Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 25
DV Menning
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 25
Gömlu íslensku jólin
Terry Gunnell heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafni fslands á morgun um
gömlu íslensku jólin. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku og fjallar um trú
og siði kringum íslensku jólin i aldanna rás, frá heiðnum goðum til
gárunga og hrekkjóttra íslenskra jólasveina. Terry hefur lag á að segja
frá á leikrænan og lifandi hátt og ætti allur almenningur að hafa
ánægju af fyrirlestri hans.
Óbeisluð öfl
Ragnheiður Arngrímsdóttir opnaði á dögunum
Ijósmyndasýninguna Óbeisluð öfl í versluninni
Steinunni á Laugavegi 40. Ragnheiður er flugmað-
ur, förðunarfræðingur og áhugaljósmyndari.
Sýningin stendur fram á þriðjudag.
Ballið á Bessastöðum Gerði fannst
kominn tími til að skrifuð væri bók þar
sem forseti islands væri í aðalhlutverki.
í fyrri ljóðabókum Gerðar. „Mað-
ur er sífellt að finna nýja fleti á
þeim og það er ágætt að setja þá
fram í ljóði. Ég var einmitt að lesa
ljóð eftir Ingibjörgu Haralds um
daginn. Það fjallar um að sonur
hennar þekki ekki Gunnar á Hlíð-
arenda en þeir Súpermann séu
góðir vinir. Ég var að lesa þetta
við eldhúsborðið og gegnt mér sat
einmitt þriggja ára gamall sonur
minn og var að skoða Njálu eftir
Brynhildi Þórarinsdóttur. Honum
finnst hann vera Gunnar á Hlíðar-
enda og skikkar okkur foreldrana
stundum líka í hlutverk. í morg-
un fékk ég að vera Hallgerður og
Kristján [B. Jónasson] fékk að
vera Kári. Við vorum alveg sátt við
það, enda sýnir þetta hvað góðar
barnabækur geta haft mikil áhrif.
Ég myndi ekki rétta barninu mínu
hefðbundna útgáfu af Njálu en ég
rétti því hiklaust Njáluna hennar
Brynhildar. Það er nefnilega alveg
sama á hvaða aldri maður er, mað-
ur finnur alltaf eitthvað sniðugt í
íslendingasögunum."
Prófa að detta niður stiga
Gerður segir það ekki meðvit-
að hjá henni að vinna með íslend-
ingasögurnar. „Það hefur bara
gerst. Hallgerður fékk ljóð í ísfrétt
og Bergþóra fékk ljóð í Launkofa
og í Höggstað birtist Hallgerð-
ur aftur. Mér finnst bara gaman
að velta íslendingasögunum fyrir
mér."
Annar merkur fslendingur, sem
er nokkuð nær okkur í tíma og var
mikið í umræðunni fyrir stuttu,
mætir líka til leiks í nýju bók-
inni: Jónas Hallgrímsson. „Ég hef
nú aldrei legið mikið yfir verkum
Jónasar. Aðrir höfundar hafa heill-
að mig meira en ég fór að velta fyr-
ir mér dauðdaga hans, hvernig það
hafi verið að vera nágranni Jónas-
ar, hann svona oft fullur og hvort
nágrannar hans hafi orðið var-
ir við einhver læti þessa nótt sem
hann datt í stiganum. Ég hef reynt
að komast inn í þennan stigagang
en hann er alltaf læstur svo það er
engin leið að athuga hvort mað-
ur geti dottið niður tröppurnar
af sama myndarbrag og skáldið."
Af hverju er hann læstur? „Þarna
býr bara ósköp venjulegt fólk sem
kærir sig ekkert um óða fslendinga
í pílagrímsferð að leika Jónas. Ann-
ars er þetta með frægustu tröpp-
um íslandssögunnar og því væri
ef til vill ekki úr vegi ef íslenskir
athafnamenn tækju sig saman og
keyptu þær. Tröppurnar heim!"
