Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 8
I
8 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
---------------ö----------
Fréttir DV
annarra.
Glaðbeitt Hillary Henni
hefur oft verið borið á brýn að
vera kaldlynd og stjórnsöm.
Bill Clinton og Monica Lewinsky Kynni þeirra áttu
eftir að draga dilk á eftir sér.
Clinton-hjónin og Chelsea dóttir þeirra Upp úr
1997 lenti Hillary í miklum hremmingum vegna
kvensemi eiginmanns síns, forsetans.
Óhætt er aö segja aö í lífi Hill-
ary Clinton hafi skipst á skin og
skúrir. Strax í bernsku varð
ljóst aö þar fór manneskja meö
ákveðnar skoöanir og sannfær-
ingu. Ferill hennar hefur ein-
kennst af einlægum áhuga á
félagslegu jafnrétti og málefn-
um fátækra, sem og miklum
metnaði og sjálfstæði. Sem for-
setafrú þurfti hún oftar en einu
sinni að glima við eftirmála
kvensemi eiginmanns sins.
JGERMEÐ,
OGÉGERMEÐ
TILAÐSIGRA"
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
bladamadui skrifar: kolbeinntyfv.is
Hillary Clinton fæddist 26. október
1947 í Chicago í Illinois-fylki í
Bandaríkjunum. Foreldrar hennar
voru meþódistar; faðir hennar af
velskum og írskum ættum og móðir
hennar af ensku bergi brotin. Strax á
unga aldri sýndi hún af sér dugnað
og ákveðni. Hún tók þátt í kirkju- og
skólastarfi í almenningsskólanum í
Park Ridge og hóf síðan nám í Maine
East-miðskólanum ogþaðan láleiðin
í Wellesley-ff amhaldsskólann.
Að framhaldsskólanámi loknu
hóf Hillary Clinton lögfræðinám við
Yale-háskólann 1969, en ffarn að
þeim tíma hafði hún stutt repúbli-
kana með ráðum og dáð, en rauði
þráðurinn í áherslum hennar sneri
að baráttu fyrir réttindum þeldökkra
enda hafði hún orðið fyrir miklum
áhrifum frá Martin Luther King og
hafði hitt hann í Chicago árið 1962.
Síðla vors 1971 hitti Hillary verð-
andi eiginmann sinn Bill Clinton og
það sumar var hún í starfsþjálfun
hjá lögfræðistofu sem þekkt var fyr-
ir stuðning við stjórnarskrárbundin
réttindi, borgaralegan rétt og róttæk-
ar áherslur. Arið 1973 útskrifaðist
Hillary Clinton fr á Yale með doktors-
gráðu í lögum, en hún var í skólan-
um einu ári lengur en nauðsyn krafði
svo hún gæti verið samvistum við
Bill Clinton. Bill bað hennar í kjöl-
far útskriftar hennar, en hún hafnaði
bónorðinu. Hún hóf framhaldsnám
í miðstöð barnarannsókna Yale-há-
skóla með áherslur á börn og fyf.
Hagsmunir barna og velferð
Upp úr 1970 vann Hillary Clinton
við ýmis störf sem snéru að hags-
munum barna auk þess sem hún
var meðlimur rannsóknarnefndar
um embættisafglöp í Washington-
fylki. Starf þeirrar nefndar náði há-
marki þegar Richard M. Nixon, þá-
verandi forseti Bandaríkjanna, sagði
af sér vegna Watergate-málsins.
Á þeim tíma hafði hún getið
sér orðspor sem rísandi stjarna í
stjórnmálum og ekki talið loku fyrir
þaðskotiðað hún gæti orðið öldunga-
deildarþingmaður eða jafnvel for-
seti. Þrátt fyrir að hafa unnið um
tíma í Washington hafði henni
mistekist að fá málflutningsréttindi
í því fylki. Því var aftur á móti ekki
að dreifa í Arkansas og þess vegna
tók hún þá ákvörðun árið 1974 að
fylgja Bill Clinton til heimafylkis
hans. Á þeim tíma kenndi Bill lög-
fræði við lagadeild háskóla Arkans-
as samhliða því sem hann keppti að
sæti í fulltrúadeild Bandaríkjanna.
