Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 19
Stutt og skemmtileg erindi um fjölbreytt efni: Loftslagsmýtur,
bindingu kolefnis, geislavirkni, snjallvæðingu, orkuskipti,
auðlindagarð, heilsueflingu með jarðhitavatni, fráveituþvott,
blágrænar regnvatnslausnir, jarðvarmavinnslu, jónaskipti
og ummyndarsteindir, heitt vatn, kalt vatn, orku og umhverfi.
Fyrir þá sem komast ekki verður dagskránni streymt á or.is.
Léttur morgunverður í boði kl. 8.10 – Allir velkomnir allan daginn
Nánari upplýsingar og skráning á or.is
Fylgstu með okkur á Twitter – #orsamband
Í húsi Orkuveitunnar
mánudaginn 14. mars 2016
kl. 8.30–16.00
Vísindadagur OR
Fræðsludagur fyrir alla HVÍTA H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
08
29
visir.is Viðtalið má hlusta á
í lengri útgáfu á Vísi, í hlaðvarpinu
Föstudagsviðtalið.
sem ég var ekki að gera það sem ég
var beðin um að gera. En ef þú hefur
sannfæringu fyrir því að eitthvert
ákveðið atriði sé rétt þá er allt í lagi
að vera ósammála. Þeir eru ekki óvinir
mínir fyrir því. Ég verð bara þola það.“
Unnur brosir.
Ekki gert það sem þér var sagt að
gera? „Það er ætlast til af manni að
maður fylgi ákveðinni línu í ýmsum
málum. Ég gerði það ekki í síðustu
Icesave-atkvæðagreiðslu. Við erum
þarna á ákveðnum sameiginlegum
forsendum sem er grunnstefna flokks-
ins. Við ræðum málin inni í þing-
flokknum. Þar gerir maður grein fyrir
afstöðu sinni. Maður hleypur ekki
í fjölmiðla og hraunar yfir ráðherra
sinn. Það er bara almenn kurteisi að
gera það ekki.“
Fannst þér gengið fram hjá þér þegar
Bjarni leitaði út fyrir þingflokkinn og
fékk Ólöfu Nordal til að vera innanrík-
isráðherra? „Já. Ég get ekki neitað því.
Á móti kemur að Ólöf er frábær ráð-
herra og stendur sig vel. Við vinnum
náið saman.“
Jafnrétti gengur í báðar áttir
Unnur hefur lagt fram frumvarp um
að lagt verði niður svokallað hús-
mæðraorlof. „Jafnrétti er afskaplega
mikilvægt. En það verður þá að ganga
í báðar áttir. Það gengur ekki að konur
eigi að fá aukin réttindi, við verðum
líka að vera tilbúnar að gefa eftir þar
sem við höfum notið forréttinda.
Lögin um húsmæðraorlof eru eitt
dæmi. Sögulega kom þetta til því að
konur voru heimavinnandi og nutu
ekki réttinda til að fara í orlof. Nú eru
tímarnir breyttir, konur eru á vinnu-
markaði og hafa sömu réttindi og karl-
menn. Þá er tímaskekkja að það sé til
fyrirkomulag eins og húsmæðraorlof
Mér finnst það einfaldlega rangt.“
En meðan hallar enn á konur, er
þá ekki allt í lagi að við njótum ein-
hverra forréttinda? „Nei. Við verðum
að ganga á undan með góðu fordæmi.
Þetta eru ekki háar fjárhæðir. Þetta er
prinsippmál. Ætlum við að hafa jafn-
rétti? Þá verður það að ganga í báðar
áttir. Það er bara þannig.“
Forsjármál séu annað dæmi þar
sem konur hafi meiri réttindi en
karlar. „Við verðum að sjá að það séu
hagsmunir barna að bæði kynin komi
að uppeldi barna. Við verðum að vera
tilbúin að gefa eftir á þessu sviði. Það
er erfitt, við vitum það.“
Hvað með kynjakvóta?
Það er ömurlegt að þurfa að fara
þessa leið, hallærislegt og leiðinlegt,
en stundum nauðsynlegt.“
Klippingin stuðaði
Unnur segir það hafa hamlað sér að
vissu leyti vera kona í stjórnmálum
og nefnir dæmi.
„Maður ákveður að láta það ekki
á sig fá og halda áfram. T.d. þegar ég
klippti á mér hárið, þá fór ég og hélt
ræðu í þinginu. Ég er sem sagt með
svona rakað í hliðunum. Ég hélt
frábæra ræðu og á eftir hringdi og
hringdi síminn. Þá var verið að kvarta
yfir klippingunni, en ekkert verið að
ræða það sem ég hafði verið að segja.
Fólki, eldri sjálfstæðismönnum, fannst
þetta ekki konservatívt – að vera ekki
eins og Margaret Thatcher í útliti,“
segir hún og bætir við: „Ég vil hafa
frelsi til að vera eins og ég vil.“
Þú ert óhrædd við að prófa nýja
hluti?
„Það er svo leiðinlegt að vera alltaf
í kassa. Ég var þannig í minni pólitík,
meira að hugsa um minn frama og vera
inni í kassanum. Það er leiðinlegt. Þú
ferð að tala eins og aðrir vilja, og ert lík-
legri til að fá að vera inn í aðalklíkunni,
fá embætti, en þá ertu ekki þú sjálfur og
þá líður þér ekkert vel. Ef maður segir
það sem manni finnst og heldur sig
við prinsippin þá eru manni allir vegir
færir. Það besta er að fólk er stundum
smá hrætt við mann.“ Unnur hlær.
Hún segist ekki geta hugsað sér að
vera í stjórnmálum alla ævi.
„Á þessu ári er ég búin að vera
atvinnustjórnmálamaður í tíu ár og
mér finnst það svakalega langur tími.
En ég mun bjóða mig fram fyrir næstu
kosningar. Svo sjáum við til. Það er
hvorki hollt fyrir þig né kjósendur að
sitja alla ævi.“
Unnur Brá segir gríðarlega mikilvægt að flóttafólk þurfi ekki að bíða í áraraðir eftir að fá úrlausn sinna mála. FréttaBlaðið/Ernir
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 19f Ö S t U D A G U r 1 1 . m A r S 2 0 1 6
1
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
B
C
-3
1
B
C
1
8
B
C
-3
0
8
0
1
8
B
C
-2
F
4
4
1
8
B
C
-2
E
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K