Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Síða 6
6 Fréttir Helgarblað 10.–13. október 2014
Nágrannar uggandi
vegna barnatælis
n Maðurinn sem sást reyna að tæla stúlku býr í fjölskyldublokk
L
augardaginn 27. september
síðastliðinn reyndi karlmaður
á sextugsaldri að tæla sex ára
stúlku í bíl sinn í Vesturbæn-
um. Þegar hún svaraði ekki
boði hans fór hann úr bíl sínum og
hljóp á eftir stúlkunni. Stúlkan náði
þó að komast í skjól, en lýsing henn-
ar á manninum, sem DV birti, var
svo greinargóð að tveir nágrannar
mannsins höfðu samband við móð-
ur stúlkunnar til að láta hana vita að
einn nágranni þeirra passaði við lýs-
inguna.
Samkvæmt heimildum DV var
stúlkunni sýndar ljósmyndir af bæði
manninum og bíl hans og staðfesti
hún grun nágranna, umræddur ná-
granni var maðurinn sem hljóp á eft-
ir henni. Nú hafa þessar upplýsingar
kvisast meðal nágranna og er því
verulegur uggur í þeim. Maðurinn
býr í blokk á vegum Félagsbústaða
en meirihluti íbúa er fjölskyldufólk
með ung börn. Kristján Ingi Krist-
jánsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
segist í samtali við DV ekki geta stað-
fest að ákveðinn maður liggi undir
grun.
Í rauðum rispuðum bíl
Að sögn stúlkunnar reyndi maðurinn
fyrst að tæla hana með sælgæti.
„Hann sagði víst: „Stelpa viltu koma,
viltu koma og fá nammi?“ við hana.
Hún kallaði nei og hljóp í burtu en
hann kom út úr bílnum og hljóp á eft-
ir henni. Hún fór beint heim en hann
gafst upp á elta hana,“ sagði móðir
stúlkunnar í samtali við DV. Að sögn
stúlkunnar var maðurinn á sextugs-
aldri, skolhærður, en með skalla, og
í svartri peysu með bláu vesti. Hún
sagði enn fremur að hann hafi verið
á rauðum bíl sem var rispaður far-
þega megin. Þessi lýsing varð til þess
að nágrannar mannsins höfðu sam-
band við móður stúlkunnar.
Gefur ekki færi
„Ég passa mín börn vel. Þau fara
ekkert út án mín og ég sæki þau í
frístundir og leikskóla. Ég er ekkert
að gefa færi á að hann geti nálgast
börnin mín,“ segir nágranni manns-
ins í samtali við DV. Sá á ung börn
og fylgist nú vel með þeim eftir að
hafa frétt af tilraun nágranna síns
til að loka stúlku í bíl sinn. „Ég hef
verið í sambandi við Félags bústaði
og félagsráðgjafann minn út af
þessu. Þau eru að kanna þetta eins
og þau geta. Hann er ekki dæmdur
svo það er lítið hægt að gera,“ segir
nágranninn.
Fræðir börn sín
Nágranninn segir að það helsta sem
hann geti gert til að verja börn sín sé
að fylgjast vel með þeim og vara þau
við. „Ég hef frætt börnin mín, sagt
þeim að vera ekki að fara til ókunn-
ugra. Ég vil samt ekki vera að skapa
óþarfa ótta, að þau megi ekki labba
út um dyrnar heima hjá sér. Ég hef
samt rætt þetta meira síðustu daga,
að það séu til veikir einstaklingar,“
segir hann. Spurður um hvort mað-
urinn hafi verið að áreita börn í
blokkinni segist hann hafa heyrt af
því að hann gæfi sig á tal við börn.
Rannsókn í gangi
Kristján Ingi Kristjánsson segir að
málið sé nú í rannsókn. „Það er ekki
komin nein sérstök niðurstaða í það
enn þá. Ég get ekki staðfest neitt
ennþá [um grunaðan aðila, innsk.
blm.] því þetta er í rannsókn. Með
því gæti ég verið að skaða rannsókn-
ina. Ég get ekki staðfest né hafnað,“
segir hann. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Stelpa viltu
koma, viltu
koma og fá nammi?
Niðurstaða í Sjóvármáli
DV hefur heimildir fyrir því að nú
styttist í niðurstöðu í svokölluðu
Sjóvármáli hjá embætti sérstaks
saksóknara, Ólafs Haukssonar.
MyNd SiGtRyGGuR ARi
Styttist í niðurstöðu í Sjóvármáli
Hefur verið til rannsóknar lengi
N
ú styttist í niðurstöðu í svoköll-
uðu Sjóvármáli hjá embætti
sérstaks saksóknara en málið
hefur verið til rannsóknar í
nokkur ár. Líkt og komið hefur fram
í fjölmiðlum snýst málið um meinta
misnotkun á sjóðum tryggingafé-
lagsins en svokallaður bótasjóður
félagsins, eða vátryggingaskuld,
tapaðist að stóru leyti í áhættufjár-
festingum fyrir hrunið 2008.
Sjóvármálið er afar umfangsmikið
og er ekki ljóst hvaða anga þess emb-
ætti sérstaks saksóknara hefur ná-
kvæmlega til skoðunar. Yfirheyrslur
fóru fram í málinu yfir nokkrum fyrr-
verandi starfsmönnum Sjóvár og
eiganda þess, Milestone, en er orðið
nokkuð langt síðan – árið 2010. DV
greindi ítarlega frá yfirheyrslunum
á sínum tíma en meðal þeirra sem
voru yfirheyrðir voru þeir Karl og
Steingrímur Wernerssynir, Þór Sig-
fússon og Guðmundur Ólason.
Embætti sérstaks saksóknara þarf
að taka ákvörðun um hvort ákært
verður í málinu eða ekki og þá eft-
ir atvikum fyrir hvað verður ákært
og þá eins auðvitað hverjir muni
sæta ákæru. Líkt og fram hefur kom-
ið þurfti íslenska ríkið að leggja Sjó-
vá til milljarða króna til að bjarga
tryggingafélaginu frá gjaldþroti eftir
hrunið 2008 og verja þar með hags-
muni tryggingatakanna sem greitt
höfðu iðgjöld til félagsins. n
ingi@dv.is
Kastaði dópi
undir lög-
reglubifreið
Á þriðja tímanum aðfaranótt
fimmtudags barst lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu tilkynning
um slagsmál í miðbæ Reykjavík-
ur. Þegar lögreglan kom á vett-
vang var ekkert í gangi, að því er
fram kemur í dagbók lögreglunn-
ar, en tveir karlmenn voru hins
vegar í einhverjum samræðum á
vettvangi.
Lögreglumenn veittu því
athygli að annar aðilinn kastaði
frá sér bréfpoka undir lögreglu-
bifreiðina. Í pokanum reyndust
vera ætluð fíkniefni og var mað-
urinn handtekinn og vistaður í
fangageymslu. Til stóð að taka af
honum skýrslu á fimmtudag.
Sérsveitar-
menn stöðvuðu
ökumann
Lögreglumenn úr sérsveit ríkis-
lögreglustjóra stöðvuðu för öku-
manns á Hafnarfjarðarvegi fyrir
of hraðan akstur á öðrum tíman-
um aðfaranótt fimmtudags. Ók
ökumaðurinn bifreið sinni á 122
kílómetra hraða á klukkustund
þar sem leyfilegur hámarkshraði
er 80 kílómetra hraði.
Í ljós kom að ökumaðurinn
var án ökuréttinda og í annar-
legu ástandi. Þegar búið var að
taka blóðsýni úr ökumannin-
um var hann vistaður í fanga-
geymslu lögreglu þar til tekin var
of honum skýrsla vegna málsins.
Í bifreiðinni fundust ætluð fíkni-
efni sem voru haldlögð. Farþegi
í bifreiðinni var einnig vistaður í
fangageymslu þar sem hann og
ökumaður neituðu báðir að eiga
fíkniefnin.
Granaskjól Samkvæmt móðir
stúlkunnar reyndi maðurinn að tæla
stúlkuna við „Granaskjólið“.