Jökull


Jökull - 01.12.1970, Side 23

Jökull - 01.12.1970, Side 23
kvæmari er að mæla langsnið á jöklinum. Slík- ar mælingar eru þó vissulega nokkurs virði, því að ætla má, að á stórum reglulegum jöklum eins og Tungnaárjökli sé afkoman á stórum svæðum jöfn í sömu hæð. Æskilegt er því, að langsniö séu mæld sem lengst upp á jökul. Rennslismælingar við jökla eru víða vel fram- kvæmanlegar, og væri fuli ástæða til að kanna, hvort nota mætti síðasttöldu aðferðina. Aug- ljósir vankantar eru óvissan um vatnaskil á jökli og, að regnmælingar á hálendinu eru hald- litlar eða engar. Með þvi að beita saman vatna- og landmælingaaðferð má kannski fá einhverja mynd af búskapnum um nokkurra ára bil. Einnig mundi samanburður á vatnafræðilegum eiginleikum jökulvatna og jökulþakins vatna- sviðs geta veitt mikilvægar upplýsingar unr jökla- breytingar og hlut jökla í vatnsforða og rennslis- háttum hér á landi. Norðmaðurinn Olav Rog- stad (1941) mun einna fyrstur hafa beitt slíkri aðferð við jöklamælingar. Skyldleiki jöklafræðinnar við snjó- og vatna- fræði er augljós. Mæliaðferðir við könnun á snjómagni á hálendi eru hinar sömu og í fyrst- nefndu aðferðinni við afkomumælingar. Enn nánar sést skyldleikinn, þegar gáð er að orku- skiptum lofts og snjós og reikna skal snjóbráðn- un frá jöklum og hálendi. ORKUSKIPTI LOFTS OG JÖKULS Oft heyrist því fleygt, að veðurfar hafi farið versnandi síðasta áratug og nú muni jöklar vaxa. Hvorugt má fullyrða að ókönnuðu máli. Þótt jöklar virðist enn hopa, afsannar það held- ur engan veginn, að veðurfar fari versnandi. Alyktanir eru dregnar af grun um kólnandi veðurfar. Hafís hefur heimsótt okkur, og kal er í túnum. Nær kjarna málsins komumst við með því að kanna, hvort sumur hafi stytzt og kóln- að og vetrarúrkoma hafi aukizt. Ljóst er, að litlu skiptir jökla, hvort vetur kólna. Hins veg- ar munar miklu, að seint vori, haustmánuðir kólni og fljótt snjói á jökla. Raunar er óvíst, að greina megi slíkar breytingar á venjulegum veðurathugunum, að fullyrða megi, að afkoma jökla vaxi. Einfaldast og tryggast er að mæla afkomuna á jöklunum. Af Mynd 4 d og e má sjá, að á áratugnum 1930—40 virðist að jafnaði vetrarákoma hafa minnkað og sumarhiti aukizt. Því má ætla, að afkoma jökla hafi þá versnað. Frá stríðsárum virðist hins vegar sumarleysing hafa farið minnkandi og athyglisverð er vís- bending um, að vetrarákoma hafi aukizt á ára- tugnum 1950—60. (Höfundur vinnur nú að nán- ari úrvinnslu þessara gagna). Allar slíkar hug- leiðingar byggja á tölfræðilegri túlkun, því að enn höfum við ekki skyggnzt inn í hina raun- verulegu atburðarás. Fullur skilningur á eðlisfræðilegu samhengi veðurfars og afkomu jökla fæst fyrst, þegar beitt er búveðurfræðilegum rannsóknum á orku- skiptum lofts og jökuls. Erfitt er að koma við slíkum mælingum allan ársins hring, en mestu varðar, að þær séu gerðar á leysingartímanum. Þeir orkustraumar, sem mæla þarf á sumrin á þíðum jöklum eru geislun, varmaorka (sensible heat) og varmastreymi við flutning vatnseims (latent heat, þéttivarmi). Með einföldum reikn- ingi má sjá, að varmi frá regni hefur hverfandi lítil áhrif, nema þegar regn fellur á snjó, sem er undir frostmarki. Til mælinganna þarf geisl- unarmæla. Vindhraði, lofthiti og loftraki eru mældir í nokkrum hæðum yfir jökli, og finnst þá fallandi þessara stærða. Þannig má reikna út bráðnun á mælistað og finna, hve mikill hlutur hvers hinna þriggja þátta er. Slíkar athuganir voru gerðar á Bægisárjökli sumrin 1967 og 1968. Seinna sumarið skiptist sumarleysing frá 1. júlí til 8. ágúst þannig: 56% geislun, 29% varmastreymi og 15% þéttivarmi. Til saman- burðar má geta þess, að H. W:son Ahlmann og Sigurður Þórarinsson (1943) áætluðu með tölfræðilegum líkingum, að hlutur geislunar í sumarleysingu á sunnanverðum Vatnajökli væri um 10% neðst á jökli, en yxi upp að 40% efst á ákomusvæðinu. Niðurstöðurnar benda til þess, að skýr munur sé á orkuskiptum á Norð- ur- og Suðurlandsjöklum. Varasamt er þó að draga nánari ályktanir af svo litlum gögnum. Hins vegar er ljóst, að varmastreymi og þétti- varmi eru meiri þar, sem hlýtt er, rakt og hvass- viðrasamt, en þar, sem svalt er og lygnt. Geisl- un á víðast hvar stærstan þátt í leysingunni. Á Islandi getur aska borizt inn yfir jökla og dregið mjög úr endurkasti sólargeislunar. Sú rýrnun jökla, sem af því getur hlotizt, á sér því ekki beinar veðurfræðilegar orsakir. Áður hefur verið bent á, að ákomumælingar á jöklum sýna, hvort breytingar verða á veður- fari. Breytingar á orkuskiptum mundu sýna hvers eðlis þær veðurfarsbreytingar væru. JÖKULL 20. ÁR 2 1

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.