Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 15
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 15
að fá að fara í buxur með vasa, svo
hann geti geymt bréfið í vasanum.
Benjamín virðist vera í nokkrum
vafa um það hvort hann vilji fara
heim til sín eða vera áfram á spít-
alanum, þar sem hann ekur vask-
lega um á þríhjóli og lætur slöngu í
handleggnum ekki trufla sig.
Sterk tengsl við starfsfólk
Eygló segir vistina á Barnaspít-
ala Hringsins í gegnum tíðina hafa
verið einstaka. „Það er svo notalegt
að vera hérna og starfsfólkið hefur
alltaf verið svo yndislegt, afslappað
og óformlegt," segir hún. Um skeið
voru þau einnig á spítala í Svíþjóð.
Eygló segir það vissulega hafa verið
góða dvöl.
„Við eigum samt sem áður miklu
sterkara samband við starfsfólkið
hérna og það er gagnkvæmt. Hún
Snjólaug Sigurbjörnsdóttir tók til
dæmis á móti okkur þegar við kom-
um fyrst og hefur fylgt okkur allan
tímann. Þetta er mjög mikilvægt,"
segir Eygló.
' 'L . ■
mm iX*n ■vTm ■
■WlllTOiI lil |XB99gSE||
Leikskólakennarar Þær Sigurbjörg
Guttormsdóttir og Áslaug Jóhanns-
dóttir sjá um leikstofuna á
Barnaspítala Hringsins.
Austurbæjarskóli rekur útibú á Barnaspítala Hringsins:
REYNUM AÐ MÆTA ALLRA ÞÖRFUM
„Jaínvel þótt við séum grunn-
skóli höfúm við komið okkur upp
aðstöðu þannig að menntaskóla-
krakkar geta stundað sitt nám
hérna. Það gera þau með fartölv-
um og fjarnámi," segir Helga Þórð-
ardóttir, kennari á Barnaspítala
Hringsins.
Helga segir að skólastarfið miðist
við að mæta þörfum barnanna, sem
séu ærið misjafnar. „Sum þeirra eru
inniliggjandi í langan tíma og þá
fer kennslan að mestu leyti ífarn
hérna hjá okkur. Önnur koma
reglulega, kannski nokkra daga í
hverjum mánuði, og þá er mikil-
vægt að börnin missi ekki úr nám-
inu." Helga og samstarfsfólk hennar
í grunnskóladeildinni á spítalanum
eru því í nánu sambandi við um-
sjónarkennara bamanna í skólum
þeirra. Hún bendir á að í desember
geti verið mikið að gera hjá börnun-
um, enda standi prófin sem hæst.
f leikstofunni eru svo þær Sig-
urbjörg Guttormsdóttir og Áslaug
Jóhannsdóttir, sem báðar em leik-
skólakennarar. „Við reynum að út-
búa þetta þannig hjá okkur að leik-
stofan sé hjartað í húsinu," segir
Sigurbjörg. „Það er ekki bara smá-
fólkið sem kemur hingað til okkar
því hérna dvelja krakkar allt að átj-
án ára aldri."
Leikskólakennararnir á Bama-
spítalanum fara svo og heimsækja
þau börn sem eru rúmliggjandi og
komast ekki niður í leikstofuna. „Við
reynum að hafa þetta eins vinalegt
og við getum og kralckarnir virðast
vera ansi glaðir," segir Áslaug.
sigtryggur@dv.is
Glacier Knit
3490kr
Seafarer Jean
3190kr
Praise the Board Tee
2290kr
Mini Tara Lined Knit
5590kr
Manu Jean
3190kr
Milly Layer Tee
1990kr
Jnr Kenora Jnr Shaggy Boot Jnr Sherpa Slipper Mini Kintyre Boot
Slipper Slipper 1790kr 5590kr
1990kr 1990kr