Morgunblaðið - 15.07.2015, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015
Ég er hjartanlega sammála þeim
Frosta Sigurjónssyni og Guðlaugi
Þór, að það er miklu nauðsynlegra
og skynsamlegra að reisa nýtt hús-
næði fyrir Landspítalann heldur en
nýja Landsbankabyggingu. Núver-
andi staðsetning Landsbankans er
líka hentugri og meira miðsvæðis en
á lóðinni við Hörpu, þar sem nýju
bankahúsnæði er ætlað að rísa, og
þægilegra fyrir fólk að komast í
bankann þarna í Austurstrætinu. Ég
sé ekki, hvernig maður á að komast í
bankann, sem ætlað er að reisa við
Hörpu, ef maður er gangandi, eins
og bílaumferðin er mikil á svæðinu
og mjög erfitt er að komast yfir göt-
ur. Þeir verða að hugsa út í aðgengi
fyrir notendurna, ef þeir vilja fara út
í slíka nýbyggingu. Þess vegna líst
mér engan veginn á þessar áætlanir
um nýtt bankahúsnæði, fyrir utan
kostnaðinn, og finnst skynsamlegra,
að farið sé fyrst í byggingu á nýju
sjúkrahúsi, sem er miklu brýnna.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Nýtt Landsbanka-
hús eða nýr Landspítali?
Landsbankinn Á að byggja nýjar höfuðstöðvar eða ekki?
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Mikið er rætt og
skrafað um áform um
iðnaðaruppbyggingu í
Skagabyggð og kröfu
Húnvetninga um nýt-
ingu staðbundinna
auðlinda í heima-
byggð, þ.e. orku
Blönduvirkjunar.
Einstaka þingmenn
og ráðherrar hafa
tjáð sig um málið og
þar á meðal hátt-
virtur iðnaðarráðherra. Hann hef-
ur látið hafa eftir sér að Húnvetn-
ingar hafi engan sérstakan rétt til
að gera kröfu til orku virkjunar-
innar. Ekki sé boðlegt að draga
fram rykfallin loforð um slíkt, hafi
þau þá einhvern tímann verið gef-
in. Formaður atvinnuveganefndar
hefur einnig ítrekað komið fram í
fjölmiðlum og komið þeim skila-
boðum á framfæri að engin orka sé
í boði.
Þessi gömlu loforð þekki ég ekki
enda barn þegar umræður um
byggingu virkjunarinnar fóru
fram. Í Húnavatnssýslu eru þó enn
sveitarstjórnarmenn að störfum
sem ættu að þekkja feril málsins
og gætu því skerpt á umræddum
loforðum.
Það sem hvatti mig hins vegar til
þess að stinga niður penna var að
mér finnst að ekki sé einungis um
að ræða gömul rykfallin loforð.
Hæstvirtum iðnaðarráðherra og al-
þingismönnum ætti að vera ljóst að
á Alþingi Íslendinga þann 15. jan-
úar 2014 var eftirfarandi þings-
ályktunartillaga samþykkt:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að koma á samstilltu
átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í
Austur-Húnavatnssýslu um eflingu
atvinnulífs og sköpun nýrra starfa
á Norðurlandi vestra með nýtingu
raforku sem framleidd er í Blöndu-
virkjun. Markmiðið með átakinu er
að efla samkeppnishæfni svæðisins
og undirbúa það fyrir þá uppbygg-
ingu sem fylgir orku-
nýtingu Blönduvirkj-
unar og jafnframt
vinna að markaðs-
setningu svæðisins
sem iðnaðarkosts, svo
sem fyrir gagnaver.“
Ég get ekki betur
séð en að í þessari
ágætu tillögu séu, til
þess að gera nýlega,
Húnvetningum og
nærsveitungum gefin
ágætis fyrirheit um að
orka Blönduvirkjunar
verði nýtt til uppbyggingar í hér-
aði. Við meðferð málsins sá At-
vinnuveganefnd ekki ástæðu til að
leggja til breytingar á tillögunni en
sendi frá sér álit þar sem nýting
orku Blönduvirkjunar er nefnd
sérstaklega og áréttað að í um-
sögnum um tillöguna hafi verið
nefnt að mikilvægt sé að nýta tæki-
færi sem víðast um landið.
Það er gott að búa í Húnavatns-
sýslu enda þar góð samfélög og
gott fólk. Svæðið má muna fífil
sinn fegurri enda þurft að greiða
dýru verði stórfelldar breytingar á
atvinnuháttum. Húnvetningar hafa
allt of lengi sætt sig við að stað-
bundin auðlind, þ.e. orka Blöndu-
virkjunar, hefur ekki verið nýtt
svæðinu til framdráttar. Alþingi
hefur sent frá sér vel ígrundaða til-
lögu sem styður réttmæta kröfu
Húnvetninga og því er rétt að
leggjast saman á árarnar og snúa
vörn í sókn.
Gömul og ný
loforð um orku
Blönduvirkjunar
Eftir Halldór
Gunnar Ólafsson
Halldór Gunnar
Ólafsson
»Húnvetningar hafa
allt of lengi sætt sig
við að staðbundin auð-
lind, þ.e. orka Blöndu-
virkjunar, hefur ekki
verið nýtt svæðinu til
framdráttar.
Höfundur er sveitarstjórnarmaður
á Skagaströnd.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
Sylvía
Löggiltur fasteignasali
sylvia@fr.is
Brynjólfur
brynjolfur@fr.is