Sagnir - 01.06.2013, Side 253
254
undur eins bæklinganna, stefán Hjál-
mars son, skrifaði sömuleiðis grein í
Hasar blaðið ásamt gísla Ág. gunn laugs -
syni um Hlífar deiluna í Hafnarfirði árið
1939. gísli lést árið 1996, langt um
aldur fram, en skildi eftir sig merki legt
ævi verk. grein þeirra félaga var ritgerð
úr nám skeiði um íslenska verkalýðs-
hreyfi ngu veturinn 1977 til 1978. Þriðja
greinin var svo eftir sigurlaugu s. gunn-
laugs dóttur og fjallaði um sögu skoðun
Einars Olgeirs sonar og sögulega efnis-
hyggju. sú grein mun hafa þótt nýstárleg
og greinandi.3
guðmundur jónsson rifjaði síðar
upp að kennarar í deildinni hefðu orðið
furðu lostnir er þeir sáu Hasarblaðið
og að föður hans, jóni guðna syni þá
dósent, hefði ekki verið skemmt yfir
útgáfunni.4
1979 til 1980
Árið 1979 varð fyrsta konan forsætis ráð-
herra Bretlands. Margrét thatcher, leið-
togi Íhaldsflokksins, lagði ríka áherslu á
samdrátt í ríkisafskiptum, frjálst fram-
tak og hinn heilaga markað. Kenningar
hennar og forseta Banda ríkjanna sem
var kjörinn árið eftir, ron alds reagan,
höfðu gríðar leg áhrif á stjórn mála líf
og viðskipta veröld hins vest ræna heims
ára tuginn á eftir – og jafn vel lengur.
Ísraels menn sigruðu, ann að árið í röð,
í söngva keppni ev rópskra sjón varps-
stöðva. Íslendingar horfðu á en tóku ekki
þátt. Krullhærðari helm ingur dúettsins
simon og gar funkel söng vinsælasta lag
ársins á Bretlands eyjum, „Bright Eyes“
úr mjög drama tískri teikni mynd um
kanínur, Watership Down. Hér heima var
haldinn reyklaus dagur í fyrsta sinn og
Davíð nokkur scheving thorsteinsson
keypti sér öl í fríhöfninni. Hann mót-
mælti harð lega upp töku mjaðarins í
hliði toll gæslunnar og þótti afar óeðli-
legt að flugliðar mættu taka bjór með
sér inn í landið en almenningur ekki.
Árið eftir gaf fjár mála ráðherra minni-
hluta stjórnar alþýðu flokksins út reglu-
gerð sem leyfði öllum að kaupa bjór í
frí höfn inni og fara með hann heim.
Minni hluta stjórn alþýðu flokks tók við
völd um eftir að vinstri stjórn ólafs
jóhannes sonar þraut örendið en Fram-
sóknarflokkurinn stórjók fylgi sitt í
kosn ingum í desember. sagnfræðinemar
gáfu ekki út blað árið 1979 en um jóla-
leytið það ár munu tveir nemendur
deildar innar hafa tekið að „gæla við þá
hugmynd að eignast afkvæmi í blaða-
formi.“5 Fyrsta tölu blað Sagna kom út í
apríl 1980 í ritstjórn Eggerts Þórs Bern-
harðs sonar og gunnars Þórs Bjarna-
sonar, sem báðir hafa síðan látið að sér
kveða á sviði sagn fræði nnar svo um
munar. annar ritstjóra Hasar blaðsins
hef ur látið hafa eftir sér að Sagna-nafnið
hafi þótt heldur bragð dauft en þó van ist
vel.6 Forsíðu myndin var teikning eftir
auði ólafs dóttur sagnfræðinema sem
hún kallaði „goðunum steypt af stalli“,
þar sem gaf að líta mannfjölda sem var
í óða önn að kljúfa styttur jóns sigurðs-
sonar og Hannesar Hafstein. Bönd um
hafði verið brugðið um styttur nar og
auð sjáan lega stutt í að þær yrðu dregnar
af stalli en það var myndlíking sem átti
ágæt lega við í nýjum hugmyndaheimi
sagn fræðinnar þar sem gagnrýnin hug-
sun og nýtt sjónar horn átti að ráða
ríkjum.
Fleiri vorboðar voru sýnilegir árið
1980; íslenska kvikmyndavorið hófst og
Íslendingar drifu sig í bíó að sjá Land
og syni, Óðal feðranna og Veiðiferðina.
gúanó rokk Bubba Morthens sló ræki-
Vor2013-A5-288+4bls-BN.indd 254 6/5/2013 5:21:47 PM