Glóðafeykir - 01.11.1973, Blaðsíða 15
GLÓÐAFEYKIR
15
Halldór Gíslason og Guðrún Sigurðardóttir, Halldórsstöðum, i Staðarrétt, ásamt
aðstoðarfólki.
launagreiðslur kaupfélagsins og Fiskiðjunnar rúmlega 100 millj.
króna, hækkun frá síðasta ári rösklega 46%.
Heildarvelta.
Sala á erlendum vörum og þjónustu nam á árinu 1972 rösklega
344.3 millj. kr. og hafði aukizt frá fyrra ári um 60.9 millj. eða 21.5%.
Sala búvara nam 308.6 millj. kr. og hafði aukizt frá árinu áður um
35.6 millj. eða rúmlega 13%. Sala Fiskiðjunnar var 56.5 millj. Varð
því heildarvelta kaupfélagsins og Fiskiðjunnar 709.5 millj. kr. alls
og hafði hækkað um 105 millj. tæpar frá árinu á undan.
Fjárfestingar.
Fjárfestingar voru miklar á síðasta ári. Þá hófst bygging hins nýja
og fullkomna sláturhúss og voru bókfærðar fjárfestingar þess 16.1
millj. kr,, en raunverulega var búið að verja til þess miklu meira fé,
sem fært hefur verið til skuldar á viðskiptareikninga þeirra aðila,
sem eru að vinna að ýmsum þáttum þessarar framkvæmdar, svo sem
við færibrautakerfi, múrverk, ókomnar vörur, sem búið er að greiða
upp í og fleira.