Glóðafeykir - 01.11.1973, Qupperneq 17
GLOÐAFE YKIR
17
Rekstrarafkoma 1972.
Þrátt fyrir gífurlega aukinn tilkostnað á sl. ári má, þegar á heild-
ina er litið, telja að rekstrarafkoman sé viðunandi.
Heildarafskriftir af húseignum, vélum, áhöldum og bifreiðum eru
13 mill. kr. röskar, og hafa hækkað á árinu um 878 þús. kr.
Reikningsuppgjör ársins sýnir hagnað að upphæð 9.1 millj. kr.
Gert er ráð fyrir að leggja í varasjóð 2.6 millj. og úthluta arði til
félagsmanna í hlutfalli við viðskipti þierra við félagið 6.2 millj. kr.
Það mun vera 6% af allri ágóðaskyldri vöruúttekt, eða eins mikil
endurgreiðsla og lög framast leyfa. Þá eru eftir 324 þús. kr., og þarf
að leggja í Menningarsjóð K. S. af þeirri upphæð.
Stærstu gjaldaliðir K. S. á sl. ári, fyrir utan laun og launakostnað,
eru þessir:
\hðhaldskostnaður fasteigna, véla og áhalda 10.4 millj. kr. Trygg-
ingagjöld 2.55 millj., hækkun frá fyrra ári 24%. Raforkukaup 3.6
millj., hækkun 26%.
Opinber gjöld.
Opinber gjöld, sem félagið greiddi á árinu 1972, námu alls 30.3
millj. króna, og höfðu hækkað frá fyrra ári um 8.7 millj. eða 40.3%.
Til ríkisins voru greiddar 26.5 millj. kr., þar af söluskattur 21.5
millj. Gjöld til sveitarfélagsins námu alls 3.8 millj., þar af fasteigna-
gjöld tæpar 2 millj. kr.
Eitt er það mál skattalegs eðlis, sem ekki hefur verið úrskurðað
hér á landi, en hefur verulega þýðingu fyrir þau samvinnufélög, sem
geta greitt tekjuafgang til félagsmanna sinna í hlutfalli við viðskipti
þeirra við félögin. Það sem ég á hér við er það, að ef kaupmaður
gefur viðskiptavini sínum afslátt yfir búðarborðið, þá kemur aðeins
sú upphæð, sem viðskiptavinurinn greiðir, til söluskatts, afsláttur-
inn ekki. Sé hins vegar um að ræða samvinnufélag, sem endur-
greiðir til félagsmanna sinna eftir árið, og gefur þeim þannig raun-
verulegan afslátt af verði þeirra vara, er þeir kaupa hjá félaginu, þá
er ekkert tillit tekið til þess af skattayfirvöldum, og söluskattur af
endurgreiðslunni fæst ekki endurgreiddur, sem þó væri rökvís gerð,
samanber það sem gerist, ef afsláttur er veittur yfir búðarborð. Ef
þessi aðalfundur samþykkir, að félagið endurgreiði félagsmönnum
6.2 millj. kr. af vöruúttekt þeirra á árinu 1972, þá ætti félagið að fá
í bakfærðum söluskatti röskar 600 þús. krónur.