Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Side 3

Vestfirska fréttablaðið - 14.12.1981, Side 3
I vestíirska mETTABLAM Útg. og ábm.: Árni Sigurösson Fagraholti 12 ísafirði. Blm.: Finnbogi Hermannsson Áskriftar- og auglýsingasímar: 3100 og 3223. 42. tölublað 7. árgangur 14. desember 1981 EFNISYFIRLIT: Agnes Sigurðardóttir: Jólahugvekja .............................................. Finnbogi Hermannsson: Dagbók jólanna ............................................ Heimir Már: Þrjú Ijóð og smásaga ...................................... Eðvarð T. Jónsson: Lokastig vaxtarins í þessu lífi............................ Húsmóðir: Uppgjörið ................................................. Finnbogi Hermannsson: 40 ára afmæli Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal............. Finnbogi Hermannsson: Mér líður vel í þessum stól ............................... Eðvarð T. Jónsson: Tveir heilir árgangar fullorðinna Vestfirðinga á skólabekk. Drjúgt komið af jólabókum.................................. Skjaldbökubækurnar ........................................ Guðmundur Gíslason Hagalín: Snillingur skrifar um snilling ............................ Finnbogi Hermannsson: Skip hans hátignar, Baldur ................................ 28 Vestfjarðamet í sundi sett um síðustu helgi ............ Finnbogi Hermannsson: Það er aginn og að tendra þann vilja og þá ást á tónlistinni, sem nauðsynlegt er.......................... Haustþing S.K.Í............................................ Togaraöldin ............................................... Björn Helgason, Tryggvi Guðmundsson og Þröstur Jóhannesson: Annáll ísfirskra íþróttamanna 1981 ........................ Eðvarð T. Jónsson: Það var alltaf hörkustemmning á sveitaböllunum............. Finnbogi Hermannsson: Mikið atriði að sem flestir kunni skil á þessu ............ Bls. . 5 . 7 . 9 . 11 . 15 . 16 . 21 . 23 . 24 . 24 . 26 . 27 . 31 . 33 . 40 . 41 . 43 . 47 . 50 Ritstjórnarspjall Jólablað Vestfirska fréttablaðsins er 52 síður að þessu sinni. Blaðið er aðallega skrifað af tveimur blaðamönnum, þeim Eð- varð T. Jónssyni, sem þar til í október var fastráðinn við blaðið, en vann með okkur að jólablaðinu og Finnboga Hermannssyni, sem réðist að blaðinu 1. október s.l. Þegar þetta 42. tölublað er komið út, er 7. árgang- ur blaðsins orðinn 372 blaðsíður og hefur það komið út vikulega allt þetta ár, að undanskildu hléi, sem varð vegna sumar- leyfa og smáhléi um páskana. Vestfirska fréttablaðið er nú elsta óflokks- bundna héraðsfréttablaðið. Frá byrjun höf- um við leitast við að halda uppi heiðarlegri baráttu fyrir hagsmunum fjórðungsins og framfaramálum. Við höfum lagt áherslu á umfjöllun um atvinnulífið á breiðum grundvelli og það að skoðanir sem flestra fái komið fram. Mannlegir þættir aðrir, svo sem listir, íþróttir og menningarstarfsemi hafa ætíð skipað drjúgan sess í blaðinu. Forystugreinum blaðsins er ætlað það hlut- verk að leggja hönd á plóginn með kjörnum fulltrúum heima og heiman, með hófiegri gagnrýni, kynningu góðra mála og rök- stuðningi með þeim. Hversu vel þetta hafur tekist er annarra að meta. Okkur þykir gaman að geta þess, að á fimm ára afmæli blaðsins luku Alþingismenn Vestfirðinga upp einum munni um það, að þessi útgáfa væri til gagns og menningarauka fyrir kjör- dæmið. Það hefur verið nefnt við okkur af fjölmiðlamönnum, að eiginlega séum við að vinna verk, sem ætti að vera óframkvæman- Iegt, það er að halda úti þó þetta stóru vikublaði, á svo þröngum markaði, sem hér er. Skýringin á því að þetta gengur er þó ekki langt undan. Hana er að finna hjá kaupendum blaðsins, sem nú eru 1800 að tölu. Hjá velunnurum þess, sem senda okk- ur greinar, eða gefa okkur góð ráð. Hjá þeim aðilum í viðskiptalífinu og í opinberri þjónustu, sem beinlínis sjá sér hag í því að auglýsa myndarlega í blaðinu og einnig velvilja stofnana og fyrirtækja, sem sýna hug sinn í verki, með því að birta kveðjur og auglýsingar í hinum stærri og fjölbreyttari tölublöðum Vestfirska fréttablaðsins, þ. e. sjómannadagsblaði, sem kom út í fyrsta sinn í sumar og jólablaði, sem hefur verið árlega á dagskrá hjá okkur. Hinar ágætu viðtökur, sem við höfum hvarvetna fengið, hafa styrkt okkur í þeirri trú, að við séum að vinna Vestfirðingum til heilla, með tilstyrk þeirra. Með bestu óskum um gleðileg jól og farsæld á komandi árum. Vestfirska fréttablaðið

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.