Morgunblaðið - 15.07.2015, Síða 16
VIÐTAL
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Starf lögfræðinga á Íslandi krefst
meiri sveigjanleika en á Englandi,
segir enski lögfræðingurinn Simon
David Knight. Hann varð á dögunum
meðeigandi í lögmannstofunni Juris
og er því einn örfárra erlendra lög-
fræðinga sem hafa náð þeim árangri
á íslenskum lögmannsstofum. Verk-
efni Simons snúa bæði að úrlausn
ágreiningsmála og einnig hefur hann
unnið að fjármögnunar- og fjárfest-
ingarverkefnum hér á landi. Þar hef-
ur hann á síðari árum orðið var við
mikinn áhuga erlendra fjárfesta á Ís-
landi. Þessi áhugi á að hans mati ræt-
ur að rekja til nýrra tækifæra sem
opnuðust með fríverslunarsamningi
Íslands við Kína.
Simon lærði lögfræði við háskólann
í Cambridge, Englandi, og starfaði
frá 2005-2007 hjá alþjóðalögfræðifyr-
irtækinu Simmons & Simmons bæði í
London og Abu Dhabi. Árið 2007
flutti hann síðan til Íslands og hóf
sama ár störf hjá Kaupþingi en bú-
ferlaflutningurinn hafði þó ekkert að
gera með lögfræðiferilinn. „Mig lang-
aði að kynnast einhverju nýju. Ég
hafði unnið á Íslandi í tvo til þrjá
mánuði sumarið 2005 á farfuglaheim-
ili í Laugardalnum og naut þess mik-
ið. Þegar ég fékk réttindi mín árið
2007 langaði mig í ævintýri og kom til
Íslands,“ segir Simon. Upphaflega
hugðist hann taka sér hlé frá lögfræð-
inni en á þeim tíma var Kaupþing að
ráða fólk og með nóg af verkefnum á
alþjóðasviðinu. Simon ákvað því að
sækja um.
Allt breyttist árið 2008
Þegar Simon hóf störf hjá Kaup-
þingi árið 2007 sneru verkefni hans
helst að ýmsum verkefnum útibúa
Kaupþings erlendis. Þetta breyttist
þó allt í hruninu. „Þá þurftum við lög-
fræðingarnir einfaldlega að takast á
við öll þau vandamál sem komu upp,“
segir Simon. Við fall fjármálakerfis-
ins var Kaupþingi skipt í tvennt og fór
Simon yfir í slitastjórn Kaupþings. „Á
milli 2009 og 2012 varð vinnan meira
rannsóknartengd og ég fór að vinna í
hópi í slitastjórn bankans sem ein-
beitti sér að málaferlum til að end-
urheimta glataðar eignir.“ Til að
mynda var Al Thani-málið eitt verk-
efna hans í slitastjórninni.
Árið 2012 fór Simon síðan yfir í lög-
mannsstofuna Juris. „Eftir að hafa
unnið í nokkur ár hjá Kaupþingi
ákvað ég að það væri kominn tími á
breytingu og ég þekkti til lögfræð-
inga hjá Juris.“ Eftir að hafa frá
hruni, nær eingöngu unnið að mála-
ferlum, segir hann að það hafi verið
gott að fá fjölbreyttari verkefni.
Meiri sveigjanleiki á Íslandi
Spurður um mun á vinnuumhverf-
inu hér á landi og því sem hann kynnt-
ist þegar hann starfaði hjá Simmons
& Simmons nefnir hann fyrst og
fremst að hér sé miklu meiri fjöl-
breytni í starfi. „Umhverfið hér er
ekki jafn fast í skorðum. Á lögmanns-
stofu í London þar sem starfa þúsund
lögfræðingar hafa allir mjög ákveðið
sérsvið en á Íslandi er allt miklu
meira fljótandi. Þegar ég var hjá
Kaupþingi þurftu allir að geta glímt
við öll mál.“
Að hans mati er fjölbreytileikinn
heillandi. „Einn helsti kostur þess að
vinna hér, fyrir utan það að fá að búa
á Íslandi, er að ég veit aldrei við hvaða
verkefni ég fæst á morgun.“ Sem
dæmi nefnir hann að fyrir fimm árum
voru allir lögfræðingar að vinna í
gjaldþrotum fyrirtækja en núna er
áhuginn á fjárfestingum og stórum
innviðaverkefnum.