Ljóð tileinkað Helga tattú
Enn annar þjóðkunnur íslend-
ingur fær líka ljóð um sig í Högg-
stað, hann Helgi tattú sem lést í
fyrra. Þau Gerður kynntust árið
^ldsdötti,
1994. „Hann var feikiskemmtilegur
og einhverra hluta vegna náðum
við vel saman. í fyrra hafði hann
samband við mig og vildi endilega
að ég skrifaði ævisögu hans. Hann
vissi að hann átti stutt eftir, kom-
inn með krabbamein. Ég var nú
ekki alveg á því að skrifa heila bók
um hann Helga en fékk að taka
við hann langt viðtal sem birtist í
Mogganum. Helgi er ógleyman-
legur maður og ég var heppin að
kynnast honum. Og fyrst Jónas og
Hallgerður og Anna Frank voru
komin í ljóðabókina mína fannst
mér að Helgi tattú ætti að vera þar
líka, enda setti maðurinn mark
sitt á margan fslendinginn," seg-
ir Gerður sem skartar einni mynd
eftir Helga, sverði Skírnis, sem
hún fékk sér í tilefni af útkomu
fyrstu skáldsögu sinnar. „Sverðið
er aftan á öðrum fætinum. Skírnir
var skósveinn Freys og fór í Jötun-
heima að sækja fyrir hann konu,
hana Gerði. f staðinn fékk Skírn-
ir sverð Freys," útskýrir Gerður
en þess má geta að sonur hennar
heitir einmitt Skírnir.
Blaðamanni finnst ljóðin í
Höggstað óræðari en þau í Laun-
kofa. Skáldið vill ekki alveg skrifa
undir það. „Sjálfri finnst mér hún
ekkert lokaðri og flóknari en ljóðin
hafa vissulega lengst hjá mér með
tímanum. Ég hef orðið óragari við
að yrkja lengri ljóð. Ég þori sífellt
meiru." Þroskaðri? „Nei, ég þrosk-
ast ekki neitt nefnilega. Gaman að
segja frá því," segir Gerður og hlær.
Og bætir við: „Annars veit ég það
ekki, það er erfitt að segja til um
það sjálf."
Áhrif barneigna á skáldskap
Frá því Gerður sendi síðast
frá sér ljóðabók hefur hún eign-
ast barn. Og annað er á leiðinni.
Hún telur að það hafi ekki breytt
miklu þegar kemur að skáld-
skapnum. „Nema fyrir barnabók-
ina. Sonur minn hefur sýnt mér
fram á að gröfur og þungavinnu-
vélar ýmiss konar eru mjög mikil-
vægar í bókum," segir Gerður og á
þar við Ballið á Bessastöðum þar
sem gröfur koma nokkuð við sögu.
„Gröfur eru mjög myndrænar og
skemmtilegar. Allt í einu fór mað-
ur að taka eftir þeim því barnið
bendir á hverja einustu gröfu sem
ekið er framhjá."
f stuttu máli fjallar Ballið á
Bessastöðum um nokkra daga í
lífi forseta íslands. Honum leið-
ist í vinnunni, eyðir löngum tíma
í að fara yfir bréf með riturunum
sínum þremur þar sem honum
er boðið á hinar ýmsu samkom-
ur og mannamót og hefur nokkr-
ar áhyggjur af því hvort hann eigi
að veifa börnum með hægri eða
vinstri hendi. „Við höfum forseta
en samt erum við alltaf að lesa
sögur um kónga og drottninga og
prinsa og prinsessur," segir Gerð-
ur. „Mér fannst bara kominn tími
til að við skrifuðum bók þar sem
forsetinn væri í aðalhlutverki. Ég
er líka viss um að Ólafur Ragn-
ar eða Dorrit veki áhuga hjá litl-
um krökkum. Þau hljóta að spyrja
foreldra sína fyrr eða síðar í hverju
starfið hans felist."
Farin að kunna mig
Er pólitík í þessari bók? „Nei,
nei, það er engin pólitík í henni.
Þarna er heldur ekki verið að fjalla
um Ólaf Ragnar eða einhvern
annan forseta sem við höfum haft
heldur uppdiktaðan forseta," seg-
ir Gerður og bætir við aðspurð
að hún sé heldur ekki að skjóta á
embættið sjálft og þau embætt-
isstörf sem því fylgja. „Mér finnst
heldur engin ástæða til þess."
Gerður veit ekld hvort forsetinn
Freyja hlaut nýverið
hvatningarverðlaun
Öryrkjabandalags Islands,
fyrir frumkvöðlastarf sitt
og áhrif til að breyta viðhorfi
fólks til fatlaðra.
rnur'd»dóttir
ttQ
------------
almáogf reyja. blog. is
Freyju var ekki hugað líf. í dag
hefur hún afrekað meira en
margir á hennar aldri.
Postulín er viðburðarík og
áhrifamikil saga ungrar konu
sem lætur ekkert stoppa sig.
