Glóðafeykir - 01.11.1973, Qupperneq 82
82
GLOÐAFEYKIR
andliti og svipgóður, mikill myndarmaður. „Hann var með afbrigð-
um vel látinn af samferðamönnum sínum, hress os: slaður í viðmóti
og hinn bezti drengur, sem hvers manns bón vildi gera, stæði það í
hans valdi. Hann var einstakur atorku- os dusnaðarmaður, enda
þrekmaður mikill, meðan heilsan entist; bókhneigður og fylgdist
vel með almennum málum. Ólafur var einlægur samvinnumaður,
enda deildarstjóri í sinni deild í K. A. S. H. og fulltrúi á aðalfundum
um árabil. Hann \ ar góður stuðninssmaður félagsmála í sínu sveit-
arfélagi og m. a. formaður búnaðarfélags nokkur síðustu árin.“ (Kr.
Jónsson).
Ólafur Jónsson var mætur ntaður, enda naut hann hvers manns
virðingar 02: trausts.
o o
Guðný Jónsdóttir, bústýra í Kýrholti í Viðvíkursveit, lézt snögg-
lega þ. 25. júní 1966. — Hún var fædd í Kambakoti í Vindhælis-
hreppi á Skagaströnd 25. okt. 1909, dóttir hjónanna Jóns Klemenz-
sonar og Guðrúnar Sigurðardóttur. Hún
mun hafa alizt upp með foreldrum sínum,
var um hríð á Árbakka á Skagaströnd, flutt-
ist fullorðin að Fjalli í Kolbeinsdal og átti
þar heima um stund hjá systur sinni og
mági, en var um þær mundir starfsstúlka á
Hólum um tveggja vetra skeið. Árið 1938
fór hún vistum til þeirra Kýrholtsh jóna,
Bessa Gíslasonar og Elínborgar Bjömsdótt-
ur, og átti þar síðan heima til æviloka Elín-
borg, kona Bessa, lézt árið 1942, mjög um
aldur fram. Tók þá Guðný skömmu síðar
við forstöðu heimilisins innan stokks, og
gegndi því starfi til lokadags. Fórst henni það svo vel úr hendi,að eigi
varð á betra kosið, enda hlaut luin óskoraða virðingu og hlýhug
þeirra, er starfa hennar nutu. Var eigi vandalaust að taka við hús-
freyjustarfi af Elínborgu í Kýrholti, þvílík afbragðskona, sem hún
var. En Guðný kiknaði eigi og sýndi þá bezt, hverjum manndómi
hún var búin.
Guðný giftist eigi, en átti nokkur börn og konmst 3 upp: Friða
Ólafsdóttir, húsfreyja í Arnardal við ísafjarðardjúp; Gunnar Har-
aldsson, deildarstjóri hjá K. S. á Sauðárkróki; Elinborg Bessadóttir,
húsfrevja í Hofstaðaseli.
Guðný í Kýrholti var í hærra lagi á vöxt, myndarkona í sjón og