Hillary Clinton fékk stöðu sérkenn-
ara við sama skóla og var önnur
tveggja kvenna sem gegndu slíkri
stöðu. Enn hafði hún efasemdir um
hjónaband.
Hjónaband
Bill Clinton og Hillary Rodham
gengu í hjónaband 11. október árið
1975, en Bill hafði ítrekað borið
fram bónorð. Til að undirstrika eig-
ið sjálfstæði og aðskiija einkah'f og
starfsframa tók Hillary þá ákvörðun
að halda eigin eftímafni, mæðrum
þeirra beggja til mikils hugarangurs.
Arið 1976 var Bill kjörinn ríkis-
saksóknari Arkansas og hjónin fluttu
til Littíe Rock, höfuðborgar fylkisins.
Hillary hóf störf hjá Rose-lögfræði-
stofunni og sérhæfði sig í einkaleyf-
is- og höfúndarréttarlögum.
Hjónin voru bæði á framabraut og
1979 varð Bill Clinton rfldsstjóri Ark-
ansas og sama ár varð Hillary með-
eigandi í Rose-lögfræðistofunni. Bill
var rfldsstjóri Arkansas samfleytt til
1992, ef undan eru skilin árin 1981 tíl
1983, er hann náði ekki endurkjöri til
embættisins, og þar til þau fluttu inn
í Hvíta húsið 1993 aflaði hún meiri
tekna en eginmaður hennar.
f febrúar 1980 fæddist þeim dótt-
irin Chelsea og er hún þeirra eina
bam.
Forsetafrú og kvensemi
eiginmanns
Hillary Clinton er önnur tveggja
eiginkvenna Bandaríkjaforseta sem
státaði af eigin starfsferli og hafði
háskólagráðu. Það varð mjög fljót-
lega ljóst að hún myndi ekki verða
dæmigerð forsetafrú og hafði Bill
ýjað að því í undanfara kosninganna
er hann sagði að ef hann næði kjöri
fengju Bandarfldn „tvö á verði eins"
og sía'rskotaði með því til þess áber-
andi hlutverks sem hún myndi
leika.
Það sem eflaust stendur upp
úr í huga fólks varðandi forsetatíð
Clintons eru hneykslismálin. Þau
hófust strax í kosningabaráttunni
þegar Bill Clinton var sakaður um
hjúskaparbrot með konu að nafhi
Gennifer Flowers. Hjónin komu
fram í sjónvarpsþættinum 60
mínúturþarsemBillhafnaðiásökun-
unum, en viðurkenndi þó að hafa
valdið sársauka í hjónabandinu.
Arum síðar viðurkenndi hann að
framhjáhaldið hefði átt sér stað en
hefði ekki verið eins alvarlegt og
haldið var ffarn.
Síðar eitu draugar úr fortíðinni
hjónin uppi á ný vegna fjármála-
hneykslis sem kennt var við White-
water og tengdist gjaldþrotí og
bankahneykslivegnabyggingaffam-
kvæmda.Sannanirgegnforsetahjón-
unum voru ekki nægar til ákæru og
urðu það lyktir þess máls.
Monica Lewinsky
En óveðursský hrönnuðust upp
útíviðsjóndeildarhringinn. Arið 1997
sakaði Paula nokkur Jones Bill um
kynferðislega áreitni og málalyktír
urðu þær að samið var í málinu.
Það var skammgóður vermir og árið
1998 beindust augu almennings að
forsetahjónunum sem aldrei fyrr er
upp komst um samband hans við
Monicu Lewinsky sem var lærlingur
í Hvíta húsinu á þeim tíma. Enn og
aftur hafnaði Bill öllum ásökunum
í þá veru og Hillary smddi sem fyrr
við bakið á sínum ektamanni. Hún
fullyrtí að um væri að ræða síðasta
útspil hægri afla í ófrægingarherferð
gegn manni hennar. Annað átti eftír
að koma á daginn og á endanum átti
Bill ekki annan kost en að viðurkenna
hjúskaparbrot sitL Hann var ákærður
fyrir embættisbrot, meinsæri og að
hindra framgang réttvísinnar. Það
er rétt hægt að ímynda sér ástandið
í þeirra ranni á meðan þessi orrusta
stóð yfir, en út á við var Hillary eins og
klettur og gaf út opinbera yfirlýsingu
þar sem hún staðfestí þann ásetning
sinn að standa við skuldbindingar
hjónabandsins.
