Glóðafeykir - 01.11.1973, Blaðsíða 61
GLÓÐAFEYKIR
61
Framnesi 1888 og loks að Retu 1890. Arið 1918 réðst hann ráðs-
maður til húsfreyjunnar í Beingarði, Guðrúnar Jónsdóttur, er misst
hafði sambýlismann sinn, Jónas Árnason, þá um vorið. Breytti hann
ekki um bólfestu eftir það.
Arið 1919 gekk Páll að eiga heimasætuna
í Beingarði, Guðnýju (f. 8. okt. 1897) Jónas-
dóttur Arnasonar, bónda á Þverá í Blöndu-
hlíð, Arnasonar, og bústýru hans, Guðrún-
ar Jónsdóttur, sunnlenzks manns að ætt,
tiíslasonar, er þar höfðu búið frá 1905. Þau
Páll og Guðný tóku við búi í Beingarði
sama ár og þau giftust, og bjuggu þar alla
stund síðan til æviloka Páls, síðustu árin
ásamt með Boga syni sínum. Farnaðist þeim
vel og bjuggu \ ið góðan kost, enda hyggin
bæði og dugmikil í bezta lagi. Biirn þeirra
hjóna eru 3: Jónas, sálfræðingur í Reykjavík; Helga, húsfreyja í
Keflavík suður og Bogi, bóndi í Beingarði; er Guðný, móðir hans
fyrir frarnan stokk hjá honum.
Páll í Beingarði var meðalmaður á vöxt, grannleitur, glaðlegur á
s\ ip. Hann var hugþekkur maður, geðprúður, viðræðugóður, hýr og
notalegur og lék á als oddi í kunningjahópi. Hófsamur var hann um
alla hluti, vel gefinn um margt en hafði sig lítt í frammi, undi við
ábýli sitt og unni þ\ í. Hann \ar laginn hestamaður sem j>eir frænd-
ur fleiri. og átti um skeið allmargt hrossa, þótt aldrei ræki hann
stórt bú.
Páll Björnsson var bústjórnarmaður og bóndi í rösklega hálfa öld,
farsæll og bjargálna bóndi. Hann var samgróinn sveit og umhverfi,
stóð styrkum og djúpunr rótum í þeim jarðvegi, sem hann var vax-
inn úr.
Sigurður Jónsson, bóndi á Skúfsstöðum í Hjaltadal, lézt |r. 7. apríl
1965. — Hann var fæddur að Ytri-Hofdölum í Hofstaðaplássi 4. nóv.
1882. Foreldrar: Jón bóndi þar og síðar á Skiifsstöðum Sigurðsson.
síðast bónda á Ytri-Hofdölum, Jónssonar bónda þar. Hafliðasonar,
og kona hans Guðrún Ásgrímsdóttir bónda í Neðra-Ási í Hjaltadal,
Árnasonar prests á Tjörn, Snorrasonar, en kona Ásgríms og móðir
Guðrúnar var Þórey Þorleifsdóttir frá Pálmholti.
„Sigurður ólst upp með foreldrum sínum, fyrsta misserið á Hof-
dölum og síðan á Skúfsstöðum. Snemma kom í ljós að hann var
Páll Björnsson