Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
Fréttir DV
SWDIvOIÍX
■ Enn er allt í jámum hjá Strætó
bs. Samkvæmt heimildum DV vlll
trúnaðarmannahópur vagnstj óra
að fram-
kvæmdastjóri
fyrirtækis-
ins biðjist
annaðhvort
afsökunar á
ffamkomu
í sinn garð
undanfarið
eða segi af
sér. Framkvæmdastjórinn sakar
trúnaðarmennina um ölvun í
starfl og hótar því að veita þeim
áminningu. Trúnaðarmennim-
ir hafa leitað ásjár hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar
og Ögmundur lónasson, for-
maður BSRB, hefur einnig verið
settur inn í málið. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjóm, hefur
jafnframt fundað með trúnaðar-
mannahópnum og ætlar að beita
sér íyrir því að deilan verði tekin
fyrir í borgarstjóm.
■ Guðmundur Kafnkell Gísla-
son, forseti bæjarstjórnar í
Fjarðabyggð og ástsæll söngv-
ari hljóm-
sveitarinnar
Súellen
í aldar-
fjórðung, var
rekinn úr
hljómsveit-
inni um síð-
ustu helgi.
Órökstudd
uppsögnin kom í SMS-skila-
boðum sem Guðmundur tók
eftír í hléi á hljómleikum er hann
var að spila með annarri hljóm-
sveit á laugardagskvöldið. Það
var ekki fyrr en eftír helgina sem
hann var látinn vita af því að um
hrekk hefði verið að ræða. „Ég
hafði reynt að leita skýringa á
þessu en ekki fengið nein svör,"
segir Guðmundur. Hann bætír
við að þó að hljómsveitarfélag-
ar hans séu vissulega hrekkvísir
hafi hann ekki átt von á því að
þeir myndu halda svona lengi út.
„Þetta er geymt en ekki gleymt."
■ Þeir stóðu heldur betur á önd-
inni þremenningamir í Reykja-
vík síðdegis á Bylgjunni í fýrra-
dag. Kona
hringdi inn
í þáttinn
klukkan
16.50 til að
vekja athygli
á aðstæðum
þeirra sem
þurfa aðstoð
frá Fjöl-
skylduhjálp. Hún talaði einnig
um bág kjör aldraðra og öryrkja.
Þegar kom að því að kveðja lét
konan nokkur vel valin orð falla
um hjúkrunarkonu sem hún
sagði að farin væri að halda við
manninn sinn. „Ég ætla að skila
kveðju tíl geðhjúkrunarfræðings
á Landspítalanum," sagði hún og
vísaði til þess að viðkomandi ættí
í holdlegu sambandi við mann
sinn.
■ Nú þegar lið Akumesinga og
ísfirðinga hafa verið dregin sam-
an til glímu
í spuminga-
keppninni
Útsvar í Rík-
issjónvarp-
inu er ekíá
laustvið að
kvíða gæti
í herbúð-
um liðanna.
Nú blogga fsfirðingar um það
að baráttan geti orðið erfið því
andstæðingamir fr á Akranesi séu
bæði verðugir og snjallir. Akur-
nesingar, með Guðríði Haralds-
dóttur sérfræðing í Ólíver Tvist, í
fararbroddi ræða nú um það sín á
milli að þetta sé bragð fsfirðinga
tíl þess að fylla sig óþarfa sjálfsör-
yggiogværukærð.
einar@dv.is
Hjonabond til athugunar Tugur mála er í
skoðun hjá Útlendingastofnun þar sem grunur
leikur á að um málamyndahjónaband sé að ræða.
Fjölskylda frá Víet-
nam sem kom hingað
sem flóttamenn árið
1991 hefur flutt fjölda
Víetnama til landsins
með því að finna ís-
lenska ríkisborgara
sem tilbúnir eru til að
giftast þeim gegn
greiðslu og útvega
þeim þannig landvist-
ar- og atvinnuleyfi.
Málamyndahj óna-
bandið var einum ekki
eins einfalt og honum
var talin trú um.