Alma Guðmundsdóttir skráði
söguna með Freyju.
„Draumur Freyju ersamfélag án mismununar
... hún er nútímahetja sem brýtur staðalmyndir."
Gunnar Hersveinn
Mbl.
Bessastaði áður og þá sem blaða-
maður á Séð og heyrt. Því var þetta
raunverulega í fyrsta skipti sem ég
heimsæki Bessastaði. Ég skoðaði
mig aðeins um og athugaði hvort
staðurinn samræmdist því sem
ég hafði gert mér í hugarlund og
komst að því að það er svona krist-
alsljósakróna þarna," segir Gerð-
ur og bendir á ljósakrónuna á
myndinni framan á bókinni. Þar
sést líka stelpa á hjólabretti sem
að sögn Gerðar hefði átt erfitt um
vik á Bessastöðum á slíkum farar-
skjóta „... vegna þess að það er svo
mikið af mottum þarna. Stórum og
miklum. Svo komst ég að því ráðs-
konan heitir ekki Halldóra eins og
í bókinni heldur Kristín, en það er
líka fínt nafn á ráðskonu".
Leynigesturinn og púkinn
Að mati Gerðar eiga barna-
bækur fyrst og fremst að vera
skemmtilegar og boðskaður er
alveg óþarfur. „Það minnir mig
bara á sögurnar sem lesnar voru
í sunnudagaskólanum þar sem
börn báðu svo heitt og innilega
til Guðs að þau björguðust frá
drukknun og hvers kyns hrakför-
um sem undarlega innréttuðum
höfundum gat dottið í hug. En ef
hægt er að lauma þekkingu með
á smekklegan hátt finnst mér það
til mikilla bóta. Ég skaut Egilssögu
inn í Mörtu smörtu hér um árið
og í Ballið á Bessastöðum lauma
ég inn fróðleik um forsetaemb-
ættið, til dæmis því að hann býr á
argötu. Svo vildi ég endilega hafa
myndir af öllum forsetunum aft-
ast í bóldnni og hvenær þeir sátu
í embætti," segir Gerður og sýnir
blaðamanni teikningar Halldórs
Baldurssonar af öllum forsetun-
um frá stofnun lýðveldisins. „Ef
krakkarnir nenna mega þeir alveg
taka eftir þessu en ef þeir vilja það
ekki er það allt í lagi líka."
Athygli vekur að teikningin af
einum gröfustjóra í bókinni er slá-
andi lík Ólafi Ragnari. Blaðamanni
leikur forvitni á að vita hvort það
var hugmynd Gerðar, Halldórs
eða einhvers allt annars. „Það var
mín hugmynd. Ég lýsti honum
sem ljóshærðum með gleraugu og
sagði Halldóri að hann mætti al-
veg vera eins og Ólafur Ragnar svo
hann gæti birst þar sem leynigest-
ur. Það kemur stundum upp í mér
púki svo það er kannski rétt sem
ég sagði áðan að ég þroskist ekki
mildð."
En ætli blundi í Gerði draum-
ur um að verða einn daginn for-
seti íslands? „Neeei, það myndi
ekki henta mér. Ég gæti heldur
aldrei sagt eins og forsetafram-
bjóðendurnir, að margir hafi kom-
ið að máli við mig og hvatt mig til
að bjóða mig fram. Eg er nokkurn
veginn viss um að engum eigi eftir
að detta það í hug. En ég sé ágæt-
lega yfir að Bessastöðum heiman
að frá mér og ef ég fengi mér nógu
sterkan kíki gæti ég séð forseta-
hjónin skondrast á milli húsa. Það
verður bara að duga." kristjanh@dv.is
rm\
Salká www.salka.is
4*4.
Höggstaður Bókin hefur fengið
afbragðsdóma og var á dögunum
tilnefnd til (slensku bókmenntaverð-
launanna.
hafi lesið bókina og kveðst ekki
forvitin að vita sannleikann í því
máli. „Bókin var ekki skrifuð fyr-
ir hann eða honum til heiðurs, þá
frekar forsetaembættinu. En ég fór
reyndar á Bessastaði um daginn í
tilefni af útkomu annarrar bókar
og borðaði þar reiðinnar býsn af
kleinum og randalínum. Ég þorði
nú ekki að taka Ballið á Bessastöð-
um með og lauma henni í bóka-
hillurnar. Ég er farin að kunna mig
síðustu árin," segir hún og hlær.