Áhugi fjárfesta á Íslandi aukist
Nýlega hefur Simon unnið mikið að
fjármögnun ýmissa verkefna og segir
hann að mikil uppsveifla hafi verið í
kaupum og sölu fyrirtækja ásamt er-
lendri fjárfestingu. Ástæður fyrir
þessum aukna áhuga eru að hans
sögn margar. „Kostnaður hér á landi
er lægri en hann var áður fyrr. Orkan
er alltaf mikið aðdráttarafl en fjár-
festar koma ekki aðeins hingað vegna
orkuverðsins heldur einnig vegna eig-
inleika hennar og framboðs. Síðan er
það auðvitað fríverslunarsamningur-
inn við Kína. Hann hefur opnað dyr
fyrir erlenda fjárfesta að framleiða
hér á landi og selja út á nýjan mark-
að.“
Hann segir að áhugi erlendra fjár-
festa á Íslandi gefi líka til kynna
trausta innviði. „Hér eru fyrirtæki
sem búa yfir þekkingu og það hjálpar
erlendri fjárfestingu, að menn viti að
ekki þurfi að byrja frá grunni.“
Fjárfestar líta til Íslands
Morgunblaðið/Kristinn
Atvinnulífið Simon David Knight hefur starfað á Íslandi í rúmlega átta ár.
Simon David Knight er fyrsti útlendingurinn í eigendahópi Juris Orðið var við
mikinn áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi í kjölfar fríverslunarsamningsins við Kína
16 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
notkun innanlands og 15% erlendis.
Íslandsbanki segir að þessar tölur
ásamt aukningu í innflutningi
neysluvara og þróun kaupmáttar
launa það sem af er ári styðji það að
vöxtur í neyslu landsmanna muni
vaxa í ár en bankinn spáir 4,6%
vexti í einkaneyslu í samanburði við
3,7% vöxt í fyrra.
Kortavelta útlendinga hér á landi
í júní jókst um 4,4 milljarða króna
milli ára. Útlendingar náðu því að
velta meiru hér en landsmenn í út-
löndum sem leiddi til jákvæðs
kortaveltujöfnuðar sem nam 9,2
milljörðum króna í þessum mánuði.
Nokkur vöxtur var í kortaveltu
landsmanna í júnímánuði í saman-
burði við sama tíma í fyrra. Vöxt-
urinn nam 15,3% í kortaveltu er-
lendis og 7% innanlands sem telst
hraðari vöxtur en var að jafnaði á
síðasta ári. Greining Íslandsbanka
segir að því sé útlit fyrir að vöxtur
einkaneyslu á öðrum ársfjórðungi
verði nokkuð myndarlegur þar sem
kortaveltan hafi tekið verulegan
kipp upp á við í síðasta mánuði. Ef
miðað er við fyrstu sex mánuði árs-
ins er raunvöxtur kortaveltu ein-
staklinga 4,9% frá sama tímabili í
fyrra, vöxturinn er 3,6% í korta-
Kortavelta landsmanna vex hraðar
Stefnir í myndarlegan vöxt í einkaneyslu að mati greiningar Íslandsbanka
Morgunblaðið/Kristinn
Kort Útlendingar hér á landi notuðu kortin meira en landsmenn erlendis.
● Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
hafa selt 3 milljónir hluta í N1 en með
viðskiptunum fór eignarhlutur sjóðsins
niður fyrir 10% af heildarhlutafé fyr-
irtækisins. Fyrir viðskiptin áttu sjóðirnir,
sem reknir eru undir sama hatti, 48
milljónir hluta en eftir viðskiptin eru
þeir orðnir 45 milljónir. Sá hlutur svarar
til þess að sjóðirnir eigi samanlagt
9,57% í N1. Söluandvirði hlutabréfanna
nam um 118 milljónum króna. Miðað
við dagslokagengi í Kauphöllinni í gær
nemur eignarhlutur sjóðanna eftir við-
skiptin tæpum 1,8 milljörðum króna.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er eft-
ir sem áður stærsti hluthafi fyrirtæk-
isins.
Næststærsti eigandinn í
N1 minnkar hlut sinn
!"#
!$!
"#%
%
$ $
!"
!###
#
#!#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
!#%
!
"
%%
$%%$
!#
#%%
%
"$
!#
!
" ##
%%
$
!#$%
# #
%
!$
● Útboði á flugfar-
miðakaupum rík-
isins sem átti að
fara fram á fyrri
hluta ársins hefur
verið frestað til
haustsins, segir í
tilkynningu frá Fé-
lagi atvinnurek-
enda, FA, en félagið
hefur gagnrýnt að
ekki hafi verið efnt
til útboðs og að ríkisstarfsmenn fái
vildarpunkta til einkanota vegna flug-
ferða sem þeir fljúga á kostnað skatt-
greiðenda.
Haft er eftir Ólafi Stephensen, fram-
kvæmdastjóri FA, að það sé miður að
enn dragist á langinn að efna til út-
boðs. „Það er þó gott að málin eru
komin á hreyfingu og þetta útboð þarf
að auglýsa hið fyrsta. Það er ótækt að
þrjú ár líði án þess að hundraða millj-
óna króna viðskipti ríkisins séu boðin
út,“ segir Ólafur.
Útboði á kaupum flug-
miða frestað til hausts
Ríkið frestar út-
boði á flugmiðum
STUTTAR FRÉTTIR ...
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200