GIFTISIG stilis
FYRIR PENINGA
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladamadm skrifar: eilan' dv.is
Fjölskylda frá Víetman sem kom
hingað til lands frá Kína sem flótta-
menn árið 1991 hefur flutt fjölda
Víetnama til landsins með því að
finna íslenska ríkisborgara sem til-
búnir eru til að giftast þeim gegn
greiðslu og útvega þeim þannig
landvistar- og atvinnuleyfi. Þetta
fullyrðir heimildamaður DV sem
gekk sjálfur í málamyndahjóna-
band gegn 40 þúsund dollara
greiðslu, eða um 2,5 milljóna króna
á núvirði. Hann er hræddur við að
koma fram undir nafni vegna ör-
yggis fjölskyldu sinnar auk þess
sem hann myndi þá opinberlega
játa á sig glæp.
Fékk greitt fyrirfram
Viðmælandi DV ákvað á sínum
tíma að slá til þegar honum buð-
ust 2,5 milljónir fyrir að ganga í
hjónaband og taldi það auðfengið
fé. Hann kynntíst víetnamskri fjöl-
skyldu í gegnum kunningja sína og
fékk brátt slíkt tílboð. Honum var
sagt að málamyndahjónabandið
væri mjög einfalt, hann fékk hluta
greiðslunnar fyrirfram, annan hluta
þegar út var komið og átti að fá
lokagreiðslu þegar allt væri klappað
og klárt hér heima. Hann gekk upp
að altarinu í Víetnam með konu
sem hann þekkti ekkert og talaði
hvorki íslensku né ensku. Á fölsuð-
um pappírum sem maðurinn hefur
undir höndum voru tveir unglingar
skráðir börn konunnar en þeir voru
ekki skyldir henni í raun heldur var
tílgangurinn aðeins að koma þeim
tíl íslands. Við giftinguna var tekinn
fjöldi ljósmynda sem sýna áttí Út-
lendingastofnun sem sönnun fyrir
ást parsins.
Vinna myrkranna á milli
Samkvæmt heimildum DV
verða þeir sem fluttir eru til lands-
ins á þennan hátt að láta allar tekj-
ur sínar af hendi fyrstu árin, eða þar
til skuldin við þá sem komu þeim
hingað er greidd. Dæmi eru um að
fólk vinni myrkranna á milli, sofi á
dýnum og fái næringarlítinn mat að
borða.
Málamyndahjónaband viðmæl-
anda DV gekk ekki eftir og hefur
viðmælandi blaðsins endurgreitt
víemömsku fjölskyldunni meiri-
hluta þess sem hann hafði fengið
greitt. Hann segist sjá eftir þessum
kafla lífs síns og hefur íhugað að
gera hreint fyrir sínum dyrum hjá
yfirvöldum en treystir sér vart til
þess vegna þeirrar fjölskyldu sem
hann á nú.
Átti að giftast frænku
ástkonunnar
I samtali við DV fimmtudag-
inn 6. desember sagði Guðmundur
Óli Hrafnkelsson frá þvf að honum
voru boðnar 2,5 milljónir króna fyr-
ir að giftast víemamskri konu. Fyrr-
verandi ástkona hans sem er ættuð
frá Víetnam taldi hann á að gift-
ast ffænku hennar gegn greiðslu.
Guðmundur sá ffarn á að kaupa
sér hús með ástkonunni en á hann
fóru að renna tvær grímur þegar
hann heyrði að fjölskylda stúlkunn-
ar væri ekki að leika þennan leik í
fyrsta skipti.
Gísli Garðarsson, lögreglufull-
trúi hjá útlendingadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, stað-
festí við DV að Guðmundur hefði
komið á fund Þórðar Erics Ericson,
rannsóknarlögreglumanns deild-
arinnar, og sagt honum frá reynslu
sinni.
