Morgunblaðið - 15.07.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sérbúin torfærurúta festist í Múla-
kvísl 12. júlí 2011. Hún var notuð til
að ferja fólk yfir ána eftir að brúna
tók af í hlaupi. Nítján manns voru í
rútunni þegar óhappið varð, sautján
farþegar, bílstjóri og eigandi rút-
unnar. Þau björguðust öll. Þetta olli
Ágústi Guðjónssyni, eiganda rút-
unnar, miklu fjárhagslegu tjóni sem
ekki hefur fengist bætt, að sögn bíl-
stjórans Björns Sigurðssonar.
Óhappið situr í Birni.
„Þetta er búið að rústa lífi mínu.
Menn hafa veist að mér á förnum
vegi og kallað mig aumingja og það-
an af verri nöfnum,“ sagði Björn.
Hann segir að menn hafi kennt hon-
um um óhappið, en sjálfur skellir
hann skuldinni á Vegagerðina, yfir-
völd björgunarmála, lögreglu og
fleiri. „Maður var bara í rusli eftir
þetta. Mér var ekki boðin áfalla-
hjálp eða neitt. Þetta hefur valdið
mér mikilli vanlíðan. Ég fæ alls
staðar höfnun og hvergi réttláta
málsmeðferð. Það er lágmarkið að
ég nái ærunni aftur.“
Þeir Björn og Ágúst hafa leitað
eftir því að fá fjárhagstjón sitt bætt
en þeim málaleitunum hefur ýmist
verið hafnað hjá Vegagerðinni, sem
ekið var fyrir, og innaríkisráðuneyt-
inu auk ferðaþjónustunnar eða er-
indunum ekki verið svarað.
Björn sagði að Vegagerðin hefði
leitað til sín um að ferja fólk yfir
ána á rammbyggðri 39 farþega her-
rútu Ágústs, sem Björn sá um út-
gerðina á. Rútan var á Hólmavík
hjá Ágústi og Björn í Eyjafirði þeg-
ar beiðnin barst. Þeir lögðu strax af
stað suður og hittust í Vík í Mýrdal
snemma að morgni 11. júlí. Björn
var á 38" breyttum Toyota Land-
Cruiser-jeppa sem hann hafði leigt
til aksturs með ferðamenn. Þeir fé-
lagarnir voru mættir á vesturbakka
Múlakvíslar um morguninn. Akstur
með farþega hófst þó ekki fyrr en
síðdegis þegar búið var að útvega
öll tilskilin leyfi.
Mikilvægt að tryggja öryggið
„Mér var sagt að þarna yrði mikil
gæsla og fullt af fólki m.a. frá
Landsbjörg og almannavörnum til
aðstoðar. Þegar okkur var tilkynnt
að við gætum hafið flutninga þá var
ekkert af þessu komið. Ég talaði við
yfirverkstjóra Vegagerðarinnar í
Vík og sagði að ég vildi hafa örygg-
istæki því allt gæti gerst. Áin var í
miklum látum og breytti sér á nokk-
urra sekúndna fresti,“ sagði Björn.
Fljótið rann í tveimur kvíslum og
var eyri þar á milli. Jarðýta fór út á
eyrina. Þá talaði Björn við bílstjóra
trukkanna sem ferjuðu bílana og
bað um að allir væru með sterka
spotta framan á bílunum þannig að
jarðýtan gæti dregið þá upp ef þeir
festust. Þetta gerðu allir.
„Við hófum akstur og frá klukkan
fjögur til tíu um kvöldið flutti ég um
700 manns yfir ána,“ sagði Björn.
„Eftir þriðju ferðina sem við fórum
yfir fór jarðýtan sem var öryggis-
þátturinn.“
Björn kvaðst hafa spurt Vega-
gerðina hvert jarðýtan hefði farið
og var honum sagt að hún hefði ver-
ið send í annað verkefni. „Kannski
hefði ég átt að segja stopp á þessum
tímapunkti, en mér var sagt að
halda áfram.“ Björn ákvað að fara á
jeppanum á undan fjallarútunni til
að kanna vaðið en Ágúst ók rútunni.
Ef fór að vatna yfir húddið á jepp-
anum þá taldi hann orðið of djúpt að
fara yfir með farþega og var beðið
átekta þar til vatnið sjatnaði.
„Við þurftum sjálfir að sjá um
fólkið sem tróðst inn í bílinn með
farangur. Það var engin stjórn á
þessu. Þetta gekk þokkalega og allt-
af fór ég á undan á jeppanum,“
sagði Björn. Hann sagði að fulltrúi
Vegagerðarinnar hefði sagt að allt
yrði þetta með betra móti morg-
uninn eftir en mikill þrýstingur var
á að halda áfram að flytja fólk og
bíla.
Áin vall fram kolmórauð, full af
aur og drullu. Björn gerði sér grein
fyrir því að hann þyrfti að taka
jeppann gagngert í gegn eftir þessa
meðferð til að geta rekið hann
áfram í ferðaþjónustunni. Sand-
urinn og aurinn þrengir sér um allt,
ekki síst inn í drifrásina. Björn
kvaðst hafa verið orðinn langeygur
eftir því að eitthvað yrði gert til að
tryggja betur öryggið við flutn-
ingana yfir ána.
Eftir að hafa beygt hjólastífu á
jeppanum og látið laga hana í Vík
kvaðst Björn hafa sagt við fulltrúa
Lágmark
að ná ær-
unni aftur
Morgunblaðið/RAX
Fjallarútan Björn Sigurðsson, bílstjóri, við rútuna. Búið er að gera við hana fyrir á 13. milljón króna eftir óhappið.
Nítján björguðust úr rútu sem festist
í Múlakvísl Tjónið ekki enn bætt
Ljósmynd/Hrafnhildur Inga
Múlakvísl Öflug beltagrafa var notuð til að bjarga rútunni sem festist í Múlakvísl 12. júlí 2011. Eigandi rútunnar varð fyrir miklu fjárhagslegu tjóni vegna óhappsins, sem ekki hefur fengist bætt.
Magic Sand
Heitasta æðið í heiminum í dag
Sandur sem mótast eins og
leir og þornar aldrei upp.
Skilur ekkert eftir sig og er
auðvelt að þrífa upp
Skapandi og skemmtilegt,
örvar skynjunarfærni al
UMBOÐSAÐILI:
www.danco.is
lra
Nú á
Íslandi