Fréttablaðið - 11.03.2016, Page 12

Fréttablaðið - 11.03.2016, Page 12
Gríðarlegt svell er yfir öllu við Gullfoss þar sem ferðamenn á öllum aldri fikra sig varfærnislega í átt að náttúruperlunni. Lítið er gert til að draga úr hálkunni og gera leiðina greiðfærari. ferðaþjónusta „Nei, við áttum svo sannarlega ekki von á þessu,“ svarar Normann Winkler, þar sem hann einbeitir sér að því að standa í fæt­ urna á útsýnisplaninu við Gullfoss. Flughálir svellbunkar liggja bók­ staflega yfir öllu við Gullfoss þessa dagana. Ferðamenn flykkjast að í þúsundatali á hverjum degi en ekk­ ert er gert til að draga úr hálkunni á leið þeirra að útsýnisstaðnum. Lögregluborða hefur þó verið komið fyrir til að hindra aðgang að stígnum sem liggur lokaspottann að fossinum. Þegar útsendarar Fréttablaðsins heimsóttu staðinn eftir hádegi á miðvikudag virtu allir sem þar voru þessa lokun en það mun ekki alltaf vera tilfellið eins og fram hefur komið. Þau Anja Eberhardt og Normann Winkler sem eru hér á Íslandi í sex daga virtust gáttuð á aðstæðum við Gullfoss. „Þetta er erfið leið,“ sagði Normann og virtist feginn að vera á leiðinni til baka. Anja tók heilshugar undir með Normann. Þau virtust þó taka mál­ inu með jafnaðargeði og alls ekki ætla að láta það spilla ánægjunni af Íslandsheimsókninni sem var aðeins á fyrsta degi. Næsta dag ætluðu þau í Bláa lónið. Það hefur sennilega verið hættuminna. Ungt par gaf sér góðan tíma til myndatöku á þeim stað þar sem útsýnisplanið endaði og við tók lokaður stígurinn niður að foss­ inum. „Þetta er ekkert vandamál fyrir okkur,“ sagði ungi maðurinn sem kvaðst heita David og búa í Man­ chester í Englandi með Han vin­ konu sinni. Bæði væru þau þó kín­ versk tók David fram áður en hann stillti sér góðfúslega upp með Han fyrir myndatöku. Þessa stund sem stoppað var við Gullfoss virtust margir gestir þar komnir vel af léttasta skeiði. Var með ólíkindum að þeir skyldu allir hafa staðið í fæturna alla leið að handriðunum sem hægt var að styðja sig við á meðan fossinn var skoðaður úr fjarska. Um árabil hefur verið rætt um að úrbætur þurfi við Gullfoss. Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu, segir fossinn í umsjón Umhverfisstofnunar sem annist þar hálkuvarnir, söltun og söndun. Ekki var sandkorn að sjá á svæðinu þegar Fréttablaðið var þar á ferð. Ekki náðist í fulltrúa Umhverfisstofnunar í gær. „Þetta er mjög erfið staða að eiga við í alla staði. Það virðist einhvern veginn ekki vera hægt að landa þessu almennilega,“ segir Ásborg. „Við í ferðaþjónustunni erum núna í svo nýjum aðstæðum. Það var ekki svona ofboðslegur fjöldi hér áður fyrr á þessum tíma.“ gar@frettabladid.is Ferðafólki att á kaldan klaka við Gullfoss Ferðamenn fara sér að engu óðslega á svellinu sem þeim er hleypt út á við Gullfoss. Fréttablaðið/Pjetur lokað er niður stíginn sem liggur síðasta spölinn að Gullfossi. Han og David voru ánægð enda ung og sterk á svellinu. Flughálkan kom Norman og Önju í opna skjöldu. Fólkið streymdi upp og niður stigann á milli bílaplananna. 1 1 . m a r s 2 0 1 6 f Ö s t u D a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 B C -3 B 9 C 1 8 B C -3 A 6 0 1 8 B C -3 9 2 4 1 8 B C -3 7 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.