Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þegar við fórum af
stað með hugmynd-
ina um Þær tvær, komum við
með mjög gróft handrit til
að sýna hvaða húmor við
vorum með.
„Það var eitt skipti sem við vinkon-
urnar vorum úti að hlaupa saman
að við áttuðum okkur á því að við
værum með mjög svipaðar hugs-
anir, við hlógum okkur auðvitað
máttlausar, en það var þá sem við
áttuðum okkur á því að við væru
algjörlega frábærar saman,“ segja
þær Júlíana Sara Gunnarsdóttir og
Vala Kristín Eiríksdóttir, sem eru
um þessar mundir að leggja loka-
hönd á handritsskrif fyrir aðra seríu
af sprenghlægilegu þáttunum Þær
tvær, en þættirnir verða sýndir á
Stöð 2 næstkomandi haust.
Það er óhætt að segja að Þær tvær
hafi fengið góð viðbrögð frá áhorf-
endum. Húmorinn í þáttunum er
mikill og stelpurnar eru alls ekki
feimnar við að gera skemmtilegt grín
til að fá áhorfendurnar til hlæja.
„Þegar við fórum af stað með hug-
myndina um Þær tvær, komum við
með mjög gróft handrit til að sýna
hvaða húmor við vorum með og
í kjölfarið var okkur boðið að gera
svokallaðan prufuþátt sem heppn-
aðist vel og okkur boðið að gera sex
þætti af grínefni sem var mikið ævin-
týri,“ segir Vala Kristín leikkona.
Í kjölfar fyrstu seríu, var augljóst
að stelpurnar höfðu sannað sig fyrir
framleiðendum og þjóðinni og ekki
leið á löngu þar til þeim var boðið að
gera nýja seríu þar sem meiri pening-
ur og stærra teymi kæmi til með að
fylgja þeim í framleiðsluferlinu.
„Við fáum meiri mannskap með
okkur í þetta skipti. Þegar við fórum
af stað með fyrstu seríuna voru
báðir aðilar að taka mikla áhættu,
við vorum í því að redda okkur
búningum og alls konar heima-
gerðar reddingar áttu sér stað. Núna
fáum við hins vegar búningahönnuð
ásamt framleiðsluteymi sem verður
okkur innan handar og aðstoðar
okkur við tilfallandi verkefni sem
tengjast tökunum,“ segja stelpurnar
ánægðar með viðbrögðin sem þær
hafa fengið.
Stelpurnar lofa frábærri skemmt-
un og miklu gríni í nýju seríunni þar
sem bæði nýjum og gömlum per-
sónum bregður fyrir í allskyns vand-
ræðalegum og asnalegum aðstæðum.
„Í nýju þáttunum verða persónur
sem birtast áhorfendum aftur og
aftur í bland við annars konar sketsa.
Við munum endurvekja persónur
úr fyrri seríunni, og það er alveg á
hreinu að systurnar Ágústa og Gróa
verða í miklu stuði ásamt keppnis-
vinkonunum, en þær halda áfram að
keppa um allt milli himins og jarðar.
Svo verðum við með fullt af nýjum
og spennandi persónum líka,“ sega
þær Vala Kristín og Júlíana Sara og
Þær tvær
komast á annað level
Grínþættirnir Þær tvær í leikstjórn Jóns Grétars Gissurarsonar fara í
tökur í næstu viku. Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunn-
arsdóttir leikkonur slógu heldur betur í gegn í fyrstu seríu þáttanna.
Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir leikkonur slógu heldur betur í gegn í fyrstu seríu þáttanna og fengu
frábær viðbrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Júlíana Sara og Vala Kristín eru Þær tvær.
1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r42 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
B
C
-2
7
D
C
1
8
B
C
-2
6
A
0
1
8
B
C
-2
5
6
4
1
8
B
C
-2
4
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K