Morgunblaðið - 15.07.2015, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.07.2015, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 ✝ Sigþór Péturs-son fæddist í Grundarfirði 17. desember 1943. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 4. júlí 2015. Foreldrar hans voru hjónin Guð- ríður Kristjáns- dóttur frá Móabúð í Eyrarsveit, f. 29.8. 1911, d. 11.5. 1992 og Pétur Sigurðsson, verslunar- maður frá Suður-Bár í Eyrar- sveit, f. 17.7. 1910, d. 27.12. 2005. Systkini Sigþórs eru: 1) Aðal- steinn, læknir, f. 7.9. 1933, d. 9.1. 1985, maki Halldóra Karlsdóttir, f. 17.2. 1936. 2) Ingibjörg, hjúkr- unarfræðingur, f. 19.8.1937, d. 30.11. 2014. 3) Kristján, skip- stjóri, f. 19.8. 1938, maki Erla Magnúsdóttir, f. 3.2. 1939. 4) Sig- rún ljósmóðir, f. 21.9. 1939, maki Björn Ólafsson, f. 30.11. 1936. 5) Sigurður Kristófer læknir, f. 4.12. 1942, maki Helga Magnús- dóttir, f. 16.1. 1946. Hinn 20. des- ember 1969 giftist Sigþór eft- irlifandi eiginkonu sinni, Colleen Mary Pétursson hjúkrunarfræð- ingi og ljósmóður, f. 25.6. 1936. Foreldrar hennar voru Thomas Raymond Bache, f. 13.11. 1910, d. 1993 og Kathleen Mary Hill, f. 27.1. 1911, d. 2011. Börn þeirra eru: a) Anna, f. 19.12. 1970. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru Joanna Beth Jordan, f. 1991 og Sarah May Jordan, f. 1994. Eiginkona Önnu er Donna Co- ughlin, f. 1968. b) Katrín Mary, f. 24.4. 1972, maki Alister Paul Faulkes, f. 14.2. 1970. Börn þeirra eru Orri Sigþór Faulkes, f. 2003 og Matthías Smári Faulkes, f. 2008. Sigþór ólst upp í Grundarfirði. Hann stundaði nám við Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði og Menntaskólann að Laugarvatni þaðan sem hann lauk stúdentsprófi 1965. Hann hélt til náms í Bretlandi og lauk grunnnámi í efnafræði frá há- skólanum í Edinburgh 1970. Á árunum 1970-1975 kenndi hann við Menntaskólann í Reykjavík og árin 1973-1975 vann hann samhliða kennslunni sem framkvæmdastjóri hjá undirbún- ingsfélagi Þörungavinnslunnar á Reykhólum. Sigþór fór aftur til náms í Bretlandi og lauk dokt- orsnámi frá háskólanum í Birm- ingham 1978. Hann starfaði að efnafræðirannsóknum við Ox- ford-háskóla á árunum 1978- 1990. Þá flutti hann heim til Ís- lands og hóf störf við Háskólann á Akureyri. Þar starfaði hann sem prófessor í efnafræði þar til hann lét af störfum vegna ald- urs. Útför Sigþórs verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, miðviku- daginn 15. júlí 2015, og hefst kl. 13.30. Fjölskyldan hans pabba er stór og samheldin. Hún stendur þétt við bakið á okkur öllum, hvetur okkur áfram og grípur okkur þeg- ar einhver hrasar. Bói frændi var lengi vel fulltrúi framandi heima í fjölskyldunni. Hann bjó í Oxford þegar ég var að alast upp og við systurnar kynnt- umst honum aðallega í gegnum kvöldsögurnar sem pabbi sagði okkur úr eigin uppvexti. Sögurn- ar af pabba og Bóa voru ævintýri góðra vina. Eftirminnilegastar eru frásagnir af lífshættulegum uppákomum eins og sagan af rottueitrinu í súkkulaðibúðingn- um sem er reglulega rifjuð upp hjá okkur systrum. Það ævintýri endaði með langri sjúkrahúslegu bræðranna og líklega höfum við afkomendurnir aldrei skilið al- mennilega hættuna sem þeir komu sér í með því að gæða sér á búðingnum úr balanum. Við dáumst að því að bræðurnir kom- ust