Hillary Clinton Hennar bíður
þungur róður í baráttu sinni fyrir
forsetastólnum.
SVO SAGÐI
HILLARY
I Bibliunni segir að þeir hafi spurt
Jesú hve oft skuli fyrirgefa og hann
svaraði 70 sinnum sjö. Nú vil ég að
þið vitið að ég er með reiknings-
hald.
Ef ég vil koma frétt af forsiðunni
breyti ég um hárgreiðslu.
Ég er ekki einhver Tammy Wynette-
stattu með strák-kona.
Þú sýnir fólki fyrir hverju þú ert
reiðubúinn að berjast þegar þú
berst við vini þína.
Sannferðugt lýðræði getur ekki
orðið nema raddir kvenna heyrist.
Ég verð að viðurkenna að það hefur
hvarflað að mér að þú getir ekki ver-
ið hvort tveggja repúblikani og
kristinn.
Þið vitið að fólk þénar háar
fjárhæðir á að tala um mig, ekki
satt? Þeir fara í þennan þátt eða
hinn og tala frá sér allt vit. Ég get
ekkert gert í því. Og það er ein af
þeim lexíum sem ég reyni að sýna
fram á i bókinni minni - og móðir
min innprentaði mér í æsku - þú
getur annaðhvort verið aðalleikari í
þínu lífi eða aukaleikari í lífi
Ég geri ráð fyrir að ég hefði getað
verið heima og bakað smákökur og
drukkið te, en það sem ég kaus að
gera var að sinna starfsferli mínum
sem ég hóf áður en eiginmaður
minn varð opinber persóna.
(Bill) er hundur sem erfitt er að
halda á veröndinni.
Öldungadeild og
forsetaframboð
Arið 1998 opnuðust nýjar dyr fyrir
Hillary Clinton. Þá ákvað öldunga-
deildarþingmaður frá New York,
DanielPatrickMoynihan, að draga sig
í hlé. Nokkrir áberandi demókratar
hvöttu þá Hillary til að sækjast
eftír sætí hans í öldungadeildinni í
þingkosningunum sem fram færu
árið 2000. Það varð úr og hjónin
fjárfestu í heimili í New York og varð
Hillary fyrsta forsetafrúin í Banda-
rílqunum sem bauð sig fram til
opinbers embættis. Mótherji henn-
ar var upphaflega Rudy GiuUani,
borgarstjóri New York, en hann varð
að draga framboð sitt tíl baka vegna
veikinda. f hans stað kom annar
repúblikani, Rick Lazio. Að lokinni
afar kostnaðarsamri kosningabar-
áttu hafði Hillary CUnton sigur í
kosningunum 7. nóvember árið
2000 með tólf prósenta mun og sór
eið sem öldungadeildarþingmaður
í ársbyrjun 2001. Arið 2004 tUkynntí
Hillary að hún myndi sækjast eftir
sætí í öldungadeildinni annað kjör-
tímabil og eftir að hafa eytt hærri
fjárupphæð en nokkur keppinauta
hennar í þeirri baráttu hafði hún
sigur.
HiUary var orðuð við embætti
forseta Bandaríkjanna ári 2002
og nú berst hún fyrir útoefningu
flokks síns sem frambjóðandi til
embættísins. Hennar helsti keppi-
nautur er Barack Obama og sam-
kvæmt skoðanakönnunum er vart
marktækur munur á fylgi þeirra.
Þegar HiUary tíUcynntí ákvörðun um
framboð sitt sagði hún: „Ég er með,
og ég er með til að sigra".