Sagnir - 01.06.2013, Side 72
73
af því það er guðs boð, þá er hún
bónda sínum undirgéfin í kær leika og
hlýðni; hún er hans besti trúnaðar-
maðr, hollasti ráðgjafi, tryggvasti
vinur; hún sýnir honum blíðu í um-
gengni, hugarlátsama önnustu í sjúk-
leika, huggun og meðhjálp í sorg og
áhyggju, þolinmæði yfir brestum
hans, þag mælsku í þeirra ráðagjörðum
og fyrir ætlan. Hún er lángtum heldur
svegjan leg enn þrætugjörn, ef bónd-
inn er sérlyndur, og fellst á hans ráð,
þó henni sé miður umgéfið, nema þau
leiði til syndar og ósóma1
Á síðastliðnum 100 árum hafa kven réttindi aukist víðs vegar í heim inum en fyrir þann tíma
átti ofangreind lýsing við um íslenskar
konur. Konur sem slíkar hafa ekki
breyst mikið síðan þessi orð voru skrif-
uð fyrir aldamótin 1800. Það sem hefur
breyst er í raun ekki konan sjálf heldur
umhverfið og vænt ingar til fólks ins í
samfélaginu. Það sem í dag eru taldir
æskilegir kostir sem konur (og karlar)
ættu að búa yfir eru til að mynda sjálf-
stæð hugsun, sjálfs öryggi og metn aður.
Þetta eru allt kostir sem konur 18. og
19. aldar innar áttu einnig að hafa en
þeim var beitt á annan hátt en gert er í
dag. Þá var hlut skipti þeirra tak markað
við ákveðin störf og þurf tu þær að nota
sína styrk leika innan vegg ja heimilis ins á
meðan nútíma kona í vest rænu samfélagi
getur lagt heiminn að fót um sér. Við
erum ekki svo ólík for mæð rum okkar,
að stæður hafa ein ungis breyst.
Hér verður fjallað um það sem talið
var til marks um fyrirmyndarkonu á
Íslandi á tíma bilinu 1780–1820. séra
Björn Hall dórs son í sauðl auksdal
(1724–1794) skrif aði ritið Arn björg árið
1783 sem ætlað var sem kennslu rit í
hússtjórn. Þar tekur séra Björn saman
þá kosti sem fyrir mynd arhúsfrú átti að
búa yfir og hvern ig hún átti að haga sér.
tæpum 40 árum síðar skrifaði Magnús
stephensen (1762–1833) bók þar sem
hann setti upp sam tal milli Hjálmars
bónda á Bjargi og barna hans.2 Þar ræðir
Hjálmar við dótt ur sína um giftingar og
hugmyndir kvenna um framtíðarlífsgæði
sín. En hvaða kröfur voru gerðar til
kvenna og hve mikið frelsi höfðu þær
til þess að fylgja sínum eigin þrám? Var
lýsing séra Björns á fyrir myndar konunni
raunhæf? Hvað varð um þær konur sem
stóðust ekki vænt ingar samfélagsins?
Arnbjörg
Fyrirmyndir kvenna, sem og annarra,
byggjast að mestu leyti á tíðaranda og
menn ingar straumum hvers tíma. séra
Björn skrifaði bókina með konuna sína,
rann veigu ólafsdóttur, að fyrirmynd.3 Í
dag telst það athyglisvert að bók skrifuð
fyrir konur sem útlistar hvernig konur
eigi að haga sér hafi verið skrifuð af karl-
manni. Hafa þarf í huga að fáar konur
voru skrif andi um aldamótin 18004 og
ekki hefur mikið varðveist af bréfum
eða dag bókum kvenna. séra Björn
skrif aði einnig ritið Atli árið 1780 sem
er búfræði kver skrifað fyrir karlmenn.
saman eru arnbjörg og atli hin íslensku
fyrir myndar hjón þeirra sem byggðu bú
fyrir alda mótin 1800. Með þetta í huga
ber að líta á hvaða kvenkosti hin skyn-
sama fyrir myndar kona (sem nefnd er
arn björg) tileinkaði sér.
Á fyrstu blaðsíðum Arnbjargar er lögð
áhersla á guðsótta. samkvæmt séra Birni
ýtir guðsóttinn undir þá kosti sem konur
búa yfir umfram karla sem eru „ná-
kvæmni, meðaumkan, blíðlyndi, hugar-
lát semi [og] tilleiðanlegleiki“.5 Þegar
hús frú býr yfir þessum kostum lyndir
öllum vel í hennar húsum og bóndi
Vor2013-A5-288+4bls-BN.indd 73 6/5/2013 5:19:06 PM