Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 20
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Breyttur persónuleiki, einbeitingarskortur, skert hæfni til samskipta, flog, þreyta. Þetta eru ein-ungis nokkrar afleiðingar ákomins heilaskaða.
Slysin gera ekki boð á undan sér og það er óhugnan-
legt að hugsa til þess að framangreint geti komið
fyrir hvern sem er, hvenær sem er. En staðreyndin
er sú að um 80 einstaklingar á ári fá svo alvarlegan
heilaskaða að þeir þurfa að læra á lífið upp á nýtt.
Marsmánuður er um allan heim tileinkaður
fólki með heilaskaða. Það er ekki að tilefnislausu.
Þekkingunni innan heilbrigðisgeirans, félagslega
kerfisins, hjá stjórnvöldum og meðal almennings
á þessum þögla faraldri er afar ábótavant. Endur-
hæfing snýr að líkamlegri getu en afleiðingar sem
ekki sjást utan á fólki gleymast. Fólk er útskrifað og
skilið eftir án fræðslu, stuðnings eða skilnings á þeim
áhrifum sem heilaskaði hefur á líf þess. Ógerlegt er
fyrir aðstandendur að átta sig á þessum breytta ein-
staklingi sem oft verður til þess að hann ýtir fólki frá
sér og einangrast félagslega.
Engin stefna til í málaflokknum
Á Íslandi verða um 500 manns fyrir einhvers konar
heilaskaða árlega. Stór hluti er ungt fólk og ef ekki
fæst viðeigandi meðferð og stuðningur er aukin
hætta á áhættuhegðun og vandamálum, svo sem
brotthvarfi úr námi eða vinnu og að missa fótanna
í lífinu. Þrátt fyrir þetta er ekki til nokkur stefna í
málaflokknum og stjórnmálamenn taka undir það
að þessi hópur hafi einfaldlega gleymst í kerfinu.
Engin langtímaendurhæfing er í boði og við erum
20-30 árum á eftir Norðurlöndunum.
Nauðsynlegt er að taka á þessum málum. Skapa
þarf umræðu um stöðu þessa hóps og finna leiðir
til endurbóta. Við viljum sjá stefnumótun fara í
gang hjá stjórnvöldum og erum boðin og búin til
að aðstoða eftir fremsta megni. Einnig viljum við
koma á fót Höfuðhúsi, samastað fyrir fólk með
heilaskaða, þar sem hægt væri að nálgast langtíma-
endurhæfingu og fræðslu, sem ekki er í boði í dag.
Lífi sem er bjargað verður að vera gefið tækifæri til
að lifa.
Heimilislaus heilaskaði?
Skapa þarf
umræðu um
stöðu þessa
hóps og finna
leiðir til
endurbóta.
Dís Gylfadóttir
verkefnastjóri
Hugarfars, félags
fólks með ákom-
inn heilaskaða,
aðstandenda og
áhugafólks um
málefnið.
365.is Sími 1817
MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA KL. 17:45
SPJALLÞÁTTADROTTNINGIN ELLEN
ER MÆTT Á STÖÐ 2
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
V iðvarandi vinsældir Pírata eru staðfestar í skoðanakönnun sem Fréttablaðið birtir í dag um fylgi flokka. Flokkurinn hefur reyndar aðeins misst fylgi frá því í síðustu könnun blaðsins, en á því eru kannski eðlilegar skýringar.
Óeðlilegt væri ef deilur innan forystu flokksins í
febrúar sem fóru hátt hefðu engin áhrif haft. Píratar eru
samt enn þá risi þegar kemur að fylgistölum, með rúm-
lega 38 prósenta fylgi, tæpum fjórum prósentustigum
minna en þegar fylgið var síðast kannað í lok janúar.
Aðrir flokkar eru í skrítinni stöðu og mikil óvissa
um framhaldið. Sjálfstæðismenn virðast þó vera að ná
vopnum sínum með fylgi sem er aðeins yfir kjörfylgi
flokksins og rúmum fjórum prósentustigum betra en í
síðustu könnun. Á sama tíma eru framsóknarmenn með
helming kjörfylgisins, þótt flokkurinn hafi líka bætt við
sig á milli kannana.
Mestar áhyggjur eru svo væntanlega hjá þeim
flokkum sem kenna sig við jafnaðarmennsku og eru
skilgreindir mismikið til vinstri frá miðju. Samfylking
og VG eru enn að tapa fylgi og Björt framtíð mallar
nærri botni og fengi engan þingmann.
