Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
Helgarblað DV
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BÍLJÖFUR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
DODGE
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
HPI Savage X 4,6
fjarstýröur torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
úmsTunoRHúsia
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
HIN HLIÐIN
• •
11/1 a
in
ÁRNI BEINTEINN ÁRNASON HEFUR SKOTIST UPP Á STJÖRNUHIMININN AÐ UNDAN-
FÖRNU EN HANN LEIKUR MEÐAL ANNARS í SKILABOÐASKJÓÐUNNI OG GOSA AUK ÞESS
AÐ FARA MEÐ EITT AÐALHLUTVERKIÐ í DUGGHOLUFÓLKINU.
. ~r '• .
• .> ;.»*' » jgW&N
f- ,* r /SV V
* "C/ £r- *» 'jfjr\í ■■//$ .j
* * 41/• /
Nafti og kyn?
„Árni Beinteinn Árnason,
karlkyn."
Aldur?
„Ég varð þrettán ára á dög-
unum."
Atvinna?
„Nemi í Valhúsaskóla."
Ertu í sambandi?
„Nei, það er nú ekki svo gott í
augnablikinu."
Áttu gæludýr?
„Nei, en ég á reyndar mörg
systkini sem ég get kannski
ekki alveg kallað
gæludýrin mín en það er
samt hægt að klappa þeim
og svona."
Uppáhaldskvikmyndin þín?
„Það er klárlega myndin
Böm eftir Ragnar Bragason.
Svo kemur myndin
Duggholufólkið eftir Ara
Kristinsson líka sterk inn."
Hvaða leiksýningu sást þú
síðast?
„Ég fór að sjá Hamskiptin
í Þjóðleikhúsinu sem
Vestmport setti upp."
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Nei, en einu sinni var ég að
taka upp stuttmynd og þurfti
að fá lánaðan
lögreglubúning til að nota í
myndinni. En það kallast nú
svo sem ekki
að komast í kast við lögin."
Hver er uppáhaldsflíkin þín
ogafhverju?
„Það mun vera leðurjakkirm
minn sem ég geng í
dagsdaglega. Ég keypti
hann í Flórída um síðustu
jól. Ég er alltaf í honum og
nota hann við
kjólföt jafnt sem íþróttagalla."
Græturþúyfir
minningargreinum um
ókunnuga?
„Ég les nú ekki
minningargreinar, þær em
svo dapurlegar."
Hefur þú tekið þátt í
skipulögðum mótmælum?
„Já, ég hef gert það. Ég
mótmælti því þegar það átti
að reka skólastjórann minn í
Mýrarhúsaskóla. Það hópuðust
allir krakkarnir saman og
mótmæltu brottrekstrinum."
Hvers hlakkar þú til núna?
„Núna hlakka ég til jólanna. Þá
get ég farið að sinna ýmsu sem
ég hef ekki haft tíma til að sinna
nægilega hingað til."
Afrekvikunnar?
„Það var að hoppa inn í
Skilaboðaskjóðuna með
skömmum fýrirvara."
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, mig hefur langað til þess
en ekki látið verða af því."
Spilar þú á hljóðfæri?
„fá, ég spila á píanó."
Hver er uppáhaldsplatan þín?
„Vitaskuld jólaplata Baggalúts,
jól og blíða. Ég fæ aldrei leið
á henni þótt ég hlusti á hana
tuttugu og fjórar stundir á
sólarhring. Ég mæli klárlega
með þessari plötu."
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Ég held að það sé nú bara að
vera hamingjusamur."
Hvaða bók vilt þú fá í jólagjöf?
„Ég vil klárlega fá nýjustu Bert-
bókina en ég er búinn að lesa
allar bækumar sem hafa komið
út hingað til."
Hefur þú ortljóð?
„ Já, ég hef nú gert mikið af því.
Ég hef samið sögur jafnt sem
ljóð, handrit, texta og allt sam-
an. Ég byijaði þegar ég var bara
fjögurra ára, þá settist ég við
tölvuna og skrifaði mín fyrstu
kvæði sem ég á ennþá."
Ert þú með einhverja leynda
hæfileika?
„Já, ég er rosalega góður
söngvari en það hefur
lítið uppgvötvast og síðan
er ég rosalega góður í
handahlaupum!"