Sönnunarbyrðin erfið
í kjölfar þrengingar á útgáfu
atvinnuleyfa fyrir ríkisborgara
utan EES árið 2005 hefur
Útlendingastofnun orðið vör við
fjölgun mála þar sem grunur leikur
á að um málamyndahjónaband sé
að ræða. Hildur Dungal, forstjóri
Útíendingastofnunar, segir
alltaf einhver mál í skoðun hjá
stofnuninni þar sem grunur leikur á
að um málamyndahjónaband sé að
ræða og nú séu þau um tíu talsins.
Stofnunin hefur hafiiað fjórum
málum á þessu ári þar sem íslenskir
rikisborgarar hafa átt í hlut.
Það sem er oft erfiðast í þessum
málum er að sýna ffam á að grun-
ur sem er til staðar sé rökstuddur
líkt og lögin kveða á um, þannig að
ekki öllum málum þar sem grunur
er tíl staðar er hægt að hafna. Það
á auðvitað fyrst og fremst við vegna
þess að um tvo viljuga þátttakend-
ur er að ræða og þá reynir fyrst og
fremst á að sýna ffam á ósamræmi
hjá aðilum.
Igf’ Innréttingar allra manna
SKÁLDIÐ SKRIFAR
KRISTJÁN HREINSSON SKÁLD SKRIFAR.
Síðustu vikurnar hafa ýmsir kastað
rýrð á innræti Atla Gíslasonar þing-
manns vegna þess að hann hefur gerst
boðberi válegra tíðinda. Atli hefur
einfaldlega bent á það að seljandi fasteigna
ríkisins og einn af kaupendum sömu
fasteigna, eru bræður, það er að segja Ámi
Mathiesen fjármálaráðherra og Þorgils Óttar
Mathiesen. Það er semsagt maðkur (mysunni
og hagsmunaárekstrar virðast augljósir.
Engu að síður vilja sjálfstæðismenn meina að
Atli sé að veiða í gruggugu vami, um leið og
ráðamenn reyna að róta yfir söguna og leyna
gögnum sem Atli vill að alþjóð sjái.
Sannleikurinn þarf að ná yfirborðinu og þá
gildir einu hvort það er dýralæknirinn eða
ormaveiðimaðurinn sem upplýsingum kem-
ur á framfæri. Aðalatriðið er að þjóðinni takist
Iiikid og ríkid lögdust á eitt enfólkiö bjargaöi innréttingunum.
að koma í veg fyrir að illa innrétt-
að fólk fái að valsa um stjómkerfið
útbýtandi ríkiseigum til þess eins
að gera ríka menn ríkari.
Og annar sannleikur leit dags-
ins ljós eftir að bolurinn á Seyðis-
firði greip til sinna ráða og stöðv-
aði niðurrif innréttinga í húsi ÁTVR. Þar kom
umræddur fjármálaráðherra við sögu, því
þeir hjá ÁTVR segja að niðurrifið hafi verið
ákveðið í samráði við fjármálaráðuneytið.
Ríkið og ríkið lögðust á eitt en fólldð bjarg-
aði innréttingunum.
Ofangreint á sér stað á sama tíma og er ver-
ið að selja þjóðinni innréttingar úr hugskoti
Guðna Ágústssonar. Og það merldlega er, að
Guðni þessi er formaður Framsóknarflokks-
ins - flokksins sem lfkist fremur glæpaklíku
en heiðvirðum stjórnmálaflokki,
flokksins sem veitt hefur mönn-
um eigur ríkisins og gert þá marga
ríka.
Þegar ég les um þær innrétting-
ar sem sagðar em leynast í bókinni
um Guðna, þá verður mér ljóst að
þar er á ferð einstaklega léleg bók sem hefur
það eitt að markmiði að fegra það sem aldrei
getur fagurt orðið. Samtímis verður mér ljóst
að Guðni talaði af reynslu þegar hann sagði
það á hrútasýningu að betra væri að hafa góð-
ar hægðir en miklar gáfur.
Afmiklum gáfum monta þeir
semminnihaf' ígnœgðum
en Guðni karlinn getur meir
gortað sig afhœgðum.