Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 10.–13. október 20142 Fréttir
„Gengur út á að draga úr fordómum“
Stofnuðu athvarf fyrir geðsjúka í Minsk
V
ið fengum fyrirspurn frá Hvít-
rússneska Rauða krossin-
um fyrir um tveimur árum
um það hvort við gætum
miðlað af okkar reynslu varðandi
uppbyggingu verkefna í þágu geð-
fatlaðra,“ segir Nína Helgadótt-
ir, verkefnisstjóri Rauða krossins
í málefnum Mið-Austurlanda og
Austur-Evrópu. Hún, ásamt sam-
starfsfólki sínu, er stödd í Minsk og
hefur verið að fylgjast með starfi og
þjálfa sjálfboðaliða í athvarfi fyr-
ir fólk með geðraskanir. Á með-
al þeirra sem þjálfar starfsfólkið í
Minsk er fyrrverandi gestur úr Vin,
Ása Hildur Guðjónsdóttir, sem nú
starfar sem sjálfboðaliði þar.
Heimilið í Minsk er í dag, á degi
alþjóða geðheilbrigðisdagsins, árs-
gamalt og gengur starfið þar mjög
vel. Verkefnið er fjármagnað af
Rauða krossi Íslands og utanríkis-
ráðuneytinu.
„Eftir mikið samstarf settumst við
niður og hönnuðum þetta verkefni í
samstarfi við þá. Verkefnið er að ís-
lenskri fyrirmynd en hefur verið lag-
að að aðstæðum hér úti. Megintil-
gangur verkefnisins gengur út á að
draga úr fordómum gagnvart fólki
með geðsjúkdóma og auka umræðu
um geðheilbrigði,“ segir hún. Til þess
að ná þessum markmiðum var opn-
að athvarf sem svipar til íslenskra
athvarfa Rauða krossins sem hef-
ur um árabil unnið að uppbyggingu
þeirra hér á landi. Má í því sam-
hengi nefna athvarfið Vin í miðborg
Reykjavíkur. Markmið slíkra athvarfa
er að rjúfa einangrun og efla þekk-
ingu allra á málefnum geðsjúkra.
„Hér fer fram mikið málsvara-
starf, til þess að efla umræðuna og
minnka fordóma,“ segir hún. „Þetta
hefur gengið ótrúlega vel að koma
þessu á hér, auglýsa það þannig
að það laði til sín gesti og þau hafa
unnið mikið brautryðjendastarf
hér,“ segir Nína. n
astasigrun@dv.is
Milljónir út
uM gluggann
n ríkisbílar ekki í kaskó n 11 milljóna króna tjón á land Cruiser Vegagerðarinnar
Í
slenska ríkið á yfir tvö þús-
und bifreiðar en engin af þeim
er kaskótryggð heldur aðeins
með þær lögbundnu tryggingar
sem allir verða að hafa. Þetta
gæti mörgum þótt einkennilegt og
þá sérstaklega í ljósi þess að fjöl-
margar af þessum bifreiðum eru
metnar á yfir tíu milljónir króna.
Ein af bifreiðum ríkisins lenti
í umferðaróhappi á dögunum en
það var tæplega 11 milljóna króna
Land Cruiser 150-jeppabifreið
Vegagerðarinnar. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Vegagerðinni var bif-
reiðinni ekið ofan í skurð en öku-
maður hennar slapp án meiðsla.
Eftir situr tæplega 11 millj-
óna króna jeppabifreið sem Ríkis-
kaup sjá nú um að selja fyrir Vega-
gerðina á helmingsvirði eða fyrir
tæpar fimm milljónir króna. Um-
ferðaróhappið kostaði því íslenska
skattgreiðendur rúmar fimm millj-
ónir króna.
Spara sér pening
Þetta er ekki eina altjónið sem ís-
lenska ríkið hefur þurft að taka á
sig en samkvæmt heimildum DV
hafa þau verið nokkur í gegnum
árin. Það mætti því spyrja hvers
vegna ríkið ákveður að tryggja ekki
jafn dýrar bifreiðar? Hvers vegna
eru bifreiðar forsætisráðherra
eða utanríkisráðherra ekki kaskó-
tryggðar?
„Menn hafa metið það svo að
áhættudreifing milli þessa fjölda
bíla sem ríkið á geri það að verk-
um að það er hagkvæmara að taka
þessa áhættu yfir nokkurra ára
tímabil í stað þess að borga tug-
milljónir í að kaskótryggja þær
allar,“ segir Benedikt Jóhannes-
son tryggingastærðfræðingur en
hann hefur meðal annars gef-
ið Ríkiskaupum ráð hvað varðar
tryggingamál.
Bílasali sem DV ræddi við sagði
málið út í hött. Hann sagðist skilja
að ríkið kaskótryggði ekki allar bif-
reiðar í sinni eigu en botnaði ekk-
ert í því af hverju þær dýrustu væru
ekki tryggðar. Bílasalinn sagði að
Ríkiskaup hefðu nýlega farið í út-
boð vegna kaupa á Land Rover-
bifreið fyrir eitt af ráðuneytum rík-
isins. Jeppabifreiðin hafi kostað
tólf milljónir og nú væri henni ekið
um götur Reykjavíkur aðeins með
lögbundna tryggingu.
Sjónarmið að tryggja dýrustu
Þá kviknar sú spurning af hverju
íslenska ríkið sé ekki með eitthvert
viðmið þ.e.a.s. ef verðmat bifreið-
ar fer yfir ákveðna upphæð, eins
og t.d. sex milljónir, þá sé keypt
kaskótrygging. Þessu er bílasalinn
sammála.
„Ég hugsa að þetta séu nú ekki
mjög margir bílar sem eru svona
dýrir þannig að það er alveg sjón-
armið að tryggja þá án þess að
verulegur kostnaður hlytist af. En
svona að meðaltali þá myndi ég
áætla að ríkið komi út í plús að
þessu leyti, það er að segja með
því að tryggja ekki,“ segir Benedikt.
„Flugvélar og þyrlur á vegum
ríkisins eru tryggðar upp í topp,
bara til að nefna dæmi um eitt-
hvað sem væri verulegt áfall, jafn-
vel fyrir stóran aðila eins og ríkið,
ef þeim hlekktist á.“
Steingrímur Birgisson, forstjóri
Bílaleigu Akureyrar, segir ákveðna
skynsemi fólgna í því að vera með
eitthvert viðmið en ekki ákveða
það bara heilt yfir alla línuna að
kaskótryggja ekki. Bílaleiga Akur-
eyrar var með í kringum 3.000 bif-
reiðar í sumar þegar mest lét.
Fer eftir tjónasögunni
„Við skoðuðum þetta hjá okkur fyr-
ir of mörgum árum. Hvað borgaði
sig að gera í þessum tryggingar-
málum? Hvort við værum að
kaskótryggja of mikið eða of lítið?
Hvort við ættum að
sleppa framrúðu-
tryggingunni og
svo framvegis?
Á þeim tíma,
og þetta er í
kringum 2007,
þá vorum við
með það við-
mið að ef bifreið
var metin á 1.200
þúsund, sem er
eflaust í kring-
um tvær milljón-
ir í dag, þá borg-
aði sig fyrir okkur
að vera með hann
í kaskó út frá okk-
ar tjónasögu,“
segir
Steingrímur og áréttar að þetta
fari fyrst og fremst eftir tjóna-
sögunni hjá viðkom-
andi.
„Auðvitað geta
menn lent í slæmum
tjónum, eins og virð-
ist vera með Land
Cruiser-inn hjá Vega-
gerðinni, en svo fer
þetta eftir fjárhagsstyrk
hvers og eins. Við erum
til dæmis bara venju-
legt fyrirtæki og ekki
með þann styrk að geta
leyft okkur að taka séns-
inn á stórum áföll-
um.“ n
„Við erum til dæmis
bara venjulegt fyr-
irtæki og ekki með þann
styrk að geta leyft okkur
að taka sénsinn á stórum
áföllum.
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Í klessu Jeppabifreið Vegagerðarinnar kostar 11 milljónir úr kassanum en hún er árgerð 2012
og ekin 32 þúsund kílómetra. Mynd RÍkiSkAup
Tryggingastærðfræðingur
Benedikt Jóhannesson segir
skýringuna felast í því að það
hafi verið hagkvæmara fyrir
ríkið að taka á sig eitt og eitt
tjón í stað þess að kaskótryggja
allar bifreiðar. Mynd SiGTRyGGuR ARi
Hegðuðu sér
undarlega á
Hólmavík
Lögreglan á Vestfjörðum hand-
tók par á Hólmavík á miðvikudag
sem var þá nýkomið til þorpsins.
Í tilkynningu frá lögreglunni
kemur fram að parið var í annar-
legu ástandi og hafði verið til-
kynnt um undarlega hegðun
þess. Hafði það farið í leyfis-
leysi inn í húsnæði fyrirtækja á
staðnum og gert sig líklegt til að
taka þar verðmæti. Í fórum þess
fundu lögreglumenn allnokkurt
magn fíkniefna, eða um fimmtíu
grömm af efni sem talið er vera
amfetamín og um 6 grömm af
kannabisefnum.
Í ljósi efnismagnsins grunar
lögreglu að það hafi verið ætl-
að til sölu. Í tilkynningu frá lög-
reglunni kemur fram að parið var
auk þess með tvo hnífa á sér.
Parið var yfirheyrt og því
sleppt lausu seinnipartinn á mið-
vikudag. Fólkið hefur ítrekað
komið við sögu lögreglu vegna
ýmissa brota, svo sem fíkniefna-
mála og ofbeldisbrota.
Leita Christians
um helgina
Til stendur að leita að þýska
ferðamanninum Christi-
an Markus við Látrabjarg um
helgina. Meðal annars verð-
ur leitað í fjörunum við bjargið.
Frá þessu er sagt á fréttamiðlin-
um bb.is. Ekkert hefur spurst til
Christians frá því hann yfirgaf
hótelið í Breiðavík í Vesturbyggð
hinn 18. september síðastliðinn.
Bifreið hans fannst við Látra-
bjarg 24. september en þá var
fjölskylda hans farin að óttast um
hann og hafði samband við lög-
regluna á Íslandi.
Christans var síðast leitað um
þarsíðustu helgi. Enn hafa engar
vísbendingar fundist um ferðir
hans.
Brautryðjendur Nokkrir gestir, sjálf-
boðaliðar og starfsmenn Oktkriti Dom
í opna athvarfinu í Minsk á góðum degi.
Mynd nÍnA HelGAdóTTiR