Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 52
Eitt af hundrað og fimmtíu erindum á tæplega fjörutíu málstofum Hug- vísindaþings, árlegrar ráðstefnu Hugvísindastofnunar, flytur Hlynur Helgason, lektor í listfræði, um guð- lega sjálfsmynd myndlistarmanns- ins Ragnars Kjartanssonar. Það er því af nægu að taka af fræðandi og skemmtilegum viðburðum þessa tvo daga sem ráðstefnan stendur í dag og á morgun. Hlynur tekur undir að framboðið sé svo sannarlega mikið og það sé um að gera fyrir fólk að kynna sér dagskrána og finna eitt- hvað við sitt hæfi. Í fyrirlestri sínum ætlar Hlynur að skoða hvernig myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson hefur byggt upp sjálfsmynd sína í gegnum tíðina. „Hvernig hann hefur notað gjörn- inga þar sem hann kemur sjálfur fyrir á sterklegan hátt í raun allt frá upphafi ferilsins. Ég byrja á því að skoða sem dæmi hvernig hann bar sig í vídeóum með Trabant, sem er svona aukahlutur sem hann hefur verið í. Skoða hvernig hann setur sig þar fram sem sætan ljóshærðan rokkarastrák. Í framhaldinu skoða ég hvernig hann sýnir sig í þessum verk- Listin að leggja sig, drekka kampavín og verða leiður Hlynur Helgason lektor í listfræði flytur á Hugvísindaþingi á morgun erindi um list Ragnars Kjartanssonar út frá tveim- ur grundvallarverkum listamannsins. um sem hann hefur gert á fimm ára fresti sem heita Ég og móðir mín, þar sem hann spilar á endurtekninguna með sína eigin ímynd. Þar er hann sonur sem er í ímyndunarstíl for- smáður af móður sinni í þessum leik þar sem hún hrækir á hann ítrekað. Guð og Schumann Þetta er svona upptakturinn að aðal- efninu sem er vídeóverk sem hann sýndi í Nýlistasafninu árið 2007. Þar vinnur hann með endurtekningar þar sem hann syngur á mjög drama- tískan hátt endurtekið við hljóm- sveitarundirleik Sorrow Conquers Happiness. Þetta vídeóverk ber nafn- ið Guð og þar er hann búinn að setja sjálfan sig sem listamann í guðalíki. Þetta er dálítið í stíl við Trabant og gert á sama tíma. Þarna er ímynd listamannsins sem góðs og jákvæðs afls en á móti kemur verk sem hann gerði ári síðar á Ítalíu og heitir The Schumann Machine og ég fer tals- vert mikið út í það. Við getum sagt að í Guðsverkinu sé hann að bjóða upp á nokkurs konar Appolló-týpu ef við notum Nietzsche sem bakgrunn. Þar sem Nietzsche talar um Appolló- virknina sem eldri listamannsímynd og síðan birtist þessi díonýsíska eða Bakkusar-týpa og það er þessi síðar- nefnda sem einmitt birtist svo í The Schumann Machine. Doktor Jekyll og mister Hyde Þar er hann í tvær vikur að flytja stöðugar endurtekningar á hluta af Dichterliebe eftir Robert Schumann og er að kljást við það með Davíð Þór Jónssyni píanóleikara. Þar eru þeir að drekka kampavín og reykja og að vissu leyti er þetta pólitískasti performans Ragnars þarna 2008 því hann er að fjalla um þessa djúpu undiröldu í samfélaginu. Þarna er hann að fjalla um hina bóhemísku ímynd listamannsins, nokkuð sem hann tekur síðan fyrir aftur í Fen- eyjum en þetta var að vissu leyti sterkara í Schumann Machine af því að þar eru þeir að vinna með þetta sama þema. Verða leiðir, leggja sig, fá sér kampavín, örlítið meiri kavíar, mjög skemmtileg áhersla á þessa miklu endurtekningu sem verður áhugaverð og leiðinleg en áhuga- verð í senn. Þetta er svona doktor Jekyll og mister Hyde ímynd sem Ragnar byggir upp en verður samt að sameiginlegum persónuleika sem ég legg til að hafi gert Ragnar að svona heillandi listamanni. Það er þetta sem Ragnar lagði bókstaflega á þessum árum sem hefur gefið honum þessa möguleika á alþjóðlegum vett- vangi.“ Rokkari myndlistarinnar Þrátt fyrir þessi einkenni í verkum Ragnars sé ekki endilega erfitt að greina á milli mannsins og lista- mannsins. „Ég held að í raun og veru sé Ragnar einn af þessum lista- mönnum sem fylgir forverum sínum eins og Magnús Pálsson hefði sagt: Þú greinir ekkert á milli listamanns- ins og verksins. Listamaðurinn býr til samtal og Ragnar í raun og veru fylgir því. Hann spilar svolítið á að vera þessu jákvæði bjarti náungi sem síðan leyfir sér að djamma dálítið. Við höfum líka dæmi eins og þegar hann flutti inn leikhússtúku Hitlers og ætlaði að setja hana saman en fékk á sig mikla gagnrýni. Ákvað svo, eftir að hafa ráðfært sig við móður sína, að gera það ekki og sendi frá sér yfirlýsingu. Þetta er svolítið eins og rokk- ímyndin. Þú gerir ekki greinarmun á rokkaranum og rokkinu og hann er búinn að flytja það yfir í mynd- listina. Við erum með myndlistar- menn á svipuðu róli, eins og Cindy Sherman, þar sem ímynd lista- mannsins og konan á bak við er algjört kamelljón og þú veist aldrei hvort er hvað. Þetta gerir Ragnar áhugaverðan því hann heldur þessu sem er í spennu.“ Þannig er greinilega af nægu for- vitnilegu að taka varðandi list Ragn- ars og rétt að hvetja fólk til þess að skella sér á Hugvísindaþing. Fyrir- lestur Hlyns verður á laugardaginn kl. 12 í stofu 225 í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Hlynur Helgason, lektor í listfræði, flytur á morgun fyrirlestur um list Ragnars Kjartanssonar. FRéttablaðið/VilHelm Ragnar Kjartansson: Guð, 2007. Vídeóverk á einum skjá, 30 mínútur. Útsetning og hljómsveitarstjórn: Davíð Þór Jónsson. Framleitt af thyssen-bornemisza art Contemporary, Vín og Nýlistasafninu í Reykjavík. birt með leyfi listamannsins og luhring augustine, New York & i8, Reykjavík. lJóSmYND/RaFael PiNHo. Ragnar Kjartansson: Schumann machine, 2008. Ásamt Davíð Þór Jónssyni. mani- festa 8, Rovereto, Ítalíu. Gjörningur í 8 klukkustundir. birt með leyfi listamannsins og luhring augustine, New York & i8, Reykjavík. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is HARPA SILFURBERG Mánudag 14. mars kl. 20:00 Miðaverð kr. 4.500 / 3.500 Styrkt af Miðar á harpa.is s í miðasölu Hörpu stóRsveit ReykjAvíkuR spilar latintónlist Stjórnandi: Samúel J. Samúelsson Hæ mambo 1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r32 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -2 C C C 1 8 B C -2 B 9 0 1 8 B C -2 A 5 4 1 8 B C -2 9 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.