Glóðafeykir - 01.11.1977, Síða 42
40
GLOÐAFEYKIR
Úr Leirgerði
FRAMHALD
Nú voru allar vámur af Jóni og sótti hann gunnreifur sýslufund 1953
öllum samstarfsmönnum sínum til gleði, en þó engum meir en sekreter-
anum, því að segja mátti að hann væri andlaus, máttlaus og vitlaus á
hverjum sýslufundi eða mannfagnaði, ef hann hafði ekki Jón við hlið sér.
Stóð nú ekki á að andinn kæmi yfir hann, og í byrjun sýslufundar flutti
hann Jóni vini sínum eftirfarandi kvæði og setti hann þannig inn í
embættið:
Sótt er enn á sýslufund,
sem að kætir marga ltrnd.
Vitja sinna sæta enn
síglöð skáld og listamenn.
Þar er Eiður þriflegur,
þar er Valla-Haraldur.
Þár eru ræðu-þjálfuð-ljón,
þar er ég — og Bakka-Jón.
Jón, sem þekkir þjóðin öll
þegar nefnd eru andans tröll.
Jón, er sótti sýslufund
sigurreifur langa smnd.
Jón„ er manndómsmerkið bar
miklu hærra en Sturlungar.
Kneyfði — og dró úr kútnum spons —
með kvennahylli Salómons.
Honum meir en hálfa öld
hafa skautað tign og völd —
honum, er hvert afrek var
eggjun nýrrar framkvæmdar.
Honum öflin illa stefnd
aldrei veltu úr sýslunefnd.
Honum fénast fálkakross
til frægðar bæði sér og oss.