En svo er líka vert að hafa í huga að hlutir geta breyst
hratt. Enn er engin kosningabarátta hafin, enda rúmt ár
í næstu kosningar (nema eitthvað mjög óvænt komi til).
Líkast til er fólk rétt að byrja að leiða hugann að skipan
framboðslista og aðferðafræði við það val.
Þá gætu líka fleiri átt útspil. Takist Viðreisn að marka
sér svæði þegar nær dregur kosningum á eftir að koma
í ljós hvaðan það fylgi kæmi. Enn sem komið er virðast
þó fáir með það framboð inni á radar hjá sér, eða ámóta
margir og nefna Dögun, Flokk heimilanna, Húmanista
og Framfaraflokk, allir undir hálfu prósenti í fylgi.
Hvað sem öðru líður þá sýnir könnunin að smávær-
ingar innan raða flokksins raska ekki yfirburðastöðu
Pírata og sterkur stuðningur mögulega til marks um að
óvarlegt væri að skýra hann með því einu að um sé að
ræða óánægju með aðra flokka.
Staðan sem uppi er núna ber með sér að breytingar
séu í vændum, og að öllum líkindum með Pírata í
broddi fylkingar. Yrði niðurstaða kosninga í samræmi
við könnunina sem birt er í dag þá verða þeir með 26
þingmenn og gætu myndað meirihluta með hvort
heldur sem er Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokki, hversu
ólíklegt sem slíkt stjórnarsamstarf annars kann að
virðast.
Líklegra er þó að niðurstaðan sé mælikvarði á stjórn-
málastemninguna eins og hún er í dag, þar sem aukinn
stuðningur við stjórnarflokkana gæti endurspeglað þá
tilfinningu fólks að hlutir þokist í rétta átt, á meðan
öðrum en Pírötum hefur mistekist að marka sér ein-
hvern sess í hugum fólks. Vinstri vængnum virðist ekki
við bjargandi. Ólíklegra er að akkúrat þessi punktmæl-
ing sé nothæf til að segja til um niðurstöður kosninga í
apríl á næsta ári.
Píratar halda
fylgi að mestu
Staðan sem
uppi er núna
ber með sér
að breytingar
séu í vændum,
og að öllum
líkindum með
Pírata í broddi
fylkingar.
Sadómasósamtökin
Aðild BDSM Ísland að Sam-
tökunum '78 hefur valdið miklu
fjaðrafoki í hinsegin samfélaginu.
Umræðan um aðild BDSM Ísland
hefur valdið Samtökunum ‘78
nokkrum skaða, bæði hvað orð-
spor félagsins varðar auk þess
sem félagsmönnum hefur eitthvað
fækkað. Nú hafa samtökin hins
vegar komist að því að formgalli
var í fundarboði aðalfundar og
því verður kosið aftur um aðild
BDSM Ísland að samtökunum á
sérstökum félagsfundi. Í stað þess
að bíða með að umræðan lognist
út af mun þessi ákvörðun vera til
þess fallin að valda félaginu enn
meiri skaða. Ef til vill er nærvera
BDSM Ísland strax byrjuð að hafa
áhrif á Samtökin '78 sem virðast
hneigjast til einhvers konar kvala-
losta.
Við viljum latari borgarstjórn
Eitt helsta áhugamál Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar for-
sætisráðherra er að óskapast yfir
stjórn Reykjavíkurborgar. Í gær
kvartaði hann yfir miklu ónæði
vegna framkvæmda í miðborginni
á Facebook-síðu sinni. Samkvæmt
fylgiskönnun Fréttablaðsins í
dag er ríkisstjórnin fallin en í
því ljósi gæti Sigmundur boðið
sig fram til borgarstjórnar þegar
hann lætur af embætti forsætis-
ráðherra. Borgarstjórn Sigmundar
gæti innleitt verksvit núverandi
ríkisstjórnar og slegið met í lítilli
framkvæmdagleði. Þá má bóka að
framkvæmdum og ónæði í mið-
borginni linni.
stefanrafn@frettabladid.is
1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
B
C
-3
6
A
C
1
8
B
C
-3
5
7
0
1
8
B
C
-3
4
3
4
1
8
B
C
-3
2
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K