í gegnum allar þær hremm- ingar sem þeir lentu í. Þessar hremmingar virtust alltaf vera eins og ævintýrin og enda vel. Sjálf kynntist ég Bóa betur þegar hann og pabbi ákváðu vista- skipti frumburða sinna. Við Anna erum fæddar á sama ári og feng- um á einhverju unglingsárinu að skipta um heimili í nokkrar sum- arvikur. Þá upplifði ég mitt eigið ævintýri með Bóa, Colleen og Katrínu. Þykkar gardínurnar í herberginu hennar Önnu, BBC og Open University, sögur af gull- fiskum, heimsóknir til Oxford, ódýrt Twix og ferðir um Cornwall. Bói tók vel á móti mér þá og hann tók vel á móti allri fjölskyldunni minni seinna meir á Akureyri. Bói átti sína sterku rödd í syst- kinahópnum. Þótt hann væri yngstur í hópnum þá var ekkert lítið við hann. Nú hefur þessi rödd þagnað en ég veit að minningin um Bóa, eins og minningin um Alla og Ingibjörgu, hvetur okkur áfram til að hafa sterkar raddir og takast á í jólaboðum og á öðrum vettvangi. Hugur minn er hjá Colleen, Önnu, Katrínu og fjölskyldum þeirra og ég votta þeim innileg- ustu samúð mína. Brynhildur Sigurðardóttir. Við hjónin erum harmi slegin yfir þeim fréttum að góður vinur og fyrrverandi samstarfsmaður, Sigþór Pétursson, sé fallinn frá, langt um aldur fram. Við kynnt- umst Sigþóri þegar við komum til starfa sem prófessorar við Há- skólann á Akureyri upp úr síðustu aldamótum, en hann var þá einn örfárra prófessora við skólann. Þrátt fyrir bága aðstöðu og lítinn skilning háskólayfirvalda tókst Sigþóri að stunda metnaðarfullar rannsóknir og rita greinar í vel- metin tímarit, enda var hann í samvinnu við hæfa erlenda vís- indamenn. Námskeið Sigþórs við Sjávarútvegsdeild og síðar Auð- lindadeild voru mjög vönduð og gerðu kröfur til nemenda. Var oft hart sótt að honum af samstarfs- mönnum að minnka kröfur svo fallprósentan yrði lægri. Sigþór lét ekki bugast af þessu einelti, gaf hvergi eftir og hélt uppi gæðum og gerði sambærilegar kröfur til nemenda sinna og sjálfs sín og gerðar eru í bestu háskólum. Það kom fram í máli margra eldri nemenda hans sem heimsóttu skólann að í námi þeirra bæru námskeið Sigþórs af. Þau hefðu reynst þeim besta veganestið í starfi og framhaldsnámi, hefðu kennt þeim vísindaleg vinnubrögð og hvernig ætti að ná árangri í akademískri vinnu og hagnýtum rannsóknum. Sigþór hafði áhuga á mörgu sem tengdist fagsviði hans. Hann lét t.d. til sín taka í umræðu um framtíðareldsneyti og tók for- svarsmenn vetnisvæðingar eftir- minnilega „í bakaríið“ og benti á að við vetnisframleiðslu þyrfti meiri orku en kæmi út úr fram- leiðslunni. Sigþór varð einn nán- asti samstarfsmaður Hrefnu og kenndi hún m.a. námskeið hans er hann fór í námsleyfi. Hann lét fús- lega af hendi öll kennslugögn og aðstoðaði hana dyggilega við að koma kennslunni af stað. Þó að fagsvið þeirra innan efnafræðinn- ar væru ólík voru þau samt í nán- um faglegum samskiptum og að- stoðuðu hvort annað bæði í rannsóknum og kennslu. Sigþór hafði beinskeyttan og skemmti- legan húmor og gat ef sá gállinn var á honum sagt mjög skemmti- lega frá. Hann var góður og traustur samstarfsmaður sem ávallt studdi þann málstað sem hann taldi réttastan og sanngjarn- astan. Hann og Colleen kona hans voru góðir gestir í samkvæmum og frábærir gestgjafar. Sigþór fékk alvarlegt áfall fyrir nokkrum árum