Són - 01.01.2014, Blaðsíða 110
108 anna ÞorBjörg ingólfsdóttir
Það er ekki alveg ljóst hvort höfundur hugsar sér erindaskil þegar skipt
er úr átvaxta deildinni í grannmetisdeildina því þar eru síðuskil en það er
þó líklegt að svo sé. Þórarinn snýr gjarnan upp á tungumálið og merk-
ingu orða í barnaljóðum sínum líkt og sjá má hér þar sem orðum yfir
ávexti og grænmeti er blandað saman við margvísleg önnur fyrirbæri svo
úr verður alveg nýtt grannmeti og átvextir. En líka ný og skemmtileg
orð.
Eins og í öðrum barna ljóðum Þórarins er hér stuðlað eftir settum
reglum og rímið er runu rím eins og á við um önnur þau ljóð hans sem
ort eru undir áhrifum gamalla þulna. Hrynjandin er fremur óreglu leg,
mest er um þríliði en einnig tvíliði og þótt flestar brag línur endi á tvílið
þá enda upphafs- og loka braglínurnar á stýfðum lið.
Árið 2000 kom út Vísnabók um íslensku dýrin með myndum Freydísar
Kristjáns dóttur sem einnig valdi ljóðin ásamt Oddnýju S. Jónsdóttur.
Í bókinni eru gömul ljóð eftir þekkta höfunda og þulur og þjóðkvæði,
meðal annars ein barnaþulan hennar Huldu. Þar er einnig frumort
þula eftir Sigrúnu Árnadóttur svo konurnar hafa ef til vill ekki alveg
sagt skilið við þulurnar. Hún heitir Hænsna Þula og minnir nokkuð á
Hænsna rækt Erlu.
Þeir Böðvar Guðmundsson og Davíð Þór Jónsson, sem gefið hafa
út hvor sína barnaljóða bókina, bregða líka þuluforminu fyrir sig. Í bók
Böðvars, Krakkakvæði, sem kom út árið 2004, fallega og hugvitsam lega
mynd skreytt af Áslaugu Jónsdóttur, eru nokkur ljóð sem enginn vandi
er að kenna við þulu ljóð. Þar á meðal er HundaÞingið, sem er öðrum
þræði upptalninga þula, því að þar eru talin upp fjölmörg hundakyn og
hundar með mismunandi hlutverk eða eiginleika, meðal annars:
Þar kom lögregluhundur og lífvarðarhundur,
varðhundur kom og veiðihundur,
blindrahundur og Bernharðshundur
(líka var þarna lóðahundur).
Fjárhundur kom og flækingshundur,
slagsmálahundur og sleðahundur,
púðluhundur og postulínshundur,
og hasshundur kom (og hnerraði mikið
svo honum var loks af fundi vikið),
hundurinn Sámur sat þar á fundi,
sjóhundur kom á hundasundi,
þar var íslenskt hundspott
með hringað skott,