Sagnir - 01.06.2013, Page 114
115
gegn föður sínum og heimalandi. Hún
hefur þó var ann á og hylur ásjónu sína
með himnu áður en hún hittir hann, svo
andlit hennar virðist fölt og stirðnað.
Hann verð ur heldur svekktur með að
hafa keypt köttinn í sekknum og sitja
nú uppi með þessa ljótu konu, leggur
fæð á hana og neitar að sofa hjá henni.
nokkrum árum seinna leggur hann
upp í lang vinnt stríð en áður en hann
leggur af stað leggur hann ómögulega
þraut fyrir konu sína. Þegar hann snýr
aftur á hún að hafa byggt honum glæsi-
lega höll, geta fært honum þrjá gripi
sem séu jafngóðir eða fremri hans eigin
kostagripum og einnig á hún að hafa fætt
honum skil getinn son hans, ella verði
hún tekin af lífi. Fyrstu þrautina leysir
Ermenga án vand ræða en til að leysa
hinar tvær þarf hún að takast á hendur
langt ferða lag, þar sem hún kemur ýmist
fram sem Hirtingur jarl, riddari í fullum
her klæðum, eða með sinni réttu ásjónu
sem kven maður í nauðum.18
Ef litið er á persónusköpun þeirra
hjóna og samskipti þeirra má lesa ýmis-
legt um viðhorf varðandi hvernig fyrir-
fólk skyldi hegða sér og hvernig kona
átti og gat hegðað sér. Höfuð áherslan í
sögunni allri er á sjálf stjórn og yfir vegun
en hana skortir Hlöð ver átakan lega.
Bónorð hans til Erm engu ein kennist af
hroka og yfirgangi. Hann leggur fyrir
hana ógerlega þraut en bregst smá-
sálar lega við þegar hún leysir hana með
glæsi brag. Hann er blátt áfram tap sár
og missir til dæmis smám saman stjórn
á hugsun sinni þegar hann þreytir tafl-
einvígi við Ermengu í dular gervi. Hún
missir hins vegar aldrei stjórn á skapi
sínu hvað sem á dynur og það hefur
eflaust verið megin lærdómur þess arar
sögu fyrir íslenska aristókratíu á 14. öld.
Hvaða kostir einkenna Ermengu
aðrir en sjálfs stjórnin? Hún er bæði
hug rökk, réttsýn og dugandi stjórnandi,
auk þess sem hún fer létt með að leika á
eigin mann sinn og er því óhjákvæmilega
gáfaðri en hann. athyglis vert er að
stóran hluta sögunnar er hún í karl-
manns klæðum án þess að vekja neinar
grun semdir og það eykur einungis á
virð ingu hennar. Þegar hún er í brynju
og með hlíf fyrir andlitinu virðist
enginn taka eftir því að hún sé kona.
Hún ríður um með sveit annarra riddara
og lætur sem hún bjóði óvinum Hlöð-
vers aðstoð sína. ráð hennar varðandi
hernað eru vel metin meðal þeirra
og hún sigrar eigin mann sinn í tafli,
leik sem var tengdur karl mönn um og
herkænsku. Loks kemst hún yfir lykil
að borgar hliðum óvinanna og vinnur
þannig í raun stríðið fyrir eiginmann
sinn. Þó er eitt sem hún getur ekki
og það er að taka þátt í bardögum. Í
hvert skipti sem stefnir í bardaga milli
gest gjafa hennar og eiginmanns, gerir
Erm enga sér upp veikindi og hvergi
í sögunni beitir hún vopnum.19 Þar
dregur riddara sagan mörkin milli karla
og kvenna. Kona getur þóst vera riddari
en hún getur aldrei verið riddari, því
hún getur ekki barist. Enda er bardaga-
hreysti mæli kvarði karl mennskunnar
og ætt göfginnar í riddara sögum og ef
Erm enga hefði blátt áfram barist við
Hlöð ver hefði öll heims mynd riddara-
sagna farið á hvolf.
Þar sem Ermenga er kona er eini
sigurinn sem hún vinnur með líkama
sínum sá að blekkja eiginmann sinn til
að geta sér barn. Í allri sögunni leikur
hún á eigin mann sinn en gerir aldrei
upp reisn gegn honum og þar er að finna
seinna við horfið til kvenleikans sem
Vor2013-A5-288+4bls-BN.indd 115 6/5/2013 5:19:29 PM