Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 12
Gríðarlegt svell er yfir
öllu við Gullfoss þar sem
ferðamenn á öllum aldri
fikra sig varfærnislega í
átt að náttúruperlunni.
Lítið er gert til að draga
úr hálkunni og gera
leiðina greiðfærari.
ferðaþjónusta „Nei, við áttum svo
sannarlega ekki von á þessu,“ svarar
Normann Winkler, þar sem hann
einbeitir sér að því að standa í fæt
urna á útsýnisplaninu við Gullfoss.
Flughálir svellbunkar liggja bók
staflega yfir öllu við Gullfoss þessa
dagana. Ferðamenn flykkjast að í
þúsundatali á hverjum degi en ekk
ert er gert til að draga úr hálkunni
á leið þeirra að útsýnisstaðnum.
Lögregluborða hefur þó verið
komið fyrir til að hindra aðgang að
stígnum sem liggur lokaspottann
að fossinum.
Þegar útsendarar Fréttablaðsins
heimsóttu staðinn eftir hádegi
á miðvikudag virtu allir sem þar
voru þessa lokun en það mun ekki
alltaf vera tilfellið eins og fram
hefur komið.
Þau Anja Eberhardt og Normann
Winkler sem eru hér á Íslandi í sex
daga virtust gáttuð á aðstæðum við
Gullfoss. „Þetta er erfið leið,“ sagði
Normann og virtist feginn að vera
á leiðinni til baka.
Anja tók heilshugar undir með
Normann. Þau virtust þó taka mál
inu með jafnaðargeði og alls ekki
ætla að láta það spilla ánægjunni
af Íslandsheimsókninni sem var
aðeins á fyrsta degi. Næsta dag
ætluðu þau í Bláa lónið. Það hefur
sennilega verið hættuminna.
Ungt par gaf sér góðan tíma til
myndatöku á þeim stað þar sem
útsýnisplanið endaði og við tók
lokaður stígurinn niður að foss
inum.
„Þetta er ekkert vandamál fyrir
okkur,“ sagði ungi maðurinn sem
kvaðst heita David og búa í Man
chester í Englandi með Han vin
konu sinni. Bæði væru þau þó kín
versk tók David fram áður en hann
stillti sér góðfúslega upp með Han
fyrir myndatöku.
Þessa stund sem stoppað var
við Gullfoss virtust margir gestir
þar komnir vel af léttasta skeiði.
Var með ólíkindum að þeir skyldu
allir hafa staðið í fæturna alla leið
að handriðunum sem hægt var að
styðja sig við á meðan fossinn var
skoðaður úr fjarska.
Um árabil hefur verið rætt um að
úrbætur þurfi við Gullfoss. Ásborg
Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi
uppsveita Árnessýslu, segir fossinn
í umsjón Umhverfisstofnunar sem
annist þar hálkuvarnir, söltun og
söndun. Ekki var sandkorn að sjá
á svæðinu þegar Fréttablaðið var
þar á ferð. Ekki náðist í fulltrúa
Umhverfisstofnunar í gær.
„Þetta er mjög erfið staða að eiga
við í alla staði. Það virðist einhvern
veginn ekki vera hægt að landa
þessu almennilega,“ segir Ásborg.
„Við í ferðaþjónustunni erum núna
í svo nýjum aðstæðum. Það var
ekki svona ofboðslegur fjöldi hér
áður fyrr á þessum tíma.“
gar@frettabladid.is
Ferðafólki att á kaldan
klaka við Gullfoss
Ferðamenn fara sér að engu óðslega á svellinu sem þeim er hleypt út á við Gullfoss. Fréttablaðið/Pjetur
lokað er niður stíginn sem liggur síðasta spölinn að Gullfossi.
Han og David voru ánægð enda ung og
sterk á svellinu.
Flughálkan kom Norman og Önju í
opna skjöldu.
Fólkið streymdi upp og niður stigann á milli bílaplananna.
1 1 . m a r s 2 0 1 6 f Ö s t u D a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
B
C
-3
B
9
C
1
8
B
C
-3
A
6
0
1
8
B
C
-3
9
2
4
1
8
B
C
-3
7
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K