Glóðafeykir - 01.11.1973, Blaðsíða 54
54
GLOÐAFEYKIR
hefur unnið starf sitt sem mest í kyrrþey, enda vissi hann vel, að
ræktunarstarfið tekur langan tíma, og allt skrum og ótímabær aug-
lýsingastarfsemi var honum á móti skapi. . .
Árið 1947 kvæntist Stefán Sesselju Jóhannsdóttur, fyrrum bónda
á Brekku í Svarfaðardal, Sveinbjarnarsonar bónda þar, albróður síra
Zófoníassonar í Viðvík, Halldórssonar, og konn hans Sesselju Jóns-
dóttur, ráðsmanns á Tjörn í Svarfaðardal, Jóhannssonar, og konu
hans Stefaníu Hjörleifsdóttur prests Guttormssonar. Voru foreldrar
Sesselju yngri systkinabörn. Þau Stefán og Sesselja eignuðust 6 börn,
dætur 5 og 1 son, og var hið yngsta þriggja ára, er faðir þeirra lézt.
Stefán Jónsson var í hærra lagi, frekar grannvaxinn og giannleit-
ur, eigi andlitsfríður en sviphlýr, tiltakanlega prúður og hugnaðist
hverjum manni vel. Var að honum hinn mesti mannskaði.
Eirikur Sigmundsson, bóndi að Fagranesi á Reykjaströnd, andað-
ist þ. 10. október 1964. — Fæddur var hann í Gunnhildargerði í
Hróarstungu austur, sonur Sigmundar bónda þar Jónssonar og konu
hans Guðrúnar Sigfúsdóttur. Var Eiríkur
albróðir Þóreyjar Hansen, sjá Glóðafeyki
1972, 13. hefti, bls. 58.
Eiríkur óx upp með foreldrum sínum og
stórri fjölskyldu; voru þau 10 systkin og
komust 9 upp, óvenju myndarleg og gervi-
leg öll, s\o að til var jafnað austur þar.
Eiríkur tók við búi í Gunnhildargerði
1918. Dvöldust foreldrar hans þar hjá hon-
um og létust bæði á árinu 1925. Eftir það
brá Eiríkur búi og- hvarf vestur hingað til
Skagafjarðar, ef til vill að ráði Þóreyjar
systur sinnar, er áður hafði hingað fluttzt,
og Kristjáns eiginmanns hennar, sem jafnan reyndist Eiríki, fátæk-
um manni, afburðavel. Nýkvongaður reisti Eiríkur bú á Grófargili
á Langholti 1928 og bjó þar til 1935, fór þá byggðum að Reykjum
á Reykjaströnd og bjó þar til 1939, þá í Hólakoti í sömu sveit til
1943, er þau hjón settust á Fagranes og bjuggu þar nreðan Eiríkur
lifði, síðustu árin ásamt með börnum sínunr.
Árið 1928 gekk Eiríkur að eiga Birmi Jónsdóttur, bónda á Grófar-
gili, Benediktssonar, síðast bónda á Syðra-Skörðugili, Kristjánssonar,
og konu hans Sigurlaugar Brynjólfsdóttur á Ölduhrygg í Svartárdal.
Oddssonar. Börn þeirra eru 5: Jón, bóndi á Fagranesi; Guðrún, lrús-
Eirikur Sigmundsson