þegar hann var síðla dags við vinnu á skrifstofu sinni. Svo heppilega vildi til að við hjónin vorum nálægt og gátum kallað á sjúkrabíl svo hann komst undir læknishendur og í sjúkraflug suð- ur í tæka tíð og virtist hann hafa náð sér að fullu. Eftir að Sigþór fór á eftirlaun ætluðu þau Colleen að flytja til höfuðborgarinnar og við hlökkuðum til að fá þau í ná- grennið. Við hittum Sigþór á skemmtikvöldi prófessorafélags- ins fyrir „emerita“ rétt fyrir síð- ustu jól og áttum með honum góða kvöldstund. Sigþór var hress og hraustlegur og afslappaðri en nokkru sinni fyrr. Sala á húsinu þeirra Colleen á Akureyri hafði þó tafist, en við bundum fastmælum að hittast í sumar hvort sem þau væru flutt suður eða ekki. Við hörmum að af því varð ekki og vottum Colleen og dætrum þeirra og fjölskyldum innilega samúð okkar. Hrefna Kristmannsdóttir og Axel Björnsson. Kveðja frá auðlinda- deild Háskólans á Akureyri Fallinn er frá dr. Sigþór Pét- ursson, efnafræðingur og prófess- or emeritus við auðlindadeild Há- skólans á Akureyri. Sigþór var annar af tveimur sem fyrst voru ráðnir til kennslu að nýstofnaðri deild við HA sem þá hét sjávarút- vegsdeild. Það hljóta að hafa verið viðbrigði fyrir Sigþór að koma frá einum elsta og virtasta háskóla heims, Oxford, til þá yngsta há- skóla álfunnar hér á Akureyri. Sigþór tók ríkan þátt í að byggja upp og móta hina nýju deild og þar með skólann allan. Sigþór hafði mikinn metnað fyrir sitt fag og deildina og vildi veg hennar sem bestan. Hann var mjög nákvæmur um alla hluti og ætlaðist til þess af öðrum. Meðal greina sem Sigþór kenndi var efnafræði á fyrsta misseri sem reyndist mörgum nemendum erf- ið. Það tók smátíma „að ná karlin- um“ en þeir sem það gerðu kunna að meta þá þekkingu og þau ög- uðu vinnubrögð sem hann kenndi þeim og nýtast vel í námi og starfi. Enn rifja nemendur upp og leika handbragðið við títrun. Sigþór lærði fljótt nöfn nemenda sinna og fylgdist með þeim eftir að námi lauk. Sigþór átti einnig farsælan feril sem vísindamaður. Í Oxford, áður en hann kom til starfa til HA, vann hann að mjög sérhæfðum rannsóknum sem tengjast efna- smíði m.a. við lyfjagerð. Aðstæður við Háskólann á Akureyri leyfðu ekki slíkar rannsóknir fyrst í stað en hann vann markvisst að því að koma þeim upp og síðustu árin hafði hann aðstöðu til að stunda þessar rannsóknir hér og í sam- vinnu við sitt gamla umhverfi í Oxford. Hann stundaði einnig rannsóknir á stöðuleika ýrulausna úr fiskpróteinum og fitusýrum. Sigþór lét formlega af störfum í lok árs 2014 en var þó virkur fram í það síðasta. Hann var leiðbein- andi í meistaraverkefni um efna- smíði, sem varið var í lok maí og hann var enn að vinna við greina- skrif þegar yfir lauk. Eftir hann liggur mikill fjöldi vísindagreina, kennslubóka, bók- arkafla og greina almenns eðlis sem lýsa vel hans markvissu vinnubrögðum og eljusemi. Við samstarfsmenn hans kveðj- um Sigþór með söknuði. Það var mjög gott að vinna með honum, hann kom heiðarlega fram og vildi hafa hlutina á hreinu. Hann var á stundum dálítið af gamla skólan- um, kannski áhrif frá Englandi, t.d. átti ég einu sinni við hann skemmtilegar umræður varðandi texta í auglýsingu um hvort væri við hæfi að taka fram að auglýst væri eftir karlmanni í tæknistarf. Þegar niðurstaða var komin var það ekki rætt frekar nema hann gerði sjálfur smá grín að þessu seinna. Persónulega á ég og við hjónin Sigþóri mikið að þakka því segja má að hann hafi komið okkur saman þó með óbeinum hætti væri. Þannig var mál með vexti að Sigþór kenndi efnafræði í MR sín- um tíma og hann sannfærði Sig- urbjörgu um að hún gæti lært efnafræði og aðrar raungreinar. Hún valdi því að fara á náttúru- fræðibraut í stað málabrautar. Fyrir í þeim bekk var ég og höfum við verið saman síðan. Við rifjuð- um þetta upp með Sigþóri og hafði hann gaman af. Eftirlifandi eiginkonu, Colleen Mary Pétursson, dætrum þeirra og öðrum aðstandendum vottum við samúð okkar. Fyrir hönd auðlindadeildar HA, Hjörleifur Einarsson, deildarformaður. Sigþór Pétursson www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ragnar s: 772 0800 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma, SIGURVEIG ERLINGSDÓTTIR, frá Ásbyrgi, Lundi 1, Kópavogi, sem lést á heimili sínu 6. júlí, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 13. . Sigrún Jónasdóttir, Björn E. Johannessen, Helga Jónasdóttir, Tómas Þór Tómasson, Jón Erlingur Jónasson, Védís Jónsdóttir, Úlfhildur Jónasdóttir, Þorsteinn S. Karlsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdapabbi, afi og langafi, JENS KRISTINSSON, Höfðavegi 37, Vestmannaeyjum, lést 12. júlí. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 17. júlí kl. 16. . Guðný Gunnlaugsdóttir, Elías Vigfús Jensson, Sigríður Gísladóttir, Jensína Kristín Jensdóttir, Halldór Bjarnason, Guðný Jensdóttir, Guðmundur Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku faðir minn, tengdafaðir og afi, BJÖRN Ó. HELGASON, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, lést föstudaginn 10. júlí. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. júlí kl. 15. . Kristín Anna Björnsdóttir, Sigþór Bragason, Daníel Freyr Birkisson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, BÁRA PÉTURSDÓTTIR, Klapparhlíð 3, Mosfellsbæ, (áður Akureyri), lést á heimili sínu mánudaginn 13. júlí 2015. Útförin verður auglýst síðar. . Margrét Sveinbjörnsdóttir, Viðar Sveinbjörnsson, Gunnar S. Sveinbjörnsson, Elmar A. Sveinbjörnsson, makar, systkini, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, MARÍA KRISTÍN HELGADÓTTIR frá Arndísarstöðum, lést 12. júlí á Dvalarheimilinu Hlíð. Útför hennar fer fram frá Þorgeirskirkju laugardaginn 18. júlí kl. 13.30. . Helgi Hallsson, Gerður Hallsdóttir, Jósep Hallsson, Jófríður Hallsdóttir, Ragnar Hallsson, Auður Hallsdóttir, Stefán Hallsson og fjölskyldur. Okkar góði bróðir, frændi og vinur, JÓHANN BOGI GUÐMUNDSSON, húsasmíðameistari, Sólvallagötu 74, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 17. júlí kl. 15. . Margrét Guðmundsdóttir, Friðrik Ágúst Helgason, Gerður Guðmundsdóttir, Þór Whitehead og fjölskyldur. Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG AXELSDÓTTIR, skókaupmaður, Prestastíg 6, sem lést á Landspítalanum 12. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. júlí kl. 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans við Fossvoginn. . Sigrún Óskarsdóttir, Ársæll Sveinsson, Óskar Axel Óskarsson, Sigríður Sigurðarsdóttir, Guðrún Ó. Axelsdóttir, Sigríður Björk Þormar, Adolf Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.