Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 10.–13. október 201428 Fólk Viðtal
Fann ástina
á Einkamál.is
S
veinbjörg tekur glaðleg á
móti blaðamanni á skrif-
stofunni í Hamraborginni
og býður upp á kaffi og
vatn. Hún var rétt að klára
að renna yfir fréttirnar á netmið-
lunum, en þannig byrjar hún flesta
daga.
„Þetta er semsagt ástæðan fyr-
ir því að ég ákvað að hella mér út í
pólitík,“ segir Sveinbjörg og bendir
á fallegt málverk sem hangir uppi á
vegg á skrifstofunni. Málverkið er af
nokkrum konum sem halda á bús-
áhöldum, íklæddar íslenska þjóð-
búningnum – augljóslega vísun í
búsáhaldabyltinguna. „Það er sem-
sagt hrunið sem ýtti mér af stað,“
bætir hún við.
Hún var þó búsett í Lúxemborg
þegar bankakerfið á Íslandi hrundi
eins og spilaborg fyrir sex árum síð-
an. „Ég sat við tölvuna og las fréttir
af nýjum banka falla á hverjum degi
og ákvað að fara bara í netbindindi,“
segir hún hlæjandi. Árið 2009 flutti
hún svo heim til Íslands eftir um
þriggja ára búsetu í Lúxemborg.
Lætur flokkslínur ekki hefta sig
Sveinbjörg er tiltölulega nýlega orðin
framsóknarkona – svona formlega
að minnsta kosti. Hún skráði sig í
flokkinn árið 2012 en hafði áður ver-
ið skráð í Sjálfstæðisflokkinn frá 16
ára aldri. „Ég hef alltaf verið sam-
mála þessari hugmynd um einstak-
lingsframtakið og að við eigum að
uppskera eins og við sáum, með
samfélagslegri ábyrgð þó.“ Það var þó
eitthvað við hugmyndafræði Fram-
sóknarflokksins sem heillaði hana
meira. „Svo var búið að taka mjög
mikið til í flokknum eins og hann
birtist mér. Mér fannst það vanta hjá
hinum flokkunum. Þetta var bara
eins og í Dallas, JR fór í tveggja þátta
frí og kom svo aftur. Þetta voru mikið
sömu persónur og leikendur, fyrir og
eftir hrun.“ Sveinbjörg kaus engu að
síður Besta flokkinn í sveitarstjórnar-
kosningunum fyrir fjórum árum og
viðurkennir það blákalt fyrir blaða-
manni.
„Skilaboðin sem ég vildi gefa með
því var að það þyrfti að taka til og
breyta. Ég hef aldrei látið flokkslínur
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, varð
á einni nóttu einn umdeildasti stjórnmálamaður
landsins eftir að hafa óvænt tekið oddvitasæti
framboðsins fyrir kosningar í vor. Hún segist koma
til dyranna eins og hún er klædd og ætlar ekki
að breyta sér þótt hún sé komin í pólitík. Hvorki
framkomu né fasi. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir sett-
ist niður með henni á skrifstofunni í Kópavogi, þar
sem hún hefur aðsetur sem lögmaður, og ræddi um
pólitíkina, hvernig það er að vera opinber persóna,
fjölskylduna og ástina, sem hún fann á Einkamál.is.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Er bara hún sjálf
Sveinbjörg ætlar ekki
að breyta sér þrátt
fyrir að vera orðin
opinber persóna.
Mynd SigtRygguR ARi