Sagnir - 01.06.2013, Qupperneq 259
260
Olgeirs sonar með viðkomu hjá jóni
sigurðs syni og Hannesi Hafstein. arnór
heitinn Hanni bals son, heimspekingur,
vann það þarfa verk að fjalla ítarlega um
þjóðir, þjóðerni, þjóðríki og menningu
– ágæt vísa sem líkast til er aldrei of oft
kveðin. Viðamikil grein Valdimars Unn-
ars Valdimars sonar um hvort verslun
hafi haft áhrif á afstöðu Íslands og
annarra norðurlanda gagnvart stór-
veld um kalda stríðsins, einkum sovét-
ríkjanna, var í anda tímans því árið 1982
ríkti nefni lega ennþá napur kuldi í því
furðu lega stríði. aftur á móti hljóta
áhuga menn um sögu og sagnfræði að
hafa getað yljað sér löngum stundum
við lestur Sagna árið 1982, því blaðið var
mikið að vöxtum, alls 120 blaðsíður að
meginmáli.
1983
Árið 1983 heilsaði Íslendingum með
vetrar hörkum; náttúruöflin sýndu lands-
mönnum hvað í þeim bjó svo um
munaði. Mikill óróleiki var einnig í
stjórn málum og ríkisstjórn gunnars
thor odd sen varð að játa sig sigraða í
glímunni við verðbólguna. gengið var
til kosninga í apríl og í kjölfarið myndaði
for maður Framsóknarflokksins, stein-
grímur Hermanns son, ríkisstjórn ásamt
sjálfstæðis flokknum. Eftir kosn ingar-
nar sátu fulltrúar sex flokka á þingi en
Kvenna listinn og Bandalag jafnaðar-
manna fengu samtals sjö þingmenn.
Þrátt fyrir það voru niðurstöður kosn-
inganna mikil von brigði fyrir Vilmund
gylfa son, sem aldrei settist á þing fyrir
hönd Banda lags jafnaðarmanna en
hann andaðist í júní 1983. Hin nýja ríkis-
stjórn lét strax til sín taka, felldi gengi
krónunnar mjög, stöðvaði gjaldeyris við-
skipti og hóf undirbúning enn frekari
að gerða í efnahags málum.
Efni skopblaðsins Spegilsins fór fyrir
brjóstið á yfirvöldum, útgefandi þess var
dæmdur fyrir guðlast og klám og gert
að greiða 16.000 króna sekt í ríkissjóð.15
reyndar fór svo að ríkissjóður keypti allt
upp lag Spegilsins. Bandaríkjamenn gerðu
inn rás á eyna granada í Vestur-indíum
og sovét menn skutu niður suður-
kóreska breið þotu í sovéskri loft helgi.
allir þeir 269 sem um borð voru fórust,
þar á meðal bandarískur þing maður.
Öllu frið sam legri var heim sókn banda-
rískrar geim ferju sem kom til Íslands í
sumar byrjun, flaug lágflug á baki breið-
þotu yfir reykjavík uns lent var með
hana í Keflavík og for vitnum var gefið
tæki færi til að skoða fyrirbærið. Íslenska
hljóm sveitin Mezzo forte sló í gegn á
Bret landi með laginu „garden Party“,
sem komst þó ekki á lista yfir hundrað
vin sælustu lög ársins. toppsæti árs listans
vermdu Boy george og félagar hans í
Culture Club og lagið þeirra „Karma
Chame leon“. Það lag heyrðist, og heyrist
enn, oft á rás 2 sem hóf starfsemi sína á
full veldis daginn en sigurlagið í Evrópu-
söngva kepp ninni heyrðist mun sjaldnar.
„si la vie est cadeau“ er nánast gleymt
en einhverjir þekkja þó söngkonuna
Corinne Hermés. nokkrar íslenskar
kvik myndir voru frum sýndar árið 1983,
þar á meðal drauga myndin Húsið og
gaman myndin Nýtt líf.
tímarit sagnfræðinema, Sagnir, hlaut
einhvers konar nýtt líf þegar fjórði
árgangur þess kom út í október. Það
nýja líf endurspeglaðist helst í því að
um brot þess var minnkað nokkuð, auk
þess sem Eggert Þór Bernharðsson var
horfi nn úr ritnefnd sem var þó orðin
býsna fjöl menn. Í stað fyrra lítillætis
um hve ljótt blaðið væri sagði ritstjórn
Vor2013-A5-288+4bls-BN.indd 260 6/5/2013 5:21:53 PM