar sem utan. Hann kom víða við
sögu og m.a. var hann í fyrstu landslið-
snefnd Íslands í knattspyrnu. Jóhannes
lagði hart að sér og uppskar eftir því, Hann
var atorkumaður og hafði mikinn metnað.
Jóhannes var í forystusveit þeirra sem stóðu
að kaupunum á félagssvæði Vals að Hlíðar-
enda. Hann var óþreytandi elju- og athafna-
maður á félagssvæði Vals og sá m.a. um
múrverk þegar gamla íþróttahúsið að Hlíð-
arenda var byggt.
Nafn Jóhannesar Bergsteinssonar heið-
ursfélaga í Val er skráð með gyltum stöf-
um í sögu félagsins. Guð blessi minningu
einstaklega góðs félaga. Valsmenn votta
aðstandendum Jóhannesar innilegrar sam-
úðar um leið og við þökkum fyrir áratuga
langa farsæla vegferð að Hlíðarenda.
f.h. Knattspyrnufélagsins Vals
Hörður Gunnarssonm formaður
IngaJóhanna
Birgisdóttir
fædd 17. júní 1957
dáin 1. júní 2011
Við kynntumst á í handboltanum í Val.
Vorum þá á unglingsaldri og allir veg-
ir færir. Og smullum saman, innan vall-
ar sem utan. Um tvítugsaldur mynduðum
við saumaklúbbinn okkar sem hefur bund-
ið okkur svo sterkum vináttuböndum allar
götur síðar. En í sumar slitnaði hlekkur í
keðjunni; í sumar kvaddi Inga Birgisdótt-
ir hópinn og þessa jarðvist efir erfið veik-
indi. Hennar verður sárt saknað. Orð verða
lítilvæg. Inga er önnur í hópnum góða
sem kveður þetta líf. – Það var árið 1979
sem Kristjana Magnúsdóttir lést aðeins 25
ára að aldri. Krissa, eins og hún var jafn-
an kölluð var mikill Valsari og líka ein af
þeim er stofnuðu knattspyrnudeild kvenna
í Breiðabliki.
Minningarnar eru ótal margar og svo
óendanlega skemmtilegar allar götur frá
handboltaárunum okkar til dagsins í dag.
Og á engan er hallað þó við fullyrðum að
stærstan þátt átti Inga okkar í flestu því
skemmtilegasta sem við nú minnumst. Hún
var einstök sál, falleg að utan sem innan,
alltaf að gefa af sér, gleðja aðra, hvort held-
ur sem var með yndislegu viðmóti eða ein-
stökum húmor, innan vallar sem utan, svo
mikill gleðigjafi hvar sem hún fór.
Við minnumst allra utanlandsferðanna
okkar saman. Fyrst í keppnisferðum með
Val, en Inga stóð vaktina í markinu og
með slíkum árangri að hún var kornung
valin í unglingalandsliðið. Síðar áttum við
eftir að eiga saman ógleymanlegar ferð-
ir vítt og breitt um heim og höf. Alltaf var
Inga okkar hrókur alls fagnaðar með öll-
um þeim ótrúlegu uppátækjum sem henni
einni var svo lagið að finna upp. Stríddi
okkur linnulítið, leiddi okkur í allskyns
Jóhannes
Bergsteinsson
fæddur 3. janúar 1912
dáinn 10. desember 2010
Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val
Með Jóhannesi Bergsteinssyni heiðurs-
félaga í Val er einn af mætustu sonum
félagsins fallinn frá. Frá því að Valur var
stofnaður fyrir hart nær öld hafa heiðurs-
félagar í Val verið ellefu en með Jóhann-
esi eru þeir nú allir fallnir frá. Að hlotnast
nafnbótin „heiðursfélagi“ er æðsta við-
urkenning sem einstaklingi hlotnast inn-
an félagsins og þá nafnbót bera aðeins
þeir félagar okkar sem með óeigingjörnu
starfi hafa lagt gjörfa hönd að uppbygg-
ingu félagsins. Jóhannes var jafnaldri Vals
og samleiðin því löng og farsæl jafnt inn-
an vallar sem utan. Þegar saga Vals er
skoðuð kemur nafn Jóhannesar oft upp
og þá í tengslum við góða sigra og gjöf-
ult starf fyrir félagið. Jóhannes lék sinn
fyrsta meistaraflokksleik árið 1929, þá 17
ára. Hann þótti leikinn og útsjónarsamur
og varð sjö sinnum Íslandsmeistari á ferli
sínum. Væntanlega er eftirminnilegasti
titillinn sá fyrsti sem Valur vann í meist-
arflokki, en það var árið 1930 og skor-
aði Jóhannes bæði mörk Vals í 2:1 sigri á
KR. Með þessum sigri rættist langþráður
draumur Valsmanna. Jón Sigurðsson, þá
formaður Vals, lýsti stundinni síðar: „…
minnisstætt verður mér sigurmarkið, sem
Jóhannes skoraði, ekki aðeins fyrir það að
það gerði út um leikinn, heldur af því hve
snilldarlega það var gert. Hann fékk langa
sendingu frá hægri kanti fram og inn undir
vítateiginn. Jóhannes sér hvar knötturinn
muni koma niður, hleypur þangað í áttina
að marki KR og áður en knötturinn snertir
völlinn, fleytir Jóhannes honum viðstöðu-
laust með fastri spyrnu inn í netið.“
Valsmaður í hundrað ár
Lag og texti Hjörtur Vigfússon
Sólin rís yfir Hlíðarenda
Íþróttir heilla hal og sprund
Í körfu og marknet boltar lenda
Keppnisskap en létt þó lund
Valsmenn skora ófá mörkin,
að sigra leik er okkur tamt
Gleðigjafar, köst og spörkin
og mótlætinu mætum jafnt
Valsmaður í hundrað ár
Liðið mitt rautt, hvítt og blátt
Valsmaður í hundrað ár
Í gegnum söguna við fljúgum hátt
Hundrað titla lið, liðin er sú bið
Valsmaður í hundrað ár
Með kvöldsins kyrrð, ró yfir færist
Dag fyrir dag, árin líða hjá
Á hverjum degi eitthvað gagnlegt lærist
Sem nota í daglegt amstur má
Ótrúleg er okkar saga
Á næsta hundrað titla tel
Með von í brjósti alla daga
Kynslóðabil við brúum vel
Valsmaður í hundrað ár
Valsmaður í hundrað ár
10B
B
lack
Y
ellow
M
agenta
C
yan
1112276 V
alur