Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 62

Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Þegar við fórum af stað með  hugmynd- ina um Þær tvær, komum við með  mjög gróft handrit  til að sýna hvaða húmor við vorum með. „Það var eitt skipti sem við vinkon- urnar vorum úti að hlaupa saman að við áttuðum okkur á því að við værum með mjög svipaðar hugs- anir, við hlógum okkur auðvitað máttlausar, en það var þá sem við áttuðum okkur á því að við væru algjörlega frábærar saman,“ segja þær Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir, sem eru um þessar mundir að leggja loka- hönd á handritsskrif fyrir aðra seríu af sprenghlægilegu þáttunum Þær tvær, en þættirnir verða sýndir á Stöð 2 næstkomandi haust. Það er óhætt að segja að Þær tvær hafi fengið góð viðbrögð frá áhorf- endum. Húmorinn í þáttunum er mikill og stelpurnar eru alls ekki feimnar við að gera skemmtilegt grín til að fá áhorfendurnar til hlæja.   „Þegar við fórum af stað með hug- myndina um Þær tvær, komum við með mjög gróft handrit til að sýna hvaða húmor við vorum með og í kjölfarið var okkur boðið að gera svokallaðan prufuþátt sem heppn- aðist vel og okkur boðið að gera sex þætti af grínefni sem var mikið ævin- týri,“ segir Vala Kristín leikkona. Í kjölfar fyrstu seríu, var augljóst að stelpurnar höfðu sannað sig fyrir framleiðendum og þjóðinni og ekki leið á löngu þar til þeim var boðið að gera nýja seríu þar sem meiri pening- ur og stærra teymi kæmi til með að fylgja þeim í framleiðsluferlinu. „Við fáum meiri mannskap með okkur í þetta skipti. Þegar við fórum af stað með fyrstu seríuna voru báðir aðilar að taka mikla áhættu, við vorum í því að redda okkur búningum og alls konar heima- gerðar reddingar áttu sér stað. Núna fáum við hins vegar búningahönnuð ásamt framleiðsluteymi sem verður okkur innan handar og aðstoðar okkur við tilfallandi verkefni sem tengjast tökunum,“ segja stelpurnar ánægðar með viðbrögðin sem þær hafa fengið. Stelpurnar lofa frábærri skemmt- un og miklu gríni í nýju seríunni þar sem bæði nýjum og gömlum per- sónum bregður fyrir í allskyns vand- ræðalegum og asnalegum aðstæðum. „Í nýju þáttunum verða persónur sem birtast áhorfendum aftur og aftur í bland við annars konar sketsa. Við munum endurvekja persónur úr fyrri seríunni, og það er alveg á hreinu að systurnar Ágústa og Gróa verða í miklu stuði ásamt keppnis- vinkonunum, en þær halda áfram að keppa um allt milli himins og jarðar. Svo verðum við með fullt af nýjum og spennandi persónum líka,“ sega þær Vala Kristín og Júlíana Sara og Þær tvær komast á annað level Grínþættirnir Þær tvær í leikstjórn Jóns Grétars Gissurarsonar fara í tökur í næstu viku. Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunn- arsdóttir leikkonur slógu heldur betur í gegn í fyrstu seríu þáttanna. Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir leikkonur slógu heldur betur í gegn í fyrstu seríu þáttanna og fengu frábær viðbrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Júlíana Sara og Vala Kristín eru Þær tvær. 1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r42 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -2 7 D C 1 8 B C -2 6 A 0 1 8 B C -2 5 6 4 1 8 B C -2 4 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.