Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1988, Qupperneq 56

Jökull - 01.12.1988, Qupperneq 56
Ágrip GRUNNVATN Á ÍSLANDI - AUÐLEGÐ OG EFTIRSPURN - Ferskvatn er ein af þjóðarauðlindum Islendinga, sem þeir eiga ennþá gnótt af. Þeim gæðum er þó misskipt milli landshluta. Bezt og tryggast er fersk- vatn það, sem unnið er úr jörðu, en vatnajarðfræði- legir eiginleikar jarðlaganna ráða bæði magni þess og gæðum. Ungt berg - frá seinni hluta kvarters og nútíma (yngra en 0,7 milljónir ára) - er yfirleitt lekt. Má þar nefna nútíma hraun, grágrýti, bólstraberg og óum- myndað móberg. Jarðmyndanir frá þessum tíma eru víða sundursaxaðar af opnum sprunguskörum, sem auka í senn á lektina og skapa um leið misleitni í henni, er beinir grunnvatnsstraumum í ákveðnar áttir. Straumar þessir spretta víða fram í vatns- miklum lindum, einkum við jaðar hins síðkvartera svæðis, undan hraunabreiðum og fram úr sprungu- skörum. Grunnvatn liggur iðulega það djúpt í jarð- myndunum þessum, að þess gætir lítt eða ekki í lausum jarðlögum á yfirborði. Þessu er annan veg varið í hinum eldri jarð- myndunum - frá tertíer og árkvarter (eldri en 0,7 milljónir ára). Þar er berg yfirleitt orðið vatnsþétt af ummyndunum og fergingu í jarðlagastaflanum. Þó finnst lekt berg á þessum svæðum, til dæmis utan- vert á Vestfjörðum. Grunnvatn er tiltölulega efnasnautt á Islandi og laust við mengun. Jafnvel má styðja það nokkrum rökum að ferskvatnið sé full efnasnautt til manneldis og einkum þó fiskeldis. Auðveldara er að efnabæta, þegar þess er þörf, heldur en að nema óæskileg efni brott. Hvað varðar mengun ber að hafa varann á. Umferð hefur mjög aukizt á síðari árum um við- kvæm vatnstökusvæði, sem fram að því höfðu verið að mestu utan alfaraleiðar. Allvíða vantar jarðvegs- þekju á berggrunninn, sem hlíft gæti grunnvatni fyrir mengun af almennri umferð. Taka ferskvatns til almenningsnota og einkanota hefur aukizt mjög hratt á síðustu árum. Munar þar mest um gífurlega vatnsþörf seiðaeldisstöðva, en framleiðsla þeirra hefur margfaldazt á undanfömum fáum ámm. Jafnframt hafa kröfur um hreinleika vatnsins orðið sífellt strangari, og gildir það jafnt um almenningsnot, frystiiðnaðinn og fiskeldið. Á árinu 1989 mun vatnsþörf til seiðaeldis verða um 50 % meiri en allt það neyzluvatn, sem fer um vatnsveitur landsins. Stefnir nú í hvort tveggja í senn, vatnsskort og átök um vatnsnytjar, þar sem verst horfir. Fyrirsjáanlegt er, að koma verður á laggimar með lagabreytingum einhverju því stjómvaldi, sem haft gæti eftirlit með þessari auðlind þjóðarinnar, sem vatnsforðinn í heild sinni vissulega er. Lagareglur um vatnstöku, vatnsvemd og eftirlit þarf að gera skýrari og ótvíræðari. Með tilkomu Umhverfismála- ráðuneytis munu forsendur til þessa batna til muna, hver svo sem framkvæmdin verður. 54 JÖKULL, No. 38, 1988
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.