Sagnir - 01.06.2013, Page 103
104
Sólsetursljóðin
Þegar sólveig var 15 ára var „Litli
söng flokkurinn“ stofnaður í sveitinni.
Þá komu saman allir unglingar nir í
dalnum og þeim var kennt að syngja
lög í röddum. Þetta var fyrsti vísirinn
að kór í Mývatns sveit.24 sólveig kom
fram í fyrsta sinn til að syngja ein söng
á gamlárskvöld árið 1909 og stúlka
að nafni Þóra sigfúsdóttir lék undir á
orgelið.
Við vorum báðar logandi hræddar,
við að láta heyra til okkar. Ég ætla
ekki að lýsa því hvað okkur brá, er
unglinga skólinn á Ljósavatni kom inn
í samkomu húsið með skólastjórann
sig urð Bald vins son og séra sigurð
guð munds son í broddi fylkingar. Ég
sá ekkert nema myrkur, sá ekkert ljós í
húsinu og Þóra var svo sveitt á hönd-
unum að dropar stóðu á nótunum.
jónas Þor bergs son sem stjórnaði
fund inum, reyndi að stappa í okkur
stál inu, en við vildum helst hætta við
allt saman.
Þær létu þó slag standa og allt gekk
eins og í sögu. Það sem eftir leið veturs
voru þær oft beðnar að koma fram á
sam komum sem þær og gerðu.25 Vorið
1909 fór sólveig á samkomu í sam-
komu húsinu í Mývatnssveit. Þar fóru
fram ýmis skemmtiatriði en eftir þau var
sólveig beðin um að syngja neðri rödd-
ina við söng sólsetursljóða Bjarna Þor-
steins sonar. Á móti henni átti að syngja
karl maður með tenórrödd. Fyrst leist
henni ekki á en lét svo tilleiðast. Þegar
hún kom að orgelinu sat þar sigfús
Hall gríms son frá Vogum.
Um leið og ég kom að orgelinu
hneigði hann aðeins höfuðið, um leið
og hann byrjaði á for spilinu. allt gekk
vel og ekki fipaðist undirleikaranum,
annað lag sungum við á eftir sem ég
man nú ekki hvað var. Lófaklappið
dundi og vildu menn fá meira að
heyra. En við hættum. En um leið og
undir leikarinn stóð upp sneri hann sér
að mér og rétti mér höndina. „Þakka
þér fyrir söng inn.“ Um leið mættust
augu okkar og þar með voru örlögin
okkar ákveðin.26
sólveig fór til reykjavíkur seint í okt-
óber árið 1910, þá nítján ára gömul, og
dvaldi hjá föðurbróður sínum. Þann
vetur skrifuðust þau sólveig og sig fús
á en bréfin eru ekki lengur til.27 sól veig
kom norður á akureyri með skipi þann
10. júní 1911. Daginn eftir kom sigfús
og þau settu upp hringana á torfunefs-
bryggju. sólveig flutti til sigfúsar í Voga
en þar bjó hann ásamt föður sínum,
bræð rum og mág konu.28
Fjölskylda sigfúsar tók sólveigu vel
en annað gilti um sveitungana. sigfúsi
var gert það alveg ljóst að fólkið í sveit-
inni áleit þessa stúlku vera af fátæku
bergi brotna, að „hún ætti ekki spjarirnar
utan á sér“.29 aftur á móti biði hans
kvon fang af reykjahlíðarættinni sem
væri bæði vel stætt og gott ef hann kysi
það. sól veig reyndi að láta þetta ekki á
sig fá en þessi tími reyndist henni erf-
iður. Einn morguninn þegar var fallegt
veður ákvað sólveig að taka vel til, þvo
gólfi n og baka jólaköku. Um hádegi
riðu fjórar konur í hlað án þess að gera
boð á undan sér.
Þá voru það þessar helstu konur sem
áttu mikið undir sér og þær komu bara
hreint og klárt í eftirlits ferð. Mamma
áttaði sig bara á því og tók þeim með
bros á vör og þær fengu nýlagað gott
kaffi og ný bakaða jólaköku. Þær gátu
ekki sett neitt út á þetta. Mamma var
ekkert að erfa þetta og hún sagði mér
frá þessu með gaman brosi á vör þegar
þær komu þarna konurnar. En mikið
var hún þakklát að hún hafi fundið til-
finning una um morguninn að taka til
og hafa til köku með kaffinu.30
Vor2013-A5-288+4bls-BN.indd 104 6/5/2013 5:19:24 PM