Glóðafeykir - 01.11.1973, Side 59

Glóðafeykir - 01.11.1973, Side 59
GLÓÐAFEVKIR 59 Jón á Bessastöðum var frekar lágur maður en þrekvaxinn; föl- leitur, vel farinn í andliti, svipurinn íhugull og gáfulegur, enda var maðurinn ágætlega gefinn. Hann var dulur og djúphugsi, sein- mæltur og fastmæltur og orðvís, fátalaður í fjölmenni, „gekk hægt um gleðinnar dyr,“ en hafði þó yndi af að gleðjast með góðum vin- um og blanda við þá geði. Hann var einlyndur nokkuð og fast- lyndur, ógleyminn á það, sem honum þótti sér vel gert, en mundi líka hitt, sem í móti gekk. Hann var um margt andlega skyldur Stephani G., sem í æsku dvaldi um hríð á svipuðum slóðum og Jón, enda varð þá og fagnaðarfundur, er Stephan sótti hann heim í Holts- kot 1917. Jón átti þess ekki kost, frekar en Stephan G., að fullnægja ríkri námsþrá í æsku. En hann las alla stund, svo sem erill og amstur bóndans og verkamannsins framast leyfði, og mundi og hugleiddi allt, sem hann las, enda varð hann prýðilega að sér um margt, eink- um í skáldskap og bókmenntum. Jón á Bessastöðum var gæddur ríkri skáldgáfu. Hann orti margt og mikið en flíkaði lítt, nema þá helzt á fundi fárra vina, ef svo bar undir. Hann var vandvirkur á skáldskap, fágaði og lá lengi yfir, enda h\ ort tveggja í senn, listfengur og listvandur. K\ æði eftir hann munu fyrst hafa komið á prent í Óðni. Síðar komu nokkur ljóða hans í öðrum tímaritum, einkum Eimreiðinni, og kallaði hann sig þá jafnan Jón Jónsson Skagfirðing. Þá birtust og nokkur kvæða hans í Skagfirzkum ljóðum 1957. Úrs al úr ljóðasyrpum hans, Aringlæður, kom svo út í bókarformi 1963; völdu þeir efnið Hannes Pétursson skáld og Sigurjón Björnsson sálfræðingur. Jón á Bessastöðum var traustur maður og varfærinn um alla hluti, viðkvæmur í lund og næmgeðja. Allur var maðurinn þeirrar gerðar, að gróði var hverjum manni að kynnast honum. Arni Þowaldsson, fyrrum bóndi í Hólkoti á Reykjaströnd, lézt þ. 16. marz 1965. — Hann var fæddur í Hólkoti 23. júní 1891 og átti þar heima nálega alla ævi. Voru foreldrar hans Þorvaldur bóndi á Daðastöðum og Hólkoti Ólafsson, bónda á Daðastöðum, Gíslasonar bónda á Gvendarstöðum í Staðarfjöllum, Ólafssonar, og kona hans Kristín, talin Magnúsdóttir Sigurðssonar hreppstjóra og skálds á Heiði í Göngustörðum, Guðmundssonar, og Kristínar Jónsdóttur bémda á Núpi á Laxárdal fremri. Maguús, faðir Kristínar, drukkn- aði á Húnaflóa innan við fertugt. Hitt mun þó réttara, að því er kunnugir töldu, að Kristín væri dóttir Gísla bémda Andréssonar á Reykjum á Reykjaströnd, þess er drukknaði á Skagafirði